Árásir Bandaríkjanna og Ísraels á Íran

Fréttamynd

Telja sam­komu­lag lík­legt á næstu dögum

Utanríkisráðherra Íran segir að ríkisstjórn landsins muni eingöngu samþykkja „sanngjarnt og víðtækt“ friðarsamkomulag við Bandaríkin. Íranir muni standa vörð um lögmætan rétt sinn og hagsmuni. Starfsmenn Hvíta hússins segja samkomulag við Írani aldrei hafa verið líklegra en nú.

Erlent
Fréttamynd

Gerir hlé á „frelsisaðgerðum“ í Hormússundi

Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, hefur gert hlé á „frelsisaðgerðum“ í Hormússundi. Marco Rubio, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, segir að fyrstu sókn Bandaríkjanna og Ísraels í Íran, Operation Epic Fury, sé lokið og að markmiðum hennar hafi verið náð. 

Erlent
Fréttamynd

Segja vopna­hléið enn í gildi þrátt fyrir á­rásir

Pete Hegseth, varnarmálaráðherra Bandaríkjanna, og Dan Caine, formaður herforingjaráðs Bandaríkjanna, segja vopnahlé við Íran enn í gildi. Það er þrátt fyrir árásir Írana á bandarísk herskip og Sameinuðu arabísku furstadæmin og að Bandaríkjamenn hafi sökkt að minnsta kosti sex bátum íranska byltingarvarðarins í gær.

Erlent
Fréttamynd

Vopna­hléið hangir á blá­þræði

Vopnahléið í Mið-Austurlöndum er talið hanga á bláþræði eftir gærdaginn. Ráðamenn í Sameinuðu arabísku furstadæmunum segjast hafa orðið fyrir árásum frá Íran og kviknaði eldur í stærstu olíugeymslustöð landsins, vegna þeirra. Þá segjast Bandaríkjamenn hafa grandað sex bátum íranska byltingarvarðarins og að skotið hafi verið á bandarísk herskip.

Erlent
Fréttamynd

Segjast hafa skotið á banda­rískt her­skip

Íranir segja tveimur eldflaugum hafa verið skotið að bandarísku herskipi á eða nærri Hormússundi í morgun. Íranskur miðill, tengdur byltingarverði Íran, segir eldflaugarnar hafa hæft skipið en því neita Bandaríkjamenn. Tveimur bandarískum flutningaskipum mun hafa verið siglt gegnum sundið í dag.

Erlent
Fréttamynd

Boðar „frelsisaðgerðir“ til að koma skipum um sundið

Donald Trump Bandaríkjaforseti tikynnti á samfélagsmiðlinum Truth Social í nótt að Bandaríkjamenn myndu „leiðbeina“ skipum sem setið hafa föst um Hormuz-sund. Segir hann um að ræða aðgerðir í þágu mannúðar og bendir réttilega á að áhafnir skipanna séu að verða uppiskroppa með mat og aðrar nauðsynjar.

Erlent
Fréttamynd

Brott­hvarf banda­rískra her­manna veiki ekki NATO í Evrópu

Utanríkisráðherra telur brotthvarf þúsunda hermanna Bandaríkjanna frá Þýskalandi ekki veikja NATO og ólíklegt að ákvörðunin hafi bein áhrif á Ísland. Það trufli samskipti þjóðarleiðtoga að Bandaríkin hafi farið í stríð við Íran án þess að ráðfæra sig við sína bandamenn.

Innlent
Fréttamynd

Leist ekki á til­lögu um opnun Hormússunds

Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur hingað til hafnað miðlunartillögu Írans en í henni fólst að opnað yrði fyrir umferð um Hormússund og að herkví bandaríska hersins yrði aflétt. 

Erlent
Fréttamynd

Bensín­verð hefur lækkað

Bensínverð lækkaði í gær þegar lækkun virðisaukaskatts tók gildi. Lækkunin er ein af tímabundnum aðgerðum ríkisstjórnarinnar sem eiga að mæta óvissuástandi og verðhækkunum á olíu á heimsvísu. 

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Þúsundir her­manna kallaðir heim frá Þýska­landi

Bandaríska varnarmálaráðuneytið hefur tilkynnt um afturköllun fimm þúsunda hermanna sinna frá Þýskalandi. Samkvæmt ónafngreindum embættismönnum stafar þetta af óánægju Bandaríkjaforseta vegna tregðu Þjóðverja við að taka þátt í árásarstríði sínu við Íran.

Erlent
Fréttamynd

Safna í sér­stakt sjóherlið á Norður­slóðum

Bretar, Ísland og átta önnur lönd í Norður-Evrópu hyggjast sameina krafta sína og koma á fót sérstöku samiginlegu sjóherliði til að sporna við aukinni ógn Rússa á norðurslóðum, að sögn bresks herforingja. Verkefnið er á vegum JEF-samstarfsins sem Ísland er aðili að.

Erlent
Fréttamynd

Áttu langt sím­tal

Vladimír Pútín Rússlandsforseti og Donald Trump Bandaríkjaforseti ræddu við hvor annan í síma í einn og hálfan tíma.

Erlent
Fréttamynd

Byltingarvörðurinn herðir tökin á stjórnar­taumunum

Íran hefur ekki lengur einn stjórnanda sem tekur úrslitaákvarðanir um hvaða stefnu ríkið tekur. Herforingjar og aðrir valdamiklir menn sem tengjast flestir byltingarverði Íran eru nú sagðir taka flestar ákvarðanir sem nýi æðstiklerkurinn veitir svo blessun sína.

Erlent
Fréttamynd

Þing­menn klöppuðu ó­spart fyrir konunginum

Karl þriðji, konungur Bretlands, ávarpaði í gær sameinaðar deildir bandaríska þingsins. Það gerði hann fyrstur breskra kónga en móðir hans var fyrsta drottningin til að ávarpa þingmenn með þessum hætti, árið 1991.Bandaríkjamenn fagna um þessar mundir því að 250 ár eru liðin frá því að þeir lýstu yfir sjálfstæði frá Bretlandi. Í ræðu sinni ítrekaði konungurinn menningarleg tengsl Bretlands og Bandaríkjanna, þó samskipti ríkjanna hafi beðið hnekki að undanförnu.

Erlent
Fréttamynd

Fursta­dæmin yfir­gefa OPEC

Ráðamenn í Sameinuðu arabísku furstadæmunum lýstu því yfir í dag að ríkið ætlaði að yfirgefa samtök olíuútflutningsríkja eða OPEC-ríkin svokölluðu. Furstadæmin hafa lengi tilheyrt hópnum og er útlit fyrir að um þungt högg fyrir hann sé um að ræða, á sama tíma og olíuverð hefur hækkað verulega og markaðurinn er í mikilli óvissu vegna átakanna í Mið-Austurlöndum og lokunar Hormússunds.

Viðskipti erlent
Fréttamynd

Rúss­nesk lúxussnekkja fór um Hormús-sund án vand­ræða

Þrátt fyrir að olíuverð hafi rokið upp og flutningaleiðir raskast eftir að Hormús-sundi var lokað af Írönum og Bandaríkjamenn settu hafnbann á Íran átti rússnesk ofursnekkja ekki í neinum vandræðum með að sigla í gegnum sundið um síðustu helgi.

Erlent
Fréttamynd

Merz segir Írani spila með Banda­ríkja­stjórn

Friedrich Merz, kanslari Þýskalands, sagði í samtali við nemendur í Marsberg í gær að Íranir hefðu leikið á og væru að spila með Bandaríkjamenn. Hann virðist þannig hafa allt aðra sýn á stöðuna en Donald Trump Bandaríkjaforseti, sem hélt því fram um helgina að Bandaríkin hefðu öll spil á hendi.

Erlent
Fréttamynd

Trump segir komið að Írönum að hringja

Fyrirhugaðar Bandaríkjamanna og Írana runnu enn einu sinni út í sandinn eftir að Donald Trump Bandaríkjaforseti skipaði erindrekum sínum að hætta við ferð til Islamabad í þeim tilgangi að funda með fulltrúum Írana.

Erlent
Fréttamynd

Segja engan fund á dag­skrá

Hvíta húsið segir að samningamenn á vegum Bandaríkjanna haldi til Pakistan í dag í von um að semja um frið við Írani. Írönsk stjórnvöld segja aftur á móti að engir fundir með Bandaríkjamönnum séu á dagskrá, þrátt fyrir að utanríkisráðherra Írans sé í Íslamabad.

Erlent
Fréttamynd

Segir vopna­hlé fram­lengt um þrjár vikur

Donald Trump Bandaríkjaforseti tilkynnti í kvöld að vopnahlé milli Líbanon og Ísraels yrði framlengt um þrjár vikur. Hann segir Bandaríkjamenn auk þess hafa „algjöra stjórn“ á Hormússundi.

Erlent