
Flugvélahvarf MH370

Flugleið vélarinnar á korti
Flugvélinni var flogið langt yfir suður-Indlandshaf.

Flugvélin fórst í Suður-Indlandshafi
Ný gögn sýna síðustu staðsetningu vélarinnar yfir miðju suður-Indlandshafi. Hefði ekki náð til flugvallar þaðan.

Mögulegt brak fundið í Indlandshafi
Skip streyma á leitarsvæðið og Bandaríkin senda sérstakt leitartæki, sem finnur svarta kassa.

Nýjar gervihnattamyndir sýna mögulegt flugvélabrak á floti
Átta leitarflugvélar, búnar öflugum leitarbúnaði, voru sendar af stað í morgun til viðbótar þeim sem þegar fljúga yfir leitarsvæðinu.

Leitarvélum fjölgað á Indlandshafi
Átta flugvélar búnar öflugum leitarbúnaði taka nú þátt í aðgerðinni.

Kínverjar rannsaka myndir sem gætu sýnt brak úr malasísku vélinni
Kínversk skip eru nú á leið á svæðið sem er á suðurhluta Indlandshafs og búist er við frekari upplýsingum á næstu klukkutímum.

Leitarflugvélar geta leitað í aðeins tvo tíma í senn
Leitin að braki sem sást á gervitunglamyndum ástralskra yfirvalda hefur engan árangur borið.

Ekkert hefur fundist í dag
Flugvélar og skip fundu hvorki tangur né tetur af týndu flugvélinni í suður-Indlandshafi í dag.

Leit haldið áfram á Indlandshafi
Víðtæk leit stendur nú yfir á suðurhluta Indlandshafs að Malasísku farþegaþotunni sem hvarf þann áttunda mars síðastliðinn með 239 manns innanborðs.

Ástralskar leitarvélar snúa til baka
Slæm skilyrði eru á nýja leitarsvæðinu í sunnanverðu Indlandshafi þar sem hugsanlegt er að flak týndu farþegavélarinnar sé.

Rökstuddur grunur um að brakið sé úr vélinni
Leitað verður undan ströndum Ástralíu í alla nótt.

Brak úr vélinni mögulega fundið á Indlandshafi
Ástralar telja sig mögulega hafa fundið brak á gervitunglamyndum sem gæti verið úr Boeing þotu Malaysian Airlines sem hvarf þann áttunda mars síðastliðinn með 239 manns innanborðs skömmu eftir flugtak frá Kuala Lumpur.

Sérfræðingar telja eld hafa komið upp í týndu farþegaþotunni
Uppi eru ýmsar kenningar um hvarf Boeing-vél Malaysia Airlines sem ekkert hefur til spurst síðan 8. mars.

Gögnum var eytt úr flughermi flugstjórans
Sérfræðingar segja það óvenjulegt að eyða skrám úr flughermum.

Uppþot á blaðamannafundi vegna týndu flugvélarinnar
Kona á miðjum aldri flutt á brott með valdi.

Tælendingar segjast hafa greint vélina á ratsjá daginn sem hún hvarf
Kínverjar hafa sett aukinn kraft í leitina að malasísku farþegaþotunni sem hvarf þann áttunda mars síðastliðinn með 239 manns innanborðs.

Tilkynntu ekki um flugvél á ratsjá taílenska hersins
Malasísk yfirvöld fengu ekki upplýsingar um atvikið vegna þess að ekki var beðið sérstaklega um það.

Hóta hungurverkfalli vegna flugvélahvarfsins
Aðstandendur kínverskra farþega malasísku farþegaþotunnar sem saknað hefur verið frá því 8. mars krefjast nánari upplýsinga frá yfirvöldum í Malasíu.

Utanríkisráðherra Malasíu: „Pólitík skiptir ekki máli“
Yfirvöld í Malasíu héldu blaðamannafund í Kúala Lúmpúr í morgun vegna týndu farþegaþotunnar.

Leita að flugvélinni á meginlandi Kína
Víðtæk leit er nú hafin innan kínversku landamæranna að Malasísku farþegaþotunni sem hvarf með 239 manns innanborðs þann áttunda mars síðastliðinn.

"Komdu heim, við söknum þín“
Aðstandendur flugmanns horfnu malasísku flugvélarinnar hafa sett saman um hann hjartnæmt myndband.

Rannsókn beint að flugmönnunum
Engin skýring hefur enn fengist á hvarfi malasísku farþegaþotunnar en leitarsvæðið er orðið gríðarstórt.

Ástralar sjá um leit á hluta svæðisins
Yfirvöld í Ástralíu hafa lýst því yfir að þau muni hafa yfirumsjón með leitinni á svokölluðu Suður-svæði að Malasísku Boeing þotunni sem hvarf fyrir rúmri viku. Leitarsvæðinu hefur nú verið skipt í tvennt eftir að ljóst varð að vélinni var flogið áfram í langan tíma eftir að merki hættu að berast frá henni.

25 lönd taka nú þátt í leit að flugvélinni
Lögregla lagði hald á flughermi á heimili annars flugmanna þotunnar.

Flugmennirnir slökktu á fjarskiptabúnaðnum
Najib Razak, forsætisráðherra Malasíu, staðfesti á blaðamannafundi í morgun að flugmenn vélarinnar sem hefur verið leitað í viku hafi slökkt á fjarskiptabúnaði um borð í flugvélinni.

Dularfullt hvarf farþegaflugvélar
Þegar flug MH370 hjá Malaysia Airlines hvarf af ratsjá í góðu veðri síðastliðið laugardagskvöld gat enginn útskýrt hvernig þessi Boeing 777-farþegaflugvél gat horfið að því er virtist upp úr þurru. Síðan þá hafa misvísandi upplýsingar og alls kyns kenningar verið í gangi um hvarfið án þess að nein sönnunargögn hafi komið fram. Hvað sem því líður þá er þessi þota með 239 manneskjur um borð enn ófundin

NASA blandar sér í leitina að týndu flugvélinni
Geimferðastofnun Bandaríkjanna mun greina gervihnattamyndir til að reyna að komast að raun um hvað varð af flugvél Malaysian Airlines.

Vísbendingar um að vélin hafi snúið við
Nú er leitað á Indlandshafi að týndri farþegavél Malaysia Airlines.

Slökkt handvirkt á samskiptabúnaði vélarinnar
Bandarísk rannsóknarnefnd segist fullviss um að hvarf vélarinnar hafi verið meðvituð ákvörðun annars, ef ekki beggja flugmanna Malaysia Airlines 370.

Ekki um brak úr vélinni að ræða
Kínverskar gervihnattamyndir sem birtar voru í gær af því sem talið var vera brak úr malasísku flugvélinni sem hvarf á laugardag voru birtar fyrir mistök.