Mikilvægir útisigrar hjá ÍA og Fylki í kvöld Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 19. júlí 2016 21:10 Sandra Sif Magnúsdóttir skoraði tvö mörk fyrir Fylki í kvöld. Vísir/Vilhelm
Skagastúlkur fögnuðu sínum fyrsta sigri í Pepsi-deild kvenna í sumar í kvöld þegar þær unnu útisigur í Vesturbæ Reykjavíkur og Fylkiskonur fjarlægðust fallbaráttuna með sigri á Selfossi. ÍA-liðið er áfram á botninum en nú með fjögur stig og bara þremur stigum frá öruggu sæti. Fylkiskonur komust aftur á móti upp fyrir Selfoss og í sjötta sæti deildarinnar en Árbæjarkonur eru nú fjórum stigum frá fallsæti. Megan Dunnigan skoraði bæði mörk Skagastúlkna í 2-0 útisigri á KR í kvöld en hún hefur þar með skorað öll þrjú mörk Skagaliðsins í sumar. ÍA hafði aðeins fengið eitt stig í fyrstu átta leikjum sínum og það kom í hús í Árbænum þegar Megan Dunnigan jafnaði metin í uppbótartíma. Megan Dunnigan kom ÍA í 1-0 strax á 6. mínútu og hún innsiglaði síðan sigurinn ellefu mínútum fyrir leikslok. Skagamenn eru því með fullt hús á KR-vellinum í sumar því karlaliðið vann þar einnig góðan sigur á dögunum. Sandra Sif Magnúsdóttir tryggði Fylki 3-1 sigur á Selfossi með því að skora tvö mörk á síðustu níu mínútum leiksins. Þetta var aðeins annar sigur Fylkisliðsins í deildinni. Lauren Elizabeth Hughes kom Selfossi í 1-0 á 29. mínútu og þannig var staðan þar til að varamaðurinn Shu-o Tseng jafnaði aðeins tveimur mínútum eftir að hafa komið inná í hálfleik. Sandra Sif Magnúsdóttir skoraði síðan tvö mörk í lokin, það fyrra á 81. mínútu en það síðara á 89. mínútu. Upplýsingar um markaskorara eru fengar frá vefsíðunni fótbolti.net.
Pepsi Max-deild kvenna Mest lesið „Ég hélt ég myndi deyja“ Enski boltinn „Enginn vildi að ég myndi vinna“ Sport Klúðraði gullgreininni sinni: „Ég er enn í áfalli“ Sport Þungarokkið þaut áfram en á eftir að kaupa afmælisgjöf handa konunni Sport Hetjuleg barátta dugði ekki gegn heimsmeisturunum Handbolti Senda samúðarkveðjur eftir að nánir vinir Joshua létust í banaslysinu Sport Nottingham Forest vill fá að heyra samtöl dómaranna Enski boltinn Ekki góð ferð til Rómarborgar í kvöld Fótbolti Fór grátandi upp á sjúkrahús eftir fall stuttu fyrir ÓL Sport Mennirnir sem létust voru þjálfarar og nánir vinir Anthony Joshua Sport Fleiri fréttir Enn kvarnast úr liði Blika Leið Víkings að titlinum rifjuð upp í kvöld Þjálfar 2. flokk samhliða því að spila fyrir KR Færeysk landsliðskona til liðs við ÍBV Býst ekki við að spila aftur fyrir landsliðið Kynntu Sigurð á slaginu sex á aðfangadag Heyrði hvorki frá Blikum né Víkingum Úr Bestu heim í Hauka „Þetta er stærsti klúbbur Íslands“ Sagan ekki sönn: „Veit ekki hvaðan þetta á að hafa komið“ Meira en 37 stöðugildi hjá Knattspyrnusambandi Íslands Óskar Hrafn um komu Arnórs Ingva: „Gífurlega dýrmætt fyrir KR“ Arnór Ingvi orðinn leikmaður KR Breiðablik kaupir Jónatan frá Norrköping Elías mættur til meistaranna KR sagt vera að landa Arnóri Ingva Hilmar Árni til starfa hjá KR Segir fjórðung í bók Óla ósannan Víkingur í úrslit Bose-bikarsins eftir sigur „Verið heiður að spila í appelsínugulu með frábærum liðsfélögum“ Þekkir Egilshöllina vel og skoraði gegn fyrrum félögum Strákar Heimis Guðjóns fengu slæman skell í fyrsta leik Axel verður áfram hjá Aftureldingu Kveður pabba sinn í Laugardalnum og fer til FH „Félag sem var í basli með að ná endum saman og greiða laun á réttum tíma“ Skrýtið og taktlaust: „Ég er ekkert sátt með niðurstöðuna“ Fanndís kveður sviðið: „Ég er búin að fella nokkur tár“ Gylfi með tvö og Víkingar byrja á sigri Frá Akureyri til Danmerkur Markadrottningin heldur að landsliðið sé búið spil Sjá meira