Uppgjörið: Valur - Afturelding 40-37 | Valur gerði Aftureldingu grikk að Hlíðarenda Hjörvar Ólafsson skrifar 31. október 2026 17:00 Bjarni í Selvindi var drjúgur í sóknarleik Vals í þessum leik. Vísir/Ernir Valur bar sigur úr býtum, 40-37, gegn Aftureldingu þegar liðin áttust við í N1-höllinni að Hlíðarenda í níundu umferð Olís-deildar karla í handbolta í dag. Valur var skrefinu á undan í fyrri hálfleik og leiddi með tveimur til þremur mörkum fram að hálfleiknum. Staðan var svo 19-18 Val í vil þegar liðin töltu til búningsherbergja í háfleik. Gunnar Róbertsson var kominn með átta mörk í hálfleik en fimm þeirra komu af vítalínunni. Oscar Lykke var hins vegar í broddi fyklingar hjá Aftureldingu en skoraði fimm mörk í fyrri hluta leiksins. Valsmenn fengu mun betri markvörslu en Björgvin Páll Gústavsson klukkaði 10 bolta í fyrri hálfleik á meðan Einar Baldvin Baldvinsson og Sigurjón Bragi Atlason voru með fimm bolta varða samtals þar af eitt vítakast sem Sigurjón Bragi varði. Leikmenn beggja lið lögðu líkama og sál í verkefnið. Bessi Teitsson og Stefán Magni Hjartarson berjast hér um boltann. Vísir/Ernir Leikmenn Vals byggðu síðan upp þægilegt forstkot í upphafi seinni hálfleiks sem heimamenn létu aldrei af hendi. Afturelding átti nokkur áhlaup en tókst þó ekki að velgja Val almennilega undir uggum. Niðurstaðan þriggja marka sigur Vals sem situr í öðru sæti deildarinnar með 14 stig, tveimur stigum á eftir Haukum sem tróna á toppnum. Afturelding er hins vegar í fjórða sæti með 11 stig líkt og FH en KA er þar fyrir ofan með 12 stig. Gunnar Róbertsson heldur áfram að raða inn mörkum fyrir Valsliðið. Vísir/Ernir Atvik leiksins Leikurinn var heilt yfir skemmtilegur og sóknarleikur beggja liða vel útfærður. Erfitt að taka eitthvað eitt atvik út fyrir sviga en aðdáendur hraðs og teknískt vel spilaðs handbolta fengu mikið fyrir sinn snúð. Stjörnur og skúrkar Gunnar Róbertsson var markahæstur á vellinum með 14 mörk en níu þeirra komu af vítalínunni. Skotnýting Gunnars var ekkert spes í seinni hálfleik en heilt yfir góður leikur hjá honum. Allan Norðberg nýtti færin sín afar vel í hægra horninu en níu af 11 skotum hans rötuðu rétta leið. Samlandi Allans, Bjarni í Selvindi lagði svo sjö mörk á vogarskálina. Björgvin Páll varði 14 skot og nokkur á mikilvægum augnablikum í leiknum. Hjá Aftureldingu var Árni Bragi Eyjólfsson atkvæðamestur með sjö mörk og Oscar Lykke og Leó Halldórson lögðu fimm mörk hvor í púkkinn. Allan Norðberg tekur Oscar Lykke föstum tökum. Vísir/Ernir Dómarar leiksins Dómarar leiksins, þeir Kári Garðarsson og Magnús Kári Jónsson, dæmdu þennan leik af stakri prýði. Stóísk ró þeirra var til eftirbreytni og leikstjórnin upp á tíu. Það skilar þeim í átta í einkunn fyrir fagleg og röggsöm vinnubrögð. Stemming og umgjörð Bæði lið mættu með trommusveit á svæðið en Baldur barði húðirnar fyrir Valsmenn á meðan Listaskrímslið stjórnaði taktinum hjá gestunum úr Mosfellsbænum. Fínasta stemming á þessum fallega laugardegi í höfuðborginni. Björgvin Páll Gústavsson reyndis Val gulls ígildi. Vísir/Ernir Handbolti Olís-deild karla Valur Afturelding