Spá Vísis og Stöðvar 2 Sports fyrir Olís deild karla 2019-20
1. sæti
2. sæti
3. sæti
4. sæti
5. sæti
6. sæti
7. sæti
8. sæti
9. sæti - (27. ágúst)
10. sæti - HK
11. sæti - Fram
12. sæti - Fjölnir

HK varð Íslandsmeistari í fyrsta og eina sinn 2012. Tímabilið á eftir var liðið nálægt því að komast í úrslitakeppninni. Svo komu tvö skelfileg tímabil þar sem HK fékk samtals tólf stig. Undanfarin fjögur tímabil hefur liðið leikið í næstefstu deild.
Síðasta tímabil var furðulegt í meira lagi hjá HK. Liðið endaði í 6. sæti Grill 66 deildarinnar og skipti um þjálfara. Í umspilinu fóru HK-ingar svo í gang og sýndu styrk með því að vinna Víking, þrátt fyrir að lenda 2-0 undir.
Öfugt við hina nýliðana, Fjölni, hefur HK látið til sín taka á félagaskiptamarkaðnum og nánast fengið heilt byrjunarlið til sín. Nýju mennirnir þurfa að vera fljótir að aðlagast og hjálpa liðinu í fallbaráttunni sem HK verður í.
Tímabilið í ár markar tímamót fyrir HK en handboltalið félagsins leika núna heimaleiki sína í Kórnum en ekki í Digranesi.
Komnir/Farnir:
Komnir:
Ásmundur Atlason – Grótta
Kristófer Andri Daðason – Víkingur
Þorgeir Bjarki Davíðsson – Fram
Eíríkur Guðni Þórarinsson – Valur
Giorgi Dikhaminjia - Struga Macedonia
Kristján Ottó Hjálmsson - til baka úr láni frá Haukum
Davíð Svansson - Molde, Noregi
Farnir:
Elías Björgvin Sigurðsson – Þýskaland
Guðmundur Árni Ólafsson - Afturelding
Þórður Rafn Guðmundsson – Hættur
Ingvar Ingvarsson - Þróttur

HK-ingar hafa ekki spilað í efstu deild undanfarin fjögur tímabil og þetta verður því fyrsta tímabil HK-liðsins með HBStatz.
HK skoraði 27,6 mörk að meðaltali í Grill 66 deild karla á síðustu leiktíð og fékk á sig 27,1 mark að meðaltali.
Liðið vann 8 af 18 deildarleikjum sínum en í úrslitakeppninni vann liðið fimm af átta leikjum þar af þrjá þá síðustu eftir að hafa lent 2-0 undir í úrslitaeinvíginu á móti Víkingum.

Markvörður - Davíð Svansson - 34 ára
Vinstra horn - Kristófer Dagur Sigurðsson - 21 árs
Vinstri skytta - Blær Hinriksson - 18 ára
Miðja - Bjarki Finnbogason - 22 ára
Hægri skytta - Giorgi Dikhaminjia - 22 ára
Hægra horn - Þorgeir Bjarki Davíðsson - 23 ára
Lína - Eiríkur Guðni Þórarinsson - 19 ára
Varnarmaður - Pálmi Fannar Sigurðsson - 23 ára

Blær Hinriksson (f. 2001) er kannski þekktari sem leikari og sló eftirminnilega í gegn í hinni margverðlaunuðu kvikmynd, Hjartasteini. En hann er líka góður handboltamaður sem fær sitt fyrsta tækifæri í efstu deild í vetur.
Blær er afar sterkbyggður og góður maður gegn manni. Þá er hann öflugur varnarmaður. HK-ingar binda miklar vonir við strákinn í vetur.

Elías Már Halldórsson er nýr þjálfari HK og þreytir frumraun sína í vetur sem þjálfari karlaliðs. Eftir að skórnir fóru á hilluna tók hann við kvennaliði Hauka 2017. Á fyrra tímabilinu komust Haukar í bikarúrslit og féllu naumlega úr leik fyrir Val í undanúrslitum Olís-deildarinnar. Skömmu fyrir lok síðasta tímabils hætti Elías óvænt með Hauka og einnig sem aðstoðarþjálfari kvennalandsliðsins.
Elías átti farsælan feril sem leikmaður og vann fjölda titla með Haukum þar sem hann lék lengst af. Hann lék einnig með HK og þekkir því vel til hjá félaginu.
„Þetta eru ungir og efnilegir strákar. Það verður þannig spennandi að fylgjast með Blæ Hinrikssyni. Þetta öflugur strákur í vörn og sókn og mikill leiðtogi. Það er það sem liðið þarf á halda. Hann þarf að stíga upp og fleiri í liðinu. Þjálfarateymið er svolítið óskrifað blað í karlaboltanum en hafa gert fína hluti kvennamegin. Það er mikil leikreynsla í þeim því þeir voru báðir öflugir leikmenn. Það verður mjög fróðlegt að sjá hvernig HK kemur til leiks,“ sagði Guðlaugur.

... varð Íslandsmeistari: 7 ár (2012)
... varð deildarmeistari: Aldrei
... varð meðal þriggja efstu í deildinni: 10 ár (2009)
... varð bikarmeistari: 16 ár (2003)
... komst í bikarúrslit: 14 ár (2005)
... komst í úrslitakeppni: 7 ár (2012)
... komst í undanúrslit: 7 ár (2012)
... komst í lokaúrslit: 7 ár (2012)
... féll úr deildinni: 4 ár (2015)
... kom upp í deildina: Nýliði í ár
Gengi HK í deildarkeppninni undanfarin átta tímabil
2018-19 B-deild (6. sæti)
2017-18 B-deild (4. sæti)
2016-17 B-deild (6. sæti)
2015-16 B-deild (5. sæti)
2014-15 10. sæti í deildinni
2013-14 8. sæti í deildinni
2012-13 4. sæti í deildinni
2011-12 4. sæti í deildinni
Gengi HK í úrslitakeppninni undanfarin átta tímabil
2018-19 B-deild
2017-18 B-deild
2016-17 B-deild
2015-16 B-deild
2014-15 Ekki í úrslitakeppni
2013-14 Ekki í úrslitakeppni
2012-13 Ekki í úrslitakeppni
2011-12 Íslandsmeistari

Leikmannahópur HK er mun sterkari en á síðasta tímabili. Bæði eru nýir leikmenn komnir og aðrir aftur á gólfið eftir erfið meiðsli. Breiddin er þokkalega mikil og í liðinu eru spennandi leikmenn á borð við Blæ, Kristófer Dag Sigurðsson og Eirík Guðna Þórarinsson. Georgíska hægri skyttan Giorgi Dikhaminjia þarf hins vegar að spila betur en hann hefur gert á undirbúningstímabilinu.
HK þurfti að styrkja sig enda lenti liðið í 6. sæti Grill 66 deildarinnar á síðasta tímabil, endaði fyrir neðan tvö ungmennalið og fékk 14 stigum minna en Fjölnir. Mikið vatn hefur runnið til sjávar á nokkrum mánuðum og HK-ingar eru mættir aftur í efstu deild, þar sem þeir vilja vera.
Síðustu tvö tímabili HK í efstu deild voru vandræðaleg en liðið ætti að vera nokkuð samkeppnishæft í vetur og möguleikinn á að halda sér uppi er ágætur.