Handbolti

Bene­dikt birtir mynd frá slysstað

Aron Guðmundsson skrifar
Benedikt liggur hér eftir á golfvellinum og sjúkralið hlúir að honum. Hann hefur nú lagt mikið á sig til þess að geta snúið aftur inn á handboltavöllinn.
Benedikt liggur hér eftir á golfvellinum og sjúkralið hlúir að honum. Hann hefur nú lagt mikið á sig til þess að geta snúið aftur inn á handboltavöllinn. Mynd: Benedikt Gunnar Óskarsson á Instagram

Handboltakappinn Benedikt Gunnar Óskarsson sneri aftur á handboltavöllinn á föstudaginn eftir að hafa lent í slysi og í kjölfarið misst mátt í hægri hendi. 

Benedikt kom við sögu í tapi TTH Holstebro gegn Ribe-Esbjerg í dönsku úrvalsdeildinni og markaði það endurkomu Benedikts á völlinn eftir slysið.

Þessi öflugi leikmaður gekk í raðir Holstebro frá norska meistaraliðinu Kolstad milli tímabila og á meðan hann var í sumarfríi hér á landi skellti hann sér í golf. Sú ferð dró dilk á eftir sér því þar fékk Benedikt golfkúlu í hausinn og missti strax máttinn í hægri hendi.

Benedikt tjáði sig um slysið í viðtali við Vísi sem má sjá hér:

Benedikt var með höfuðhlíf í leiknum gegn Ribe-Esbjerg á föstudaginn og í færslu á samfélagsmiðlinum Instagram þakkar hann fyrir stuðninginn og birtir um leið mynd af því þegar sjúkralið var að hlúa að honum á golfvellinum í sumar.

Benedikt var alls fjóra daga á sjúkrahúsi eftir slysið og hefur hægt og bítandi verið að vinna að því að geta snúið aftur inn á völlinn.

Hann segir að óhappið á golfvellinum sýni hversu stutt er oft á milli í lífinu.

„Jú, þetta lætur mann vera, ég veit það ekki, meira þakklátan þegar maður getur gert allt,“ sagði Benedikt í samtali við Vísi á sínum tíma. „Ég held að þetta muni bara hjálpa manni þegar þetta lagast allt og maður er líklega bara þakklátur fyrir allt sem maður getur gert.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×