
Fréttir

Leggja til ný úrræði í skaðaminnkun
Í hádegisfréttum fjöllum við um tillögur starfshóps um úrræði fyrir þá sem eru langt leiddir af ópíóðanotkun.

Réttarhöldunum lokið: Bað eiginkonu sína og börn afsökunar
Réttarhöldunum gegn Dominique Pelicot og fimmtíu mönnum sem hann fékk til að nauðga fyrrverandi eiginkonu sinni er formlega lokið. Á síðasta degi réttarhaldanna bað Dominique fyrrverandi eiginkonu sína, Gisele Pelicot, og börn þeirra afsökunar og lofaði hann Gisele fyrir hugrekki hennar.

Telur Sigurð Inga hafa misnotað umboð sitt
Landvernd segir Sigurð Inga Jóhannsson fjármála- og innviðaráðherra hafa misnotað umboð sitt með því að staðfesta svæðisskipulag fyrir Suðurhálendið næstu tuttugu árin. Um sé að ræða stefnumarkandi mál sem óeðlilegt sé að starfsstjórn keyri áfram í tómarúmi.

Uppljóstrari játar lygar um Joe og Hunter Biden
Fyrrverandi uppljóstrari Alríkislögreglu Bandaríkjanna (FBI) mun í dag játa fyrir dómi að hafa logið um Joe og Hunter Biden. Ásakanir lygna uppljóstrarans Alexanders Smirnov voru einn af burðarstólpum rannsóknar Repúblikana í fulltrúadeild Bandaríkjaþings á meintum embættisbrotum Bidens.

Orkuverð til bænda hafi allt að tvöfaldast
Gunnlaugur Karlsson, forstjóri Sölufélags garðyrkjumanna, segir raforkuverð til garðyrkjubænda hafa hækkað um allt að hundrað prósent á örfáum árum. Haldi þróunin áfram gætu bændur lagt upp laupana.

Hanastél á lúxushóteli talið hafa valdið eitrun
Lögreglan á Fídji rannsakar nú bráð veikindi sjö erlendra ríkisborgara á sama fimm stjörnu hótelinu. Talið er að fólkið hafi orðið fyrir eitrun af völdum áfengs hanastéls. Stutt er síðan erlendir ferðamenn létust af tréspíraeitrun í Laos.

Stjórnlagadómstóll tekinn til starfa í Suður-Kóreu
Stjórnlagadómstóll Suður-Kóreu hefur boðað réttarhöld í máli forsetans Yoon Suk Yeol sem mikill styr hefur staðið um undanfarnar vikur.

Vill tvöfalda fjölda fólks á Gólan-hæðum
Ríkisstjórn Ísraels hefur samþykkt áætlun sem miðar að því að tvöfalda fjölda landtökufólks sem býr á Gólan-hæðum, svæðinu á milli Ísraels og Sýrlands.

Tólf fundust látin í georgískum skíðabæ
Tólf manns hafa fundist látin í húsi í georgíska skíðabænum Gudauri. Talið er að fólkið hafi látist af völdum kolmónoxíðseitrunar.

Víða kaldi og él
Grunn og hægfara lægð á Grænlandshafi stjórnar veðrinu á landinu í dag. Áttin verður suðvestlæg eða breytileg, víða gola eða kaldi og él, en yfirleitt þurrt norðaustan- og austanlands.

Sagðist vera vopnaður og ruddist inn
Lögregla sinnti útkalli í gærkvöldi eða nótt vegna manns sem hafði sagst vera vopnaður og ruðst inn í íbúð. Hann var handtekinn í íbúðinni en reyndist óvopnaður.

Funduðu ekki um helgina eins og til stóð
Formenn Samfylkingarinnar, Viðreisnar og Flokks fólksins funduðu ekki um helginu um stjórnarmyndun eins og til stóð. Þess í stað fóru þeir yfir stöðu mála hver í sínu lagi. Áfram verður fundað í dag.

Tveir táningar skotnir til bana og þrír særðir
Tveir sextán ára unglingar, strákur og stelpa, voru skotnir til bana og þrír særðir í partýi í Houston í Bandaríkjunum. Meðal hinna særðu er þrettán ára stúlka sem er í lífshættu. Hins grunaða er enn leitað.

Óttast að mörg hundruð muni deyja vegna fellibylsins Chido
Óttast er að fjöldi látinna í franska eyjaklasanum Mayotte verði nokkur hundruð eftir að fellibylurinn Chido reið þar yfir á laugardagsnótt. Ellefu eru þegar látnir og um 250 slasaðir.

Rússnesk olíuskip í sjávarháska á Svartahafi
Tvö rússnesk olíuskip með alls 27 innanborðs eru stórskemmd eftir hremmingar á Svartahafi, í Kerch-sundi sem sker Rússland og Krímskaga.

Mæðgur með mjög óvenjuleg kerti á Selfossi
Kökukerti, mandarínukerti, ískerti, piparkökukerti, eftiréttakerti, jólatrjáakerti og bjórkerti eru meðal kerta, sem mægður á Selfossi búa til. Kertin sóta ekki og eru umhverfisvæn. Annar kertaframleiðandinn er aðeins sex ára.

Lífið í Damaskus að færast í eðlilegt horf þrátt fyrir árásir Ísraela
Ísraelsher gerði fjölda loftárása á Sýrland í nótt, þrátt fyrir yfirlýsingar uppreisnarleiðtogans þar í landi um að hann hyggist halda frið. Líf almennra borgara í Damaskus er að færast í eðlilegt horf, börn mættu í skóla í dag í fyrsta sinn eftir fall Assad-stjórnarinnar.

Fimm barna móðir aldrei séð nokkurt barna sinna jafnveikt
Fimm barna móðir segir ekkert barna sinna nokkurn tímann hafa orðið jafn veikt og tveggja ára dóttir hennar þegar hún smitaðist af RS-veirunni fyrir um viku síðan. Hún segir sorglegt að Ísland sé eftirbátur Evrópuríkja, sem þegar hafa byrjað að nota byltingarkennt mótefni.

„Versta tilfinning í heimi“
Fimm barna móðir segir ekkert barna sinna nokkurn tímann hafa orðið jafn veikt og tveggja ára dóttir hennar þegar hún smitaðist af RS-veirunni fyrir um viku síðan. Það sé versta tilfinning í heimi að horfa upp á barn sitt líða slíkar kvalir. Þá segir hún sorglegt að Ísland sé eftirbátur Evrópuríkja, sem þegar hafa byrjað að nota byltingarkennt mótefni.

Ísrael lokar sendiráði sínu á Írlandi
Ísraelsk stjórnvöld hafa tilkynnt um að sendiráði Ísraels í Dyflinni á Írlandi verði lokað. Utanríkisráðuneytið segir það helst koma til vegna „öfgafullrar“ og „andsemitískrar“ stefnu írskra stjórnvalda í garð Ísraels.

Búseti sættir sig ekki við vöruhúsið
Húsnæðissamvinnufélagið Búseti sættir sig ekki við stærðarinnar vöruhús sem reist var fáum metrum frá fjölbýlishúsi í þeirra eigu. Framkvæmdastjórinn segir stjórnendur munu funda með lögmanni sínum á morgun.

Einkaframtakinu sé ekki alltaf treystandi fyrir miklu svigrúmi í skipulagi
Dóra Björt Guðjónsdóttir borgarfulltrúi Pírata segir augljóst að einkaframtakinu hafi ekki verið treystandi fyrir rúmum skipulagsheimildum í Breiðholti. Þess vegna séu reglur og kvaðir á skipulag mikilvægar. Hildur Björnsdóttir borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins segir reglur of strangar en tekur þó fram að mikilvægt sé að borgin hafi afskipti þegar það varði heildarhagsmuni.

Stór styrkur í Hveragerði frá Evrópusambandinu
Mikil gleði ríkir í Hveragerði þessa dagana því Hveragerðisbær var að fá 342 miljóna króna styrk frá Evrópusambandinu vegna byggingar nýrrar skolphreinsistöðvar í bænum.

Fer úr Efstaleiti yfir til SFS
Benedikt Sigurðsson sagði skilið við fréttastofu RÚV og hefur nú verið ráðinn aftur til starfa hjá Samtökum fyrirtækja í sjávarútvegi. Þar starfaði hann áður sem upplýsingafulltrúi.

Hagsmunir stóriðjunnar að hræða þjóðina með orkuskorti
Samtök iðnaðarins segja að lausnin við hækkandi raforkuverði heimilanna skýr: auka þurfi framboð á orku með frekari virkjanaframkvæmdum en Landvernd segir málið ekki vera svo einfalt. Framkvæmdastjórar samtakanna tveggja tókust á um orkumálin í Sprengisandi í dag.

Harmleikur í Noregi: Nágrannar höfðu þungar áhyggjur af fjölskyldunni
Lögregla í Noregi handtók í gær konu sem grunuð er um að hafa myrt móður sína og bróður í bænum Ski, skammt suður af Osló. Lögregla hefur lagt hald á vopn sem hún telur að sé morðvopnið.

Kona lést í skotárás í Lundúnum
Kona á fimmtugsaldri lést þegar skothríð hófst í norðurhluta Lundúna í gærnótt. Tveir karlmenn á fertugsaldri voru særðir og er annar þeirra þungt haldinn á sjúkrahúsi.

Nýtt bílastæði hafi kostað gríðarlegt fjármagn
Nýtt bílastæði innan varnargarðanna við Bláa lónið var opnað í fyrsta skipti í dag eftir hamfarir sem fylgdu eldgosi á svæðinu í nóvember. Framkvæmdastjóri segir nýja stæðið hafa kostað gífurlegt fjármagn og vinnu. Þá hefur Grindavíkurvegur nú einnig verið opnaður umferð.

Vendingar við Bláa lónið og tvöfalt morð í Noregi
Nýtt bílastæði innan varnargarðanna við Bláa lónið var opnað í fyrsta skipti í dag eftir hamfarir sem fylgdu eldgosi á svæðinu í nóvember. Framkvæmdastjóri segir nýja stæðið hafa kostað gífurlegt fjármagn og vinnu. Þá hefur Grindavíkurvegur nú einnig verið opnaður umferð. Við fjöllum um málið í hádegisfréttum Bylgjunnar klukkan 12.

Myndir ársins: Miskunnarleysi hrauneðjunnar og sigurvíma frambjóðandans
Sumum atburðum er erfitt, og jafnvel ómögulegt, að lýsa með orðum. Þess vegna eru ljósmyndir nauðsynlegur þáttur í fréttaflutningi vef- og prentmiðla. Ein mynd, römmuð inn af reyndu auga og tekin á hárréttu augnabliki, getur vakið tilfinningar sem erfitt væri að koma til skila til lesandans með öðrum hætti.