Hitinn nær upp í tíu stig Veðurstofa Íslands spáir hita þrjú til tíu stig í dag, heitast á suðausturlandi. Úrkomubakki liggur yfir Austurlandi, norðvestan kaldi eða strekkingur. Veður 18.4.2026 07:36
Rólegheitaveður og smá skúrir Veðurstofan gerir ráð fyrir að í dag og á morgun verði rólegaheita suðlæg eða breytileg átt. Smá skúrir sunnan- og vestantil, en víða léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi. Veður 17.4.2026 06:58
Víða skúrir en hiti gæti skriðið yfir tólf stig Dálítið úrkomusvæði liggur nú yfir austanverðu landinu fram eftir degi og gæti legið þoka eða súld sums staðar eftir að úrkomubakkinn hverfur. Veður 16.4.2026 06:56
Útlit fyrir vorveður á næstu dögum Hiti mun ná allt að níu stigum næstu daga en í dag nálgast víðáttumikil og djúp lægð landið úr suðaustri og því má búast við vaxandi norðaustanátt fram eftir degi. Mjög hvasst verður í Öræfum um tíma í kvöld og geta hviður farið upp í allt að 35 m/s. Veður 11.4.2026 07:25
Minnkandi vindur og stöku él Dagurinn í dag byrjar með minnkandi vindi og stöku éljum á víð og dreif. Það mun létta til á norðanverðu landinu, en einnig sunnanlands eftir hádegi. Veður 10.4.2026 07:09
Víða skúrir og hvessir eftir hádegi Veðurstofan gerir ráð fyrir sunnan og suðvestan vindi í dag, fimm til þrettán metrum á sekúndu en aðeins hvassari eftir hádegi. Veður 9.4.2026 07:06
Allhvass vindur og rigning Veðurstofa Íslands spáir suðaustan átt þrettán til tuttugu metrar á sekúndu og rigningu en suðlægri átt, átta til fimmtán metrar á sekúndu og skúrir með morgninum. Veður 8.4.2026 07:35
Önnur lægð nálgast landið Veðurstofa Íslands spáir sunnan þrettán til tuttugu metrum á sekúndu og rigningu eða skúrum. Hiti þrjú til tíu stig. Veður 7.4.2026 07:18
Fylgstu með óveðrinu ganga yfir Austanbylur gengur yfir landið í dag, annan í páskum, og veðurviðvaranir hafa þegar tekið gildi víða. Veður 6.4.2026 09:26
Vaktin: Austanbylur annan í páskum Páskahretið setti strik í reikning ferðalanga um allt land en gular og appelsínugular viðvaranir tóku gildi eftir hádegi í dag. Í vaktinni hér að neðan var fylgst með áhrifum veðursins. Veður 6.4.2026 07:21
Loka Holtavörðuheiði í hádeginu og um Suðurlandið strax í fyrramálið Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu biðlar til fólks á leiðinni til og frá höfuðborgarsvæðinu að gera slíkt áður en versta veðrið skellur á eða eftir að því slotar. Holtavörðuheiði verður lokað í hádeginu og mestöllu Suðausturlandinu strax í fyrramálið. Veður 5.4.2026 16:21
Viðvaranirnar appelsínugular og hviður yfir 40 metrum á sekúndu Viðvaranirnar gulu eru orðnar appelsínugular og spáð er staðbundnum hviðum í Faxaflóa og með suðurströndinni yfir fjörutíu metrum á sekúndu. Veður 5.4.2026 10:33
Logn í dag á undan storminum á morgun Hægur vindur er á suðvesturlandi í dag en víðast hvar annars staðar er spáð norðaustanátt 8–13 m/s og lítilsháttar éljum. Hiti verður í kringum frostmark yfir daginn, annars 0–8 stiga frost. Á morgun hvessir þó hressilega. Veður 5.4.2026 08:36
Mæla með að fólk leggi fyrr af stað Vegna veðurs biður lögregla ferðalanga um að huga að því að leggja fyrr af stað um páskana, þar sem gular veðurviðvaranir taka gildi á mánudag, annan í páskum. Viðvaranirnar verða mögulega færðar upp á appelsínugult. Veður 4.4.2026 19:05
Gul viðvörun vegna austan stórhríðar annan í páskum Veðurstofan hefur gefið út gula viðvörun vegna austan stórhríðar á landinu öllu á mánudag. Viðvörunin tekur gildi klukkan átta á mánudagsmorgun og er í gildi þar til klukkan fjögur aðfaranótt þriðjudags. Viðvaranir verða mögulega uppfærðar í appelsínugular á morgun. Veður 4.4.2026 16:07
Þungfært víða um land Víða er þungfært um landið allt og kalt. Á vef Vegagerðar má sjá að á Vestfjörðum og Norðurlandi er snjóþekja og hálka og þungfært eða þæfingar. Á Norðausturlandi er lokað um Mývatns- og Möðrudalsöræfi og Vopnafjarðarheiði. Mokstur átti að hefjast um klukkan átta. Veður 4.4.2026 09:40
Kalt í veðri miðað við árstíma Áfram snjóar á Norðaustur- og Austurlandi og sunnan heiða má búast vði éljum, einkum við ströndina. Hvessir á Austurlandi í kvöld og hiti í kringum frostmark um allt land yfir daginn en 0 til 8 stiga frost að næturlagi. Veður 4.4.2026 07:36
Snjóflóð skammt frá borginni líklega af mannavöldum Nokkur snjóflóð hafa verið skráð af ofanflóðavaktinni í dag, meðal annars í Móskarðshnjúkum, en öll eru þau í minni kantinum. Talsverð snjókoma hefur verið víða á landinu, á Austfjörðum heldur áfram að snjóa og hvessir í kvöld. Veður 3.4.2026 20:01
Þungbúið fyrir norðaustan en heiðskírt víða annars staðar Gular viðvaranir sem gefnar voru út fyrr í vikunni vegna hvassviðris og ofankomu runnu út í gærkvöld. Áfram snjóar á Norðaustur- og Austurlandi í dag en einnig má búast við stöku éljum á Suður- og Vesturlandi. Veður 3.4.2026 07:36
Gular viðvaranir taka gildi í enn eitt skiptið Gular viðvaranir hafa verið gefnar út og tekið gildi víða um land enn á ný. Í hugleiðingum veðurfræðings segir að búast megi við hvassri suðaustanátt og ofankomu í flestum landshlutum í dag. Veður 2.4.2026 07:38
Gular viðvaranir vegna storms í kvöld og á morgun Gular viðvaranir hafa verið gefnar út vegna veðurs á morgun. Fyrstu viðvaranir taka gildi seint í kvöld og seinustu viðvaranir renna úr gildi annað kvöld. Veður 1.4.2026 13:14
Hæðarhryggur yfir landinu í dag og stormur í nótt Hæðarhryggur fer yfir landið í dag. Þá lægir fyrir hádegi á vestanverðu landinu og dregur smám saman úr éljum, en áfram vestan tíu til 15 metrar á sekúndu austanlands fram eftir degi. Hiti verður á bilinu eitt til sex stig, en nálægt frostmarki austanlands. Veður 1.4.2026 07:19
Lægð með snjókomu fer hratt yfir landið Samkvæmt veðurspá Veðurstofunnar snýst í vestan átta til fimmtán metra á sekúndu með éljum, en fimmtán til 23 metra á sekúndu um tíma austanlands með skafrenningi, einkum á fjallvegum. Hiti verður í kringum frostmark. Veður 31.3.2026 07:20
Snýst í austan og suðaustan í kvöld með snjókomu og slyddu Í dag er spáð suðvestan og vestan fimm til þrettán metrum á sekúndu og dálitlar skúrir eða él, en að mestu bjart og þurrt austanlands. Snýst í austan- og suðaustanátt seint í kvöld með snjókomu eða slyddu. Veður 30.3.2026 07:25