
Fréttir

Þjóðhátíð í Nuuk vegna opnunar flugvallarins
Boðað hefur verið sannkallaðrar þjóðhátíðar í Nuuk á fimmtudag með tónleikum, veisluhöldum og flugeldasýningu. Tilefnið er opnun nýs alþjóðaflugvallar og fyrsta lending stórrar farþegaþotu í höfuðstað Grænlands.

Jarðakaup fjárfesta ógn við matvælaöryggi og nýtt húsnæði Stuðla
Bændasamtökin telja þjóðar-og fæðuöryggi stefnt í voða vegna jarðakaupa innlendra og erlendra spákaupmanna. Framkvæmdastjóri þeirra segir stjórnvöld hafa sofið á verðinum. Fjallað verður um málið í kvöldfréttum Stöðvar 2.

Minnst þrír foreldrar verkfallsbarna hafi misst vinnuna
Móðir barns í leikskóla þar sem verkfall hefur staðið yfir í fjórar vikur, segir minnst þrjá foreldra hafa misst vinnuna vegna verkfallsins. Margir hafi klárað allt sumarorlof næsta árs, og flestir sjái fram á töluvert lægri útborgun mánaðarmótin fyrir jól.

Fundi frestað hjá kennurum en læknar funda fram á kvöld
Fundum samninganefnda kennara annars vegar og ríkis- og sveitarfélaga hins vegar í Karphúsinu var frestað um klukkan fjögur í dag. Ríkissáttasemjari segir nefndirnar eiga vinnufundi í fyrramálið en hittist svo hjá honum klukkan eitt á morgun.

„Þetta er óhjákvæmilegur meðafli“
Bjarni Benediktsson matvælaráðherra hefur gefið út 3,800 tonna kvóta á djúpkarfa, en ráðlagður heildarafli Hafrannsóknarstofnunnar fyrir fiskveiðiárið er 0 tonn. Jón Gunnarsson, aðstoðarmaður matvælaráðherra, segir að djúpkarfi sé óhjákvæmilega veiddur sem meðafli, og með kvótanum sé hægt að nýta hann í verðmætasköpun.

Þrjár sviðsmyndir í skoðun en miða við óbreyttan kjördag
Skrifstofa Landskjörstjórnar fundaði nú síðdegis með formönnum yfirkjörstjórna landsbyggðarkjördæmanna þriggja, vegna aftakaveðurspár fyrir komandi kjördag. Framkvæmdastjóri Landskjörstjórnar segir enn stefnt að því að kjörfundur fari fram alls staðar á laugardag, en hvorki fólk né atkvæði verði lögð í hættu.

Nemendur fara í húsnæði KSÍ vegna rakamyndunar
Nemendur í fjórða bekk Laugarnesskóla í Reykjavík munu flytja tímabundið í húsnæði KSÍ vegna framkvæmda í aðalbyggingu skólans.

Stöðug virkni í eldgosinu frá því í gær
Virkni á gosstöðvunum hefur verið frekar stöðug síðan í gær samkvæmt nýrri tilkynningu frá Veðurstofunni. Þar kemur einnig fram að gosórói hafi haldist jafn síðan í gær, í takti við stöðuga gosvirkni í gígnum í nótt.

SpaceX skýtur kjarnorkuknúnum dróna út í geim
Forsvarsmenn Geimvísindastofnunar Bandaríkjanna (NASA) hafa samið við SpaceX um að senda kjarnorkuknúið könnunarfar af stað til tunglsins Títan, sem er á braut um Satúrnus, árið 2028. Skjóta á Dragonfly-þyrludrónanum á loft með Falcon Heavy eldflaug SpaceX en ferðin sjálf mun taka sex ár.

Leggja til að rífa skólann því úrbætur yrðu of áhættusamar
Foreldrum barna í leikskólanum Laugasól var tilkynnt í gær að járnbending húsnæðis leikskólans væri ekki góð. Verkfræðistofur leggja til að húsið verði rifið.

Lofaði stuðningi og uppskar stuðning kvikmyndagerðarmanna
Hópur kvikmyndagerðarmanna hefur lýst yfir stuðningi við Lilju Dögg Alfreðsdóttur, menningar- og viðskiptaráðherra. Lilja kynnti á dögunum framtíðarsýn og aðgerðaáætlun í málefnum kvikmyndagerðar.

Sagðist fjárhagslegur þræll móður barnsins sem hann braut á
Karlmaður hefur hlotið þriggja mánaða fangelsisdóm, skilorðsbundinn til tveggja ára, í Héraðsdómi Reykjavíkur fyrir að taka þrjár myndir af berum kynfærum og rassi barnungs drengs á meðan hann svaf og síðan sent konu myndirnar á samskiptamiðlinum WhatsApp.

Funda vegna slæmrar veðurspár fyrir kjördag
Landskjörstjórn fundar nú síðdegis vegna slæmrar veðurspár á kjördag á Austurlandi og Norðvesturlandi.

Sprengdu tuttugu hús á tveimur mínútum
Ísraelski herinn tilkynnti í dag umfangsmiklar loftárásir í Beirút, höfuðborg Líbanon. Þær voru tilkynntar skömmu áður en Benjamín Netanjahú, forsætisráðherra Ísrael, mun funda með ráðherrum sínum um mögulegt vopnahlé milli Ísraela og Hezbollah-samtakanna.

Skemmtilegustu kappræður kosningabaráttunnar
Kappleikarnir, öðruvísi og skemmtilegur kosningaþáttur, eru beinni útsendingu og opinni dagskrá á Stöð 2 og Vísi í kvöld. Frambjóðendur tíu flokka mætast í myndveri og svara spurningum um þau mál sem helst brenna á ungu fólki.

Vildi pening í skiptum fyrir falleg orð í eyru Trumps
Einn af helstu ráðgjöfum Donalds Trump, nýkjörins forseta Bandaríkjanna, er grunaður um að hafa beðið fólk sem var til skoðunar fyrir nýja ríkisstjórn Trumps um peninga. Í staðinn myndi hann leggja inn gott orð um fólkið í eyru Trumps.

Einn með stöðu sakbornings þrátt fyrir tvo þjófa
Rannsókn á margra milljóna króna þjófnaði í Hamraborg í Kópavogi, sem var framið í byrjun mars, er lokið og hefur verið sent til ákærusviðs lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.

Leggja til að fleiri heilbrigðisstéttir geti gefið út vottorð
Starfshópur á vegum heilbrigðisráðuneytisins leggur til að fleiri heilbrigðisstéttum verði heimilt að gefa út vottorð í einstaka tilfellum og að dregið verði úr óþörfum vottorðaskrifum vegna stuttra veikindafjarvista frá skóla eða vinnu.

Tóku fyrstu skóflustunguna að nýrri verknámsaðstöðu í FB
Fyrsta skóflustungan að nýrri verknámsaðstöðu í Fjölbrautaskólanum í Breiðholti í Reykjavík var tekin í morgun.

Á góðri leið með að landa samningi í dag eða á morgun
Samninganefndir lækna og ríkis komu saman í Karphúsinu klukkan níu til að leggja lokahönd á kjarasamninga. Steinunn Þórðardóttir formaður Læknafélags Íslands segir líklegt að fundað verði í allan dag.

Komin með skýra mynd af andláti móðurinnar
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu telur sig vera komna með skýra mynd af atvikum þegar tæplega sjötug kona lést í Breiðholti í Reykjavík þann 13. október síðastliðinn. Sonur hennar er grunaður um að hafa ráðið henni bana.

Um 43 prósent vilja aukinn einkarekstur í heilbrigðiskerfinu
Um 43 prósent landsmanna vilja auka einkarekstur í heilbrigðiskerfinu en um 30 prósent halda rekstrarforminu óbreyttu. Alls vilja 27 prósent draga úr einkarekstri. Þá vilja 38 prósent auka einkarekstur í samgöngumálum og 28 prósent aukinn einkarekstur í menntakerfinu.

Fundu Diego heilan á húfi í heimahúsi
Skeifukötturinn Diego er fundinn, heill á húfi. Hans hafði verið leitað af fjölda fólks síðan í fyrradag. Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu segir köttinn hafa verið tekinn ófrjálsri hendi, en hann fannst í heimahúsi í morgun.

Svarar Kára fullum hálsi
Snorri Másson, oddviti Miðflokksins í Reykjavík suður, telur það boða gott að Stefán heitinn Jónsson, fyrrverandi alþingismaður, hafi vitjað sonar síns Kára Stefánssonar í draumi vegna þingframboðs Snorra.

Lokahönd lögð á kjarasamning lækna í Karphúsinu og Kappleikar í kvöld
Í hádegisfréttum tökum við stöðuna á kjarasamningsgerð í Karphúsinu en verið er að leggja lokahönd á samnig við lækna þar í dag.

Þúsundir áhugasamra sjálfboðaliða en engin formleg lögreglurannsókn
Hvarf kattarins Diego er ekki formlega komið inn á borð lögreglu en fjöldi sjálfboðaliða tekur þátt í leit að kettinum sem var numinn á brott úr Skeifunni í fyrradag. Sjálfboðaliði hjá Dýrfinnu segist sjaldan hafa orðið vör við annan eins áhuga á leit að dýri.

HR-ingar spyrja frambjóðendur spjörunum úr
Lögrétta, félag laganema við Háskólann í Reykjavík, stendur fyrir hádegismálþingi með fulltrúum þeirra flokka sem bjóða fram til Alþingis í komandi þingkosningum.

Segir Miðflokksmönnum að „gráta minna og brosa meira“
Fyrrverandi bæjarfulltrúi Miðflokksins, sem gekkst við því í gær að hafa kostað færslu á Facebook-síðu flokksins í Suðurkjördæmi í óþökk fyrrum samherja sinna, stendur fast á sínu og sér lítið athugavert við það sem hann gerði. Hann segist eiga tilkall til síðunnar sem stofnandi hennar.

Segja allt of mikið gert úr hneykslismálum stjórnmálamanna
Hneykslismál stjórnmálamanna hafa alls ekki jafn mikið vægi hjá kjósendum og þeim er gefið í stjórnmálaumræðunni og í fjölmiðlum. Þetta segir Eiríkur Bergmann, stjórnmálafræðiprófessor, og Þóra Ásgeirsdóttir, framkvæmdastjóri Maskínu, tekur undir.

Metárás á innviði með 188 drónum og fjórum skotflaugum
Rússar gerðu sína umfangsmestu drónaárás á Úkraínu í nótt. Ráðamenn í Úkraínu segja 188 dróna hafa verið notaða til árásarinnar en Rússar hafa aldrei áður notað svo marga dróna á einum degi. Árásin beindist að orkuvinnviðum í Úkraínu og ollu drónarnir skemmdum á íbúðarhúsum í nokkrum héruðum landsins.