
Fréttir

„Hefur aldrei verið neitt persónulegt“
Dagur B. Eggertsson, nýkjörinn þingmaður og fyrrverandi borgarstjóri, og Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir, líka nýkjörinn þingmaður og fráfarandi borgarfulltrúi, hafa lengst af verið í sitt hvoru liðinu. Dagur hefur verið í meirihluta í borginni en Kolbrún í minnihluta. Nú eru flokkar þeirra, Samfylking og Flokkur fólksins, hins vegar í stjórnarmyndunarviðræðum.

Tveggja bíla árekstur við Holtagarða
Betur fór en á horfðist þegar sendibíll og fólksbíll rákust á við gatnamót Sæbrautar og Holtavegar í austurhluta Reykjavíkur á tíunda tímanum. Enginn slasaðist alvarlega í árekstrinum.

Vara við „gervistéttarfélagi“ og „svikamyllu“
Stéttarfélagið Efling hefur sent frá sér tilkynningu þar sem varað er við félaginu Virðingu, sem sagt er „gervistéttarfélag“. Félagið sé raunar svikamylla, rekin af atvinnurekendum í því skyni að skerða laun og réttindi starfsfólks.

Þung bankhljóð heyrðust kvöldið áður en hjónin fundust látin
Norðfirðingur á fimmtugsaldri sem er grunaður um að hafa myrt hjón á áttræðisaldri á heimili þeirra í Neskaupstað í ágúst fannst blóðugur í bíl hjónanna að aka um Snorrabraut í Reykjavík. Þar var hann handtekinn af sérsveitinni, en hann mun hafa verið með ýmsa muni í eigu hinna látnu með sér.

Segja Ísraelsmenn fremja þjóðarmorð á Gaza
Alþjóðlegu mannréttindasamtökin Amnesty International segja Ísraelsmenn hafa framið, og halda áfram að fremja, hópmorð gegn Palestínumönnum á Gaza. Hópmorð eru jafnan kölluð þjóðarmorð í daglegu tali. Samkvæmt nýrri skýrslu samtakanna hafa ísraelsk stjórnvöld gengið fram í þeim tilgangi að útrýma Palestínubúum á Gaza.

Tvö börn í lífshættu eftir skotárás í leikskóla í Kalíforníu
Tvö börn á aldrinum fimm til sex ára eru lífshættulega særð eftir að hafa orðið fyrir skotum í skólanum sem þau sækja í Kalíforníu í Bandaríkjunum.

Hvers vegna eru allir að tala um „borgaralega“ ríkisstjórn?
Borgaraleg gildi, borgaralegir flokkar, og borgaraleg ríkisstjórn eru hugtök sem hafa verið áberandi í kosningabaráttunni og núna strax í kjölfar kosninga.

Gular viðvaranir og varasamt ferðaveður á Austurlandi
Gul veðurviðvörun tekur gildi á Austfjörðum og Suðausturlandi klukkan átta fyrir hádegi í dag. Snjókoma, vindur og almennt slæmt veður til ferðalaga verður meginstefið í báðum landshlutum.

Mögulegt að dregið hafi úr óróa
Stöðug virkni var í eldgosinu á Sundhnúkagígaröðinni í nótt. Mögulega hefur gosórói farið lækkandi síðustu sólarhringa.

Leita enn byssumannsins og lofa peningaverðlaunum
Lögreglan í New York-borg í Bandaríkjunum leitar enn logandi ljósi að vísbendingum um mann sem skaut annan til bana fyrir utan hótel á Manhattan í gær.

Hægri hönd Selenskís kynnist Trump-liðum
Helsti ráðgjafi Vólódímírs Selenksí, forseta Úkraínu, er sagður í Bandaríkjunum þar sem hann ætlar að funda með ráðgjöfum og verðandi embættismönnum Donalds Trump, verðandi forseta. Andríj Jermak er sagður hafa hitt Susie Wiles, verðandi starfsmannastjóra Hvíta hússins, sem hefur lengi unnið með Trump.

Háskólafólk mótmælir gjaldtöku á nemendur utan EES
Fjöldi deilda innan Háskóla Íslands mótmælir fyrirhuguðum breytingum á gjaldtöku á nemendur í háskólanum sem eru frá löndum utan EES. Þau segja gjaldtökuna mismuna á grundvelli efnahags, þjóðernis og uppruna. Nemendum muni fækka og einstaka deildir líða fyrir fækkunina. Þá muni efling íslensku og íslenskukennslu líða mest fyrir breytinguna.

Ekki allir sammála um magn jólaskreytinga eða litaval
Hildur Ýr Viðarsdóttir formaður Húseigendafélagsins segir að á þessum árstíma fjölgi alltaf fyrirspurnum til félagsins um skreytingar við hús. Fólk velti því fyrir sér hversu mikið megi skreyta og hvort eitthvað sé of mikið. Þá sé einnig kvartað yfir of miklum skreytingum og spurt um reglur um til dæmis samræmdar skreytingar og kostnað við skreytingarnar.

Auðjöfur og einkageimfari mun stýra NASA
Donald Trump, verðandi forseti Bandaríkjanna, tilkynnti í kvöld að hann ætlaði að tilnefna auðjöfurinn Jared Isaacman sem yfirmann Geimvísindastofnunar Bandaríkjanna (NASA). Auðjöfurinn hefur verið viðloðinn geimiðnað Bandaríkjanna og fór meðal annars í fyrstu borgaralegu geimgönguna, fyrr á þessu ári.

Franska ríkisstjórnin fallin
Ríkisstjórn Michel Barnier, forsætisráðherra Frakklands, er fallin. Vantrauststillaga gegn ríkisstjórninni var samþykkt á þingi í kvöld, eins og stefnt hefur í á undanförnum dögum. Þingmenn kalla nú eftir afsögn Emmanuel Macron, forseta.

Ákæra forsetann formlega vegna herlaga
Stjórnarandstaða Suður-Kóreu hefur formlega lagt fram ákæru gegn Yoon Suk Yeol, forseta landsins, vegna herlaga sem hann beitti óvænt á í gær og neyddist skömmu síðar til að fella úr gildi. Margir af starfsmönnum forsetans og ráðgjöfum hans hafa sagt af sér í dag.

Bankarnir of bráðir í vaxtahækkunum
Seðlabankastjóri telur að bankarnir hafi verið of bráðir á sér þegar þeir hækkuðu vexti á verðtryggðum lánum í kjölfar síðustu stýrivaxtalækkunnar. Verið sé að kanna hvort draga megi úr kröfum til fyrstu kaupenda.

Rútuslys austan við Hala í Suðursveit
Í tilkynningu frá lögreglunni segir að umferðarslysið hafi orðið á sjöunda tímanum í kvöld á Þjóðvegi 1 austan við Hala í Suðursveit. Þar hafi rúta með um tuttugu manns farið út af veginum.

Traustar viðræður, verðhækkanir og jólastuð
Kristrún Frostadóttir formaður Samfylkingarinnar segir fullt traust ríkja á milli flokkanna þriggja sem nú reyna að mynda ríkisstjórn. Allir séu meðvitaðir um að viðræðurnar megi ekki dragast á langinn en þær hófust formlega í dag. Við ræðum við Kristrúnu í kvöldfréttum Stöðvar 2 og fylgjumst með gangi viðræðna.

Rannsókn á manndrápi við Krýsuvíkurveg til saksóknara
Rannsókn Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu á andláti tíu ára stúlku sem fannst látin við Krýsuvíkurveg í september er lokið. Málið er nú komið á borð héraðssaksóknara.

Launmorð á götum New York
Umfangsmikil leit stendur yfir í New York í Bandaríkjunum að manni sem skaut mann til bana fyrir utan hótel á Manhattan. Brian Thompson, forstjóri UnitedHealthcare, eins stærsta sjúkratryggingafyrirtækis Bandaríkjanna, var skotinn ítrekað þar sem hann var að halda fjárfestaráðstefnu.

Tveir grunaðir um frelsissviptingu
Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu barst í dag tilkynning um rán og frelsissviptingu í íbúð í Breiðholti. Tveir voru handteknir þegar lögregluþjóna bar að garði og settir í fangaklefa.

Slökkvilið kallað út vegna bruna í Stjörnugróf
Slökkvilið er nú á vettvangi bruna í Stjörnugróf í Bústaðahverfi þar sem tilkynnt var um eld um fimm mínútur í fimm. Búið var að slökkva eldinn þegar slökkvilið kom á vettvang en enn er unnið á vettvangi.

Þessi voru oftast strikuð út í Reykjavík
Þó nokkrir frambjóðendur til Alþingis í Reykjavíkurkjördæmunum tveimur voru strikaðir út af lista oftar en hundrað sinnum. Guðlaugur Þór Þórðarson var sá oddviti sem oftast var strikaður út, en Jón Gnarr fékk flestar útstrikanir í Reykjavíkurkjördæmi suður.

Hafa ekki enn lent í vandræðum í viðræðum
Formenn Samfylkingar, Viðreisnar og Flokks fólksins byrjuðu að funda klukkan 9.30 í morgun og funduðu til um 16 með fáum hléum. Kristrún segir markmið formannanna að ljúka viðræðum eins fljótt og þær geta. Þær hafi byrjað á því að ræða stóru málin og haldi áfram á morgun.

Plötusnúður fagnar sigri gegn Reyni Traustasyni
Atli Viðar Þorsteinsson, betur þekktur sem plötusnúðurinn Atli kanill, fagnar sigri í minningargreinarmáli sínu gegn Reyni Traustasyni ritstjóra Mannlífs. Hann upplýsir að Reynir ætli ekki að sækja um áfrýjunarleyfi til Hæstaréttar.

Var að reyna að hjálpa en sýndi af sér stórfellt gáleysi
Steina Árnadóttir hjúkrunarfræðingur sýndi af sér stórfellt gáleysi þegar hún hellti næringardrykk upp í sjúkling með þeim afleiðingum að hann kafnaði.

Ætla að tryggja að einn af hverjum tíu sé nýliði
Innan við sólarhringur er í að hulunni verði svipt af því hvaða 251 listamaður fékk náð fyrir augum úthlutunarnefnda úr þeim átta sjóðum sem veita listamannalaun. Listamönnunum sjálfum hefur verið tilkynnt um niðurstöðuna. Þó nokkrir eru með böggum hildar og ganga slyppir og snauðir á braut. Lítið heyrist í fámennari hópnum, þeim sem anda léttar og fengu þriggja til tólf mánaða blessun á umsókn sinni.

Ekkert skapalón til fyrir myndun nýrrar ríkisstjórnar
Eiríkur Bergmann prófessor í stjórnmálafræði við Háskólann á Bifröst segir allan gang hafa verið á því í gegnum tíðina hversu langan tíma það hefur tekið fyrir flokka að mynda ríkisstjórn eftir kosningar. Það geti tekið daga, vikur eða mánuði. Hægt sé að horfa á málefnin eða setja sér markmið.

Funda áfram á morgun
Viðræður formanna Samfylkingar, Viðreisnar og Flokks fólksins hafa gengið vel í dag, og verður fram haldið á morgun.