Grunur um brot gegn barni í algjörum forgangi hjá lögreglu Jakob Bjarnar skrifar 18. mars 2026 10:59 Hið litla samfélag á Akranesi er slegið eftir að upp kom mál á leikskólanum Garðaseli en starfsmaður þar er grunaður um brot gegn barni. vísir/vilhelm Málið sem upp kom á Akranesi og snýst um grun um kynferðisbrot leikskólastarfsmanns gegn barni er í forgangi hjá Lögreglunni á Vesturlandi. Málið er á afar viðkvæmu stigi.
Þetta segir Ásmundur Kristinn Ásmundsson yfirlögregluþjónn. Áhyggjufullir foreldrar hafa sett sig í samband við fréttastofu og því meðal annars velt upp hvort atvik séu fleiri en það sem greint var frá í gær. Lögregla kannast ekki við það. Áhyggjufullir foreldrar Haldinn var fundur með foreldrum í gær þar sem þar sem fram komu leiðbeiningar um hvernig þau ættu að ræða við börn sín og eftir hverju þau ættu að hlusta. Þá er fullyrt að í dag muni nokkur tilvik til viðbótar verða tilkynnt til barnaverndarnefndar og fara þá til skoðunar. Ásmundur segir eitt atvik til skoðunar hjá lögreglu. „Á mánudaginn var aðili handtekinn grunaður um brot gegn barni. Við höfum ekki viljað tjá okkur neitt meira um þetta mál en að það er grafalvarlegt, er í algjörum forgangi hjá okkur og hefur sinn gang.“ Ásmundur vildi ekki segja meira, ekki hvort maðurinn væri enn í haldi lögreglu né nokkuð annað. Hann sagði málið afar viðkvæmt og að hann hefði fullan skilning á áhyggjum foreldra. Maðurinn með hreint sakavottorð Vísir greindi frá málinu í gær en óhætt er að segja að hið tiltölulega smáa samfélag á Akranesi sé slegið. Foreldrar velta því nú fyrir sér meðal annars hvernig það megi vera að maður, sem er ungur að árum og ráðinn var á leikskólann fyrir um mánuði, geti fengið svo greiðan aðgang að börnum, ekki síst í ljósi þess að ekki er langt um liðið síðan mál kom upp í Reykjavík, sama eðlis: Samkvæmt heimildum Vísis er erfitt við að eiga, viðkomandi mun vera með hreint sakavottorð, eins og allir sem ráðnir eru til að starfa við leikskóla. Þá er vert að hafa hugfast að viðkomandi, sem er ekki heimamaður en hefur tengsl við Akranes, hefur enn ekki verið fundinn sekur.
Akranes Ofbeldi gegn börnum Lögreglan Kynferðisofbeldi Leikskólar Lögreglumál Mest lesið Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir Innlent Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Innlent „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Innlent Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Erlent Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Erlent Ekið á fimm ára barn á hjóli Innlent Vilja formlega afsökun frá Selenskí Erlent Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Innlent Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Erlent Tilkynnt um tvær líkamsárásir Innlent Fleiri fréttir Harðari tónn en áður hafi verið sleginn Uppsagnir, undarleg taktík og umtöluð ræða Ekið á fimm ára barn á hjóli Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Skil næstu lægðar nálgast Tilkynnt um tvær líkamsárásir Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Stutt geti verið í kosningar Boðar fyrstu lögin og reglurnar gagnvart gervigreind Eldur á Hellu Slökkvilið kallað út í Hafnarfjörð Segir merkilegt að einkaskilaboð séu rædd á Alþingi Beitti úðavopni á vegfarendur Sextán ára unglingar sóttir í bæinn eftir afskipti lögreglu Svara verði í hvaða umboði skilaboðin voru send Maður á sextugsaldri með áverka á höfði eftir árás ungmenna Verður gervigreindin mennskari eða fólk eins og gervigreind? Efnahagsmálin, SÁÁ og skítapotturinn á Sprengisandi Skemmtistað lokað í miðborginni vegna fjölda ungmenna Söfnuðu 32 milljónum fyrir langveik börn Tómas kominn aftur til starfa Siðferðislegir hugleysingjar neiti að semja um frið Þyrlan lenti við Hörpu Daði spreytir sig í Gettu betur Ráðherra hafi hrakið hana úr starfi: „Ég mun aldrei gleyma svipnum á Ragnari“ Umdæmin mishrifin af fækkun embætta Tugir mættir til þess að mótmæla ríkisstjórninni Sjá meira