Fréttir
310 311 312 313 314 315 316 317 318 … 334 ›
Óvissustig vegna snjóflóðahættu í Mýrdal Óvissustigi vegna snjóflóðahættu hefur verið lýst yfir á Suðurlandi. Mikilli snjókomu og austan skafrenningi er spáð í Mýrdalnum í dag föstudag og fram í fyrramálið og er talið að í Mýrdalnum geti skapast snjóflóðahætta á þekktum stöðum. Innlent 19.1.2024 14:30
Gífurlegt magn af ís undir yfirborði Mars Mögulegt er að finna megi gífurlegt magn af ís undir yfirborðinu á Mars. Talið er að ef ísinn yrði bræddur gæti hann þakið reikistjörnuna með 1,5 til 2,7 metra djúpu hafi. Erlent 19.1.2024 14:22
Nýfætt barn fannst í innkaupapoka í London Nýfætt stúlkubarn fannst pakkað inn í handklæði í innkaupapoka í austurhluta Lundúna. Barninu heilsast vel á sjúkrahúsi þökk sé hundaeiganda sem fann það og hélt á því hita. Leit að móðurinni stendur yfir. Erlent 19.1.2024 14:20
Dagbjört hafnar því að hafa orðið manninum að bana Dagbjört Guðrún Rúnarsdóttir, sem er ákærð fyrir að bana tæplega sextugum karlmanni á heimili sínu í Bátavogi í Reykjavík í september í fyrra, neitar sök í málinu. Innlent 19.1.2024 13:39
Kallaðar út vegna vélsleðaslyss við Hamragarðaheiði Björgunarsveitir á Suðurlandi hafa verið kallaðar út vegna konu sem slasaðist í vélsleðaslysi á Hamragarðaheiði vestan við Eyjafjallajökul, skömmu eftir hádegi í dag. Innlent 19.1.2024 13:36
Neituðu að fara út í kuldann Hópur heimilislausra manna fór í setuverkfalli í gistiskýlinu á Granda í morgun. Þeir mótmæltu því að skýlinu sé lokað klukkan tíu í frosthörku þegar flestir liggi í flensu. Formaður Velferðarráðs hjá Reykjavíkurborg segir aðstöðu í skýlinu ekki fullnægjandi á daginn. Neyðaropnun hafi verið virkjuð og boðið upp á úrræði og þjónustu í Samhjálp yfir daginn. Innlent 19.1.2024 13:18
Héraðssaksóknari leitar að manni Héraðssaksóknari óskar eftir að ná tali af aðila á meðfylgjandi myndum vegna máls sem er til rannsóknar og varðar skemmdarverk á bifreið lögreglumanns þann 20. desember 2023. Innlent 19.1.2024 13:08
Prófuðu neðansjávardróna sem getur borið kjarnorkuvopn Yfirvöld í Norður-Kóreu segjast hafa gert tilraun með neðansjávardróna sem borið getur kjarnorkuvopn. Tilraunin er sögð hafa verið gerð í mótmælum við sameiginlegum heræfingum Bandaríkjanna, Japan og Suður-Kóreu sem fara fram í þessari viku. Erlent 19.1.2024 12:37
Rafmagn aftur komið á Grindavík Rafmagn er eftir komið á Grindavík eftir að hafa farið út um klukkan 7:15 í morgun vegna bilunar í stofnstreng sem liggur undir hrauni í kjölfar eldgossins um helgina. Innlent 19.1.2024 11:59
Rannsóknarnefnd um snjóflóðið í Súðavík Stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd Alþingis hefur sent þingforseta beiðni um skipan rannsóknarnefndar um snjóflóðið á Súðavík. Algjör samstaða ríkti um málið þvert á flokka innan nefndarinnar. Innlent 19.1.2024 11:57
Hádegisfréttir Bylgjunnar Í hádegisfréttum fjöllum við um ástandið í Grindavík en rafmagn fór af bænum í morgun þegar stofnstrengurinn inn í bæinn gaf sig, en hann er að hluta undir hrauni. Innlent 19.1.2024 11:32
Til skoðunar að fleiri í bið geti sótt um niðurgreiðslu Alls hafa fimmtíu einstaklingar sótt um niðurgreiðslu til Reykjavíkurborgar vegna barna sem eru 18 mánaða eða eldri og eru enn hjá dagforeldrum. Opnað var fyrir umsóknir um niðurgreiðslur í síðustu viku. Skóla- og frístundasvið skoðar nú hvort hægt sé að veita fleirum niðurgreiðslu. Innlent 19.1.2024 11:15
Staðan komi á óvart en samstaða ríki innan breiðfylkingarinnar Formaður VR segir stöðuna sem upp er komin í kjaraviðræðum breiðfylkingar stéttarfélaga við Samtök atvinnulífsins mjög alvarlega. Aðkoma stjórnvalda ætti að koma þeim sjálfum vel, enda sé markmið nýrra samninga að draga úr verðbólgu og vaxtastigi. Innlent 19.1.2024 11:01
Gular viðvaranir vegna austan storms Veðurstofan hefur gefið út gular viðvaranir á Suðurlandi og Suðausturlandi þar sem von er á austan stormi eða hvassviðri og hríð. Veður 19.1.2024 10:43
Fimm stöðugildi heimilislækna fara í sjúkraþjálfunarbeiðnir Formaður Læknafélagsins segir sóun víða í heilbrigðiskerfinu, sérstaklega í öldrunarþjónustu, hjá heilsugæslunni, rafrænum og úreltum tölvukerfum og vegna biðlista. Ein leið til að minnka sóun væri að ryðja tilvísunarkerfinu úr vegi. Innlent 19.1.2024 10:35
Hreindýrakvótinn minni en á síðasta ári Heimilt verður að veiða átta hundruð hreindýr á þessu ári, rúmlega hundrað færri en á því síðasta. Innlent 19.1.2024 10:27
Segist tuttugu árum yngri, vitsmunalega séð Donald Trump, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna og núverandi forsetaframbjóðandi, stærði sig af því á kosningafundi í New Hampshire á miðvikudagskvöld að hafa þekkt hval frá öðrum dýrum, eins og gíraffa og tígrisdýri, þegar hann var forseti. Hann sagðist líða eins og hann væri 35 ára gamall, en ekki 77 ára. Erlent 19.1.2024 09:59
Ræða að vísa deilunni formlega til ríkissáttasemjara Samninganefnd breiðfylkingar stéttarfélaga kemur saman klukkan tíu í dag til að ræða næstu skref í harðnandi kjaradeilu við Samtök atvinnulífsins. Formaður Starfsgreinasambandsins telur líklegt að niðurstaða fundarins verði að vísa deilunni formlega til ríkissáttasemjara. Innlent 19.1.2024 09:32
Snuðuðu mann með heilaskaða um ellefu milljónir króna Tryggingafélagið TM mátti ekki skerða bætur til karlmanns sem slasaðist alvarlega á hestbaki. Þetta er niðurstaða Héraðsdóms Reykjavíkur sem taldi ósanngjarnt og óheiðarlegt af fyrirtækinu að bera fyrir sig kvittun fyrir fullnaðargreiðslu. Innlent 19.1.2024 09:04
Háskólarnir sameinist í háskólasamstæðu Lagt verður til við háskólaráð Háskólans a Hólum og Háskóla Íslands að skólarnir sameinist og að rekstrarform sameinaðs skóla verði það sem kallað er háskólasamstæða. Um er að ræða nýnæmi hér á landi en þekkist víða erlendis þar sem hugtakið „kampus“ er notað. Innlent 19.1.2024 08:33
Rafmagnslaust eftir að stofnstrengur undir hrauni gaf sig Rafmagn fór af Grindavík á áttunda tímanum í morgun þegar stofnstrengur, sem er undir hrauni, gaf sig. Unnið er að því að koma rafmagni á bæinn. Innlent 19.1.2024 08:27
Engan bilbug á Hútum að finna þrátt fyrir árásir Bandaríkjanna Bandaríski herinn hélt árásum sínum á Húta í Jemen áfram í nótt. Joe Biden Bandaríkjaforseti segir árásirnar, sem nú eru orðnar fimm á einni viku, ekki hafa borið tilætlaðan árangur. Erlent 19.1.2024 08:03
Gervihnettir gætu tekið við símamöstrum Íslensk stjórnvöld hafa nú til skoðunar hvort landið eigi að taka þátt í áætlun Evrópusambandsins um öryggisfjarskiptakerfi um gervihnetti. Markmið þess er að tryggja aðgengi að hraðvirkum, öruggum og hagkvæmum fjarskiptum á heimsvísu. Innlent 19.1.2024 07:33
Útlit fyrir hvassan vind með snjókomu syðst Útlit er fyrir norðaustankalda og lítilsháttar él norðan heiða í dag, en annars bjart með köflum. Síðdegis er búist við vaxandi austanátt og að þykkni upp sunnanlands, en útlit er fyrir hvassan vind með snjókomu eða slyddu syðst í kvöld. Veður 19.1.2024 07:23
Bílastæðin við Landmannalaugar verða ekki stækkuð í bráð Áform um stækkun bílastæðis við Landmannalaugar hafa verið slegin af með úrskurði Úrskurðanefndar umhverfis- og auðlindamála. Heildarmat skorti og samræmi við lög um stjórn vatnamála. Innlent 19.1.2024 07:01
Segir áætlaðan vindmyllugarð alfarið innan marka Rangárþings ytra Landsvirkjun segir greinilega einhvern misskilning á ferð hjá sveitarstjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps um staðsetningu áætlaðrar uppbyggingar vindmyllugarðs. Fyrirhugaður Búrfellslundur sé alfarið innan marka nágrannasveitarfélagsins Rangárþings ytra. Innlent 19.1.2024 06:42
Mótmælir stofnun Palestínuríkis að loknum átökum Benjamín Netanjahú forsætisráðherra Ísrael segist hafa mótmælt því við Bandaríkin að Palestínuríki verði stofnað þegar átökunum á Gasaströndinni lýkur. Um 25 þúsund Palestínumenn hafa verið drepnir á Gasa frá því í október. Erlent 19.1.2024 06:27
„Enginn íslenskur listamaður þvingaður til þátttöku í Eurovision“ Það verður enginn íslenskur tónlistarmaður þvingaður til þátttöku í Eurovision. Þetta sagði útvarpsstjóri eftir mótmæli tónlistarfólks við Ríkisútvarpið í dag. Minnst 550 tónlistarmenn vilja að RÚV beiti sér fyrir því að Ísraelum verði meinuð þátttaka í keppninni ellegar dragi Íslendingar sig úr henni. Innlent 19.1.2024 00:27
Býður Grindvíkingum upp á frítt skutl Hafnfirðingur sem býður Grindvíkingum upp á frítt skutl á „stór-Hafnarfjarðarsvæðinu“ segir viðbrögðin hafa verið ótrúleg. Enn sem komið er sé bara eitt skutl til Keflavíkur fyrirhugað en ef eftirspurnin eykst er hann tilbúinn að skutla fram yfir helgi. Innlent 18.1.2024 23:01
„Eykur óvissuna enn og aftur“ Otti Rafn Sigmarsson, björgunarsveitarmaður hjá Þorbirni, segir að sér hafi liðið vel í Grindavík í dag þar sem hann, ásamt fleirum, vann í bænum. Vinnu við að koma hita og rafmagni á hús í Grindavík var frestað í dag vegna snjóþyngsla, en björgunarsveitir og slökkvilið voru í bænum og unnu að því að moka snjó. Innlent 18.1.2024 22:12