Innlent

Starfs­maður Lands­nets fluttur er­lendis á sjúkra­hús

Lögreglan á Vesturlandi segir liggja nokkuð ljóst fyrir hvað gerðist þegar starfsmaður Landsnets slasaðist í alvarlegu vinnuslysi í tengivirki í Borgarfirði á mánudag. Samkvæmt heimildum fréttastofu er starfsmaðurinn kona á þrítugsaldri og var hún flutt á sjúkrahús erlendis í kjölfar slyssins.

Innlent

Tvö­falda makríl­ráðgjöf

Alþjóðahafrannsóknarráðið (ICES) tvöfaldar veiðiráðgjöf á makríl milli ára. Lagt er til að veiði verði ekki meiri en 353 þúsund tonn og er hrygningarstofninn nú metinn yfir varúðarmörkum. Stofninn er þó enn lítill í sögulegu samhengi. 

Innlent

Um­ræðan verið erfið fyrir eigin­konuna

Ragnar Þór Ingólfsson, félags- og húsnæðismálaráðherra, er stiginn upp úr veikindum. Bjarki Sigurðsson fréttamaður náði tali af Ragnari nú eftir veikindi hans en gríðarlegur pólitískur skjálfti hefur orðið eftir að Guðmundur Ingi Kristinsson, fráfarandi ráðherra, birti samskipti sín við Guðbjörgu Ingibjörgu Magnúsdóttur, aðstoðarmann sinn, en þar birtust honum afarkostir. Ragnar Þór segist enga aðkomu hafa átt að skilaboðum eiginkonu sinnar.

Innlent

Í mál gegn Ís­landi fyrir van­efndir á bókun 35

Eftirlitsstofnun EFTA hefur vísað máli gegn íslenska ríkinu til EFTA-dómstólsins vegna þess að íslensk lög tryggi ekki að EES-reglur haldi gildi sínu. Þannig hafi Ísland ekki innleitt skuldbindingar sínar samkvæmt bókun 35 við EES-samninginn.

Innlent

Ein vél Fljóts­dals­stöðvar úti

Bilun hefur komið upp í háspennuleiðara við vélaspenni í Fljótsdalsstöð. Talið er að viðgerð taki sex til átta vikur. Aðrar vélar stöðvarinnar verða prófaðar næstu vikur til að tryggja að samskonar bilun komi ekki upp.

Innlent

„Ég er ó­geðs­lega reiður“

Formaður stéttarfélagsins Framsýnar segist „ógeðslega reiður“ og fúll vegna ummæla fjármálaráðherra. Reynslu- og sambandsleysi einkenni ríkisstjórnina og ljóst að lægst launaða fólkið í landinu þoli ekki efnahagsaðgerðir ríkisstjórnarinnar.

Innlent

Ís­lensk heimili eigi að geta þolað sárs­aukann

Það er sársaukafullt að ná aga í ríkisfjármálum og ef eitthvað ríki geti þolað sársaukann sé það Ísland enda standi heimilin mjög vel. Hann segir ekki rétt að launþegar hafi það verr nú en fyrir tveimur árum og fullyrðir að ummæli sem formaður efnahagsnefndar Alþingis lét falla um helgina séu ekki rétt. Þetta er á meðal þess sem Daði Már Kristófersson fjármálaráðherra segir í ítarlegu sjónvarpsviðtali við fréttastofu.

Innlent

Úr­skurðaður í fjögurra vikna gæslu­varð­hald

Karlmaður á fimmtugsaldri var úrskurðaður í fjögurra vikna gæsluvarðhald í dag vegna rannsóknar lögreglu á alvarlegri líkamsárás. Maðurinn er grunaður um að hafa veitt konu á fertugsaldri alvarlega áverka í fjölbýlishúsi í Kópavogi. 

Innlent

Lög­menn fagna niður­stöðu EFTA-dómstólsins

Lögmannafélag Íslands tekur undir niðurstöður EFTA-dómstólsins um að ákvæði EES-samningsins girði fyrir skyldu lögmanna til að veita skattyfirvöldum upplýsingar um skjólstæðing sinn ef beiðnin gengur lengra en brýn nauðsyn krefur. Þetta segir í yfirlýsingu frá félaginu.

Innlent

Sam­tökin séu ekki í bar­áttu gegn einkabílnum

Nýr formaður Samtaka um bíllausan lífsstíl segir samtökin alls ekki vilja þrengja að gegn einkabílnum heldur sé tilgangur samtakanna að gera það auðveldara að velja að vera bíllaus. Sumir gætu sleppt því að kaupa fleiri bíla á heimilið og skoðað það frekar að kaupa gott hjól í staðinn.

Innlent

Sjálf­stæðis­flokkurinn tapar fylgi

Samfylkingin mælist enn stærsti flokkurinn og bætir við sig fylgi um rúmt prósentustig í nýjum þjóðarpúlsi Gallup. Sjálfstæðisflokkurinn tapar fylgi um tæp tvö prósentustig og Flokkur fólksins mælist enn utan þings. 

Innlent

Ráð­gjöf Heiðu Kristínar kostaði fjór­tán milljónir

Utanríkisráðuneytið greiddi félagi Heiðu Kristínar Helgadóttur og eiginmanns hennar alls fjórtán milljónir króna vegna sérlegrar ráðgjafar hennar við utanríkisráðherra í tengslum við þjóðaratkvæðagreiðsluna um áframhaldandi aðildarviðræður við Evrópusambandið. Hún starfaði fyrir ráðuneytið í sex mánuði.

Innlent

Gæslu­varð­hald sonar þing­mannsins aftur fram­lengt

Karlmaðurinn sem grunaður er um að hafa banað föður sínum í Kópavogi þann 26. júlí síðastliðinn hefur verið úrskurðaður í áframhaldandi gæsluvarðhald til 22. október á grundvelli almannahagsmuna. Hinn látni var eiginmaður þingmanns.

Innlent

Hló að svari sambýliskonunnar

Eiginkona Georgis Ntentes, sem er ákærður fyrir að hafa myrt Edilsson Martin Zingara á Kársnesi, segist hafa sofið allt kvöldið og ekki vitað neitt hvað hefði átt sér stað. 

Innlent

Til­boð hrika­lega hátt yfir kostnaðar­á­ætlun

Lokaáfangi Vestfjarðavegar um Gufudalssveit er í uppnámi eftir að tilboð reyndust himinhátt yfir áætluðum verktakakostnaði. Aðeins tvö tilboð bárust, það lægra frá ÞG-verktökum upp á liðlega 3.888 milljónir króna. Það er um sextíu prósentum yfir kostnaðaráætlun, sem var upp á tæplega 2.432 milljónir króna. Lægra boðið er þannig nærri 1.457 milljónum króna yfir áætluðum kostnaði.

Innlent

Mögu­leg tengsl við heilabilun

Sífellt fleiri rannsóknir benda til mögulegra tengsla milli langtímanotkunar vinsælla svefnlyfja og heilabilunar. Sérfræðingar leggja þó áherslu á að frekari rannsókna sé þörf. Hins vegar er þegar vel þekkt að meðal mögulegra aukaverkana algengra svefnlyfja eru minnisleysi og minnistruflanir.

Innlent

Bryn­hildur nýr for­maður og Gísli Marteinn í stjórn

Brynhildur Bolladóttir var kjörin formaður Samtaka um bíllausan lífsstíl á aðalfundi samtakanna sem haldinn var í gær. Samtökin segir tímabært að skipulagsyfirvöld, sérstaklega á höfuðborgarsvæðinu, séu meðvituð um mikilvægi þess að greiða veginn fyrir virkum samgöngumátum. Gísli Marteinn Baldursson sjónvarpsmaður er einnig í stjórn.

Innlent

„Enn ein vondu tíðindin af þessu máli“

Forstjóri Sjúkratrygginga Íslands segir stöðuna innan SÁÁ mikil vonbrigði. Vonir hefðu verið bundnar við að átakasaga innan samtakanna væri að baki. Forstjóri Landspítalans og forstjóri SÁÁ funda um hvort og hvernig Landspítalinn geti stigið inn í deilurnar innan samtakanna sem hafa valdið ólgu í faglegu starfi síðustu vikur. 

Innlent

Kókaínið hafi verið lykil­þáttur í vin­skapnum

Grískur karlmaður neitar því að hafa myrt portúgalskan karlmann í Kópavogi á síðasta ári. Farið var ítarlega yfir frásögn mannsins við aðalmeðferð málsins og sönnunargögn, þar á meðal eldhúshníf, skóför og götótta hettupeysu.

Innlent