Innlent

Þurft að dvelja í ein­angrunar­klefum vegna pláss­leysis

Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar
Ragna Bjarnadóttir er fangelsismálastjóri.
Ragna Bjarnadóttir er fangelsismálastjóri. Vísir/Anton Brink

Nýting fangelsisrýma er í hámarki og hefur ekki tekist að úthluta öllum föngum hefðbundnum klefum á fangagangi. Í einstaka tilvikum hafa fangar þurft að dvelja tímabundið í einangrunarklefum.

Þetta kemur fram í skriflegu svari Rögnu Bjarnadóttur, forstjóra Fangelsismálstofnunar, við fyrirspurn fréttastofu.

Nýlega var fjallað um kvörtun kvenkyns fanga sem vistaður er í Fangelsinu Hólmsheiði. Hún hafði frá upphafi afplánunar sinnar verið vistuð í myndavélaklefa og/eða einangrunarklefa í stað þess að fá úthlutaðan fangaklefa. Hún kvartaði til Umboðsmanns Alþingis sem vísaði henni á dómsmálaráðuneytið.

„Í slíkum tilvikum hefur tímabundið þurft að nýta klefa sem að jafnaði eru ætlaðir til einangrunar eða sérstakrar vistunar en þeir fangar sem þannig hefur verið háttað um dvelja þó á almennum fangagöngum yfir daginn og taka þátt í daglegu starfi fangelsisins eftir því sem við á,“ segir Ragna.

Umræddir fangar séu því ekki vistaðir í einangrun og sæti ekki frekari takmörkunum á vistuninni. Staðan í fangelsiskerfinu sé þröng og nýting fangelsisrýma í hámarki.

Taka ekki saman tölfræði

Óskað var eftir tölfræði um hversu oft slík tilfelli koma upp en segir í svari forstjórans að stofnunin haldi ekki utan um sérstaka tölfræði yfir þau tilvik sem fangar hafa þurft tímabundið að dvelja í annars konar fangaklefum.

Hins vegar er tekið fram að alltaf sé um skammvinna ráðstöfun að ræða, yfirleitt í nokkra daga, þar til hægt hefur verið að úthluta viðkomandi hefðbundnum fangaklefa.

„Rétt er að árétta að um er að ræða tímabundna ráðstöfun sem hefur verið gripið til vegna mikils álags á fangelsiskerfið og skorts á fangelsisrýmum, en þetta skerðir ekki möguleika fangans á að vera í samskiptum við aðra eða taka þátt í starfsemi fangelsins,“ segir Ragna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×