Erlent
2 3 4 5 6 7 8 9 10 … 334 ›
Annar andstæðingur Trumps ákærður Letitia James, ríkissaksóknari New York-ríkis, hefur verið ákærð í Virginíu fyrir fjársvik. Hún stóð fyrir lögsókn gegn Trump þar sem hann var sakfelldur fyrir umfangsmikil fjársvik og skjalafals. James var þar að auki meðal þeirra sem Trump fór fyrir mistök opinberlega fram á að Pam Bondi, dómsmálaráðherra, myndi ákæra. Erlent 9.10.2025 21:17
Hægagangur á rússneska hagkerfinu Stór fyrirtæki í Rússlandi eru að draga saman seglin þar sem dregið hefur úr umsvifum stríðshagkerfisins svo kallaða. Á sama tíma hefur neysla dregist saman í Rússlandi og einnig útflutningur. Ekki er þó verið að segja upp fólki heldur fækka vinnustundum og beita öðrum leiðum til að lækka kostnað. Erlent 9.10.2025 18:41
Sagðir skoða að færa Eurovision verði Ísraelum meinuð þátttaka Austurríkiskanslari og flokksbræður hans eru sagðir beita sér fyrir því að Eurovision fari ekki fram í landinu á næsta ári ef Ísrael verður meinuð þátttaka í keppninni. Talsmaður flokksins segir ótækt að banna listamanni af gyðingaættum að taka þátt í keppninni. Erlent 9.10.2025 17:39
Dómur þyngdur yfir nauðgara Pelicot Refsing yfir karlmanni á fimmtugsaldri sem var ákærður fyrir að nauðga Gisele Pelicot meðan hún lá meðvitundarlaus hefur verið þyngd úr níu ára fangelsi í tíu ár. Erlent 9.10.2025 16:27
Myndir: Hágrátið og hlegið þegar fréttir bárust af friðarsamkomulagi Tilfinningar báru íbúa ofurliði og víða mátti sjá tár á hvarmi á Gasa þar sem margir trúðu ekki eigin eyrum þegar fregnir bárust af því að friðarsamkomulag á milli Hamas og Ísrael væri í höfn. Hið sama var uppi á teningnum í Ísrael þar sem margir ættingjar hafa óttast um örlög gísla sem hafa verið í haldi Hamas síðustu tvö ár. Myndir má sjá neðst í fréttinni. Erlent 9.10.2025 11:07
Von um frið en uggur um efndir Yfirlýst samkomulag milli Ísraels og Hamas um fyrsta áfanga friðarsamninga hefur vakið vonir um tímamót á Gasa en margt er óljóst og framhaldið háð því að báðir aðilar standi undir væntingum. Erlent 9.10.2025 06:36
Trump segir Hamas og Ísraela hafa náð samkomulagi Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, hefur tilkynnt að Ísraelar og leiðtogar Hamas hafi komist að samkomulagi um að koma á friði á Gasaströndinni. Öllum gíslum í haldi Hamas verði sleppt innan skamms og Ísraelar fjarlægi hermenn sína í þessum fyrsta fasa samkomulagsins. Erlent 8.10.2025 23:40
Kenna Evrópu- og Bandaríkjamönnum um litlar líkur á friði Rússar segja að sú hreyfing sem hafi verið komin á friðarviðræður varðandi hernað Rússa í Úkraínu eftir fund Vladimírs Pútín og Donalds Trump í Alaska í haust sé horfin. Sergei Ríabkóv, aðstoðarutanríkisráðherra Rússlands, sagði við blaðamenn í Rússlandi í dag að það væri að mestu ráðamönnum í Evrópu að kenna. Erlent 8.10.2025 19:01
Handtekinn fyrir að kveikja skæðasta eld Los Angeles Lögreglan í Los Angeles hefur handtekið mann sem talinn er hafa kveikt banvænan eld sem olli gífurlegum skemmdum í borginni í upphafi árs. Eldurinn í Pacific Palisades eldurinn er talinn sá skæðasti í sögu borgarinnar en tólf létu lífið og rúmlega sex þúsund byggingar brunnu til grunna. Erlent 8.10.2025 17:54
Fá Nóbelsverðlaun fyrir þróun málmlífrænna grinda Sænska vísindaakademían hefur ákveðið að veita þeim Susumu Kitagawa, Richard Robson og Omar M. Yaghi Nóbelsverðlaunin í efnafræði í ár. Þeir fá verðlaunin fyrir „þróun málmlífrænna grinda“. Erlent 8.10.2025 10:05
Tengdasonur Trumps mætir til Egyptalands Sérlegur erindreki Donalds Trumps Bandaríkjaforseta, Steve Witkoff, og tengdasonur forsetans Jared Kushner eru nú á leið til Egyptalands til þess að taka þátt í friðarviðræðunum sem í gangi eru á milli Hamas og Ísreala. Erlent 8.10.2025 06:56
Dularfull brotlending nærri Area 51 Lofthelginni yfir hinni leynilegu flugstöð „Area 51“ í Nevada í Bandaríkjunum var lokað í síðasta mánuði eftir að ótilgreint flugfar brotlenti þar nærri. Engan mun hafa sakað en mikil leynd hvílir yfir slysinu og hafa hernaðaryfirvöld varist allra frétta. Erlent 7.10.2025 23:55
Trump og „maðurinn með ljáinn“ hóta að greiða ekki laun Embættismenn í ríkisstjórn Donalds Trump, forseta Bandaríkjanna, gáfu til kynna í dag að opinberir starfsmenn muni ekki fá greidd laun fyrir þann tíma sem rekstur alríkisins verður stöðvaður. Slíkt hefur alltaf verið gert áður en vika er liðin frá því fjárlög runnu út og virðast þingmenn ekkert hafa náð saman um lausn á deilunni. Erlent 7.10.2025 21:02
Engan óraði fyrir framhaldinu Eiríkur Bergmann, prófessor í stjórnmálafræði, segir að enginn hafi búist við því að staðan sem nú er uppi á Gasaströndinni yrði þegar Hamas gerði árás á Ísrael þann 6. október árið 2023. Í dag eru tvö ár liðin frá þeirri áras. Erlent 7.10.2025 21:00
Súdanskur uppreisnarleiðtogi sakfelldur fyrir stríðsglæpi Alþjóðaglæpadómstóllinn í Haag hefur sakfellt súdanska uppreisnarleiðtogann Ali Muhammad Ali Abd-Al-Rahman, einnig þekktur sem Ali Kushayb, fyrir stríðsglæpi og glæpi gegn mannkyni vegna brota sem framin voru í Darfúr-héraði í Súdan fyrir rúmum tveimur áratugum síðan. Erlent 7.10.2025 12:50
Nýkjörinn bæjarstjóri alvarlega særður eftir stunguárás Iris Stalzer, nýkjörinn bæjarstjóri í þýska bænum Herdecke, er alvarlega særð eftir stunguárás á heimili sínu. Erlent 7.10.2025 12:31
Fá Nóbelinn fyrir rannsóknir sínar á sviði skammtafræði Sænska vísindaakademían hefur ákveðið að veita þeim John Clarke, Michel H. Devoret og John M. Martinis Nóbelsverðlaunin í eðlisfræði fyrir rannsóknir sínar á sviði skammtafræði. Erlent 7.10.2025 10:24
Tvö ár liðin frá árásum Hamas á Ísrael Tvö ár eru liðin frá því að Hamas samtökin á Gasa gerðu árás á byggðir Ísraelsmanna og drápu um 1.200 manns og tóku 251 í gíslingu. Skömmu síðar hófu Ísraelar hernaðaraðgerðir á Gasa, sem enn standa yfir. Erlent 7.10.2025 06:52
Vill vita hvað Úkraínumenn vilja gera við bandarískar stýriflaugar Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, segist hafa tekið ákvörðun um það hvort hann ætli að selja Úkraínumönnum Tomahawk stýriflaugar. Næstum því. Fyrst vilji hann ganga úr skugga um hvað Úkraínumenn vilji gera við þær. Erlent 6.10.2025 23:01
Hæstiréttur hafnar Maxwell Hæstiréttur Bandaríkjanna neitaði í dag að taka fyrir áfrýjun Ghislaine Maxwell, fyrrverandi aðstoðarkonu og kærustu Jeffreys Epstein. Hún var eins og frægt er dæmd árið 2021 í tuttugu ára fangelsi fyrir að aðstoða Epstein við að brjóta kynferðislega á stúlkum og ungum konum um árabil. Erlent 6.10.2025 18:31
Stofna rannsóknarnefnd um Afganistan sem Íslendingar kölluðu eftir Mannréttindaráð Sameinuðu þjóðanna samþykkti samhljóða í dag ályktun um að stofna óháða rannsóknarnefnd um stöðu mannréttinda í Afganistan . Aðeins Kína sagði sig frá ákvörðun ráðsins. Ísland hefur lengi kallað eftir því að rannsóknarnefnd verði stofnuð og leiddi sameiginlega yfirlýsingu þess efnis í ráðinu í mars, í samstarfi við Suður-Afríku og Síle. Erlent 6.10.2025 15:26
Gretu Thunberg og félögum vísað úr landi Ísraelar hafa vísað Gretu Thunberg og 170 aðgerðarsinnum til viðbótar úr landi. Aðgerðarsinnarnir verða sendir til Grikklands og Slóvakíu. Erlent 6.10.2025 14:22
Gisèle Pelicot aftur í réttarsal Minna en ári eftir að dómur féll í máli Gisèle Pelicot þarf franska konan að mæta aftur í réttarsal en einn nauðgara hennar hefur áfrýjað málinu. Hann auk fimmtíu annarra voru dæmdir sekir fyrir að hafa brotið á Pelicot kynferðislega árin 2011 til 2020. Erlent 6.10.2025 12:35
Fá Nóbelinn fyrir ónæmisrannsóknir sínar Sænska vísindaakademían hefur ákveðið að veita þeim Mary E. Brunkow, Fred Ramsdell og Shimon Sakaguchi Nóbelsverðlaun í lífeðlis- og læknisfræði í ár. Erlent 6.10.2025 09:59
Bein útsending: Hver fær Nóbelsverðlaunin í læknisfræði? Nóbelsnefnd Karólínsku stofnunarinnar í Svíþjóð mun tilkynna innan skamms hver hlýtur Nóbelsverðlaunin í lífeðlis- og læknisfræði. Erlent 6.10.2025 09:00
Forsætisráðherra Frakklands segir af sér Sebastien Lecornu, forsætisráðherra Frakklands, hefur sagt af sér aðeins nokkrum klukkustundum eftir að hann tilkynnti um nýja ríkisstjórn sína. Emmanuel Macron, forseti Frakklands, skipaði Lecornu fyrir mánuði síðan. Erlent 6.10.2025 08:07
Viðræður um frið á Gasa hefjast í dag Óbeinar viðræður um frið á Gasa svæðinu hefjast milli Hamas samtakanna og Ísraela í Kaíró höfuðborg Egyptalands í dag. Erlent 6.10.2025 07:27
Nýskipaðri ríkisstjórn þegar hótað vantrausti Ný ríkisstjórn hefur verið valin í Frakklandi en fjármálaráðherra verður Roland Lescure, náinn bandamaður Emmanuel Macron Frakklandsforseta og fyrrverandi meðlimur Sósíalistaflokksins. Erlent 6.10.2025 07:15
Stórtap Air Greenland vegna aflýstra flugferða til Nuuk Þjóðarflugfélag Grænlendinga, Air Greenland, hefur orðið fyrir stórfelldu fjárhagstjóni vegna metfjölda aflýstra flugferða til nýja flugvallarins í Nuuk. Inga Dóra Guðmundsdóttir, samskiptastjóri Air Greenland, segir félagið aldrei hafa lent í öðru eins í yfir sextíu ára sögu sinni. Erlent 5.10.2025 22:40
Tæplega þúsund manns innlyksa á Everest Tæplega þúsund göngugarpar eru innlyksa á tjaldsvæði á Everest-fjalli vegna snjóstorms sem þar geisar. Erlent 5.10.2025 17:01