Idol-keppandi í lífstíðarfangelsi fyrir að skjóta eiginkonu sína Samúel Karl Ólason skrifar 5. október 2026 20:57 Caleb Flynn í dómsal í síðasta mánuði. AP Maður sem birtist eitt sinn í þáttunum American Idol, hefur verið dæmdur í lífstíðarfangelsi fyrir að skjóta eiginkonu sína til bana. Caleb Flynn sviðsetti innbrot eftir að hann skaut Ashley Flynn, eiginkonu sína, og hélt því fram að innbrotsþjófur hefði myrt hana.
Á þessum tíma stóð Flynn í sambandi við aðra konu sem hann hafði kynnst í gegnum kirkju þar sem hann söng. Kvöldið áður en morðið var framið sendi hann þeirri konu skilaboð þar sem hann sagðist vilja losna úr hjónabandi sínu. „Ég vel þig. Ég er frjáls. Aðgerðir munu fylgja á morgun.“ Flynn brá fyrir í American Idol árið 2013. Þá söng hann fyrir þau Mariuh Carey, Randy Jackson og Nicki Minaj en áður sagði hann áhorfendum frá því hvernig eiginkona hans hefði hvatt hann áfram til að taka þátt í keppninni og láta drauma sína rætast. Hann sagðist elska eiginkonu sína umfram allt annað. Hann komst ekki áfram í úrslitakeppnina. Flynn var, eins og áður segir, dæmdur í lífstíðarfangelsi án þess að eiga möguleika á reynslulausn. Við dómsuppkvaðninguna sagði Jeannine Pratt, dómari málsins, að henni væri brugðið yfir því að Flynn skyldi hafa notað trú sína til að reyna að hylma yfir blekkingar sínar og losta. Þá vísaði hún í yfirlýsingu annarrar dóttur hans sem spurði: „Hvað gerði Ashley þér eiginlega sem lét þig hata hana svo innilega?“ Hélt við starfsnema í kirkjunni Flynn er fertugur en Ashley eiginkona hans var 37 þegar hann myrti hana í febrúar. Alleigha Botner, sem Flynn hélt við, bar vitni í málinu. Hún sagði frá því hvernig þau hefðu kynnst árið 2022, þegar hún var tvítugur starfsnemi í kirkju Flynns í Ohio. Þau áttu í sambandi í um ár en Botner sagði að Flynn hefði hatað eiginkonu sína. Í öðrum skilaboðum þeirra á milli sagðist Flynn hafa verið vakandi langt fram á nótt, grátandi, og hugsandi um leiðir til að myrða Ashley og hvernig hann gæti komist upp með það. „Ég vil bara að hún drepist og hverfi,“ skrifaði hann í öðrum skilaboðum. Áður en dómur var kveðinn upp í dag ávarpaði Flynn dóminn grátandi. Hann baðst afsökunar á því að hafa brugðist fjölskyldu sinni og sérstaklega tveimur dætrum hans, sem eru níu og ellefu ára gamlar. Þær voru báðar heima þegar hann myrti Ashley Flynn. Hann viðurkenndi að hafa logið um margt en staðhæfði að hann hefði ekki skotið eiginkonu sína. Hann hefði ekki logið því. „Eins og ég stend hér frammi fyrir Guði, sem er æðsti dómari minn, þá er ég ekki að ljúga þegar ég segi að ég hafi ekki drepið eiginkonu mína,“ sagði hann samkvæmt AP-fréttaveitunni. Yfirlýsingu hans má sjá í spilaranum hér að neðan. Alla dómsuppkvaðninguna má svo sjá hér. Byssan sem notuð var til að myrða Ashley Flynn fannst aldrei. Verjandi prestsins sagði kviðdómendum að lögreglunni hefði aldrei tekist að sanna að Flynn hefði hleypt af byssu þetta kvöld. Byssan hafði verið í bílnum hans en hann var í bílskúrnum, þar sem Flynn sagði að hinn meinti innbrotsþjófur hefði komist inn í húsið. Saksóknarar héldu því fram að fingraför og gögn úr snjalltækjum hans sýndu að hann hefði verið á hreyfingu á heimili þeirra hjóna um nóttina, þrátt fyrir að hann hefði sagst hafa verið sofandi. Hann var sakfelldur fyrir morð og fyrir að eiga við sönnunargögn. Lögmaður hans hefur sagt, samkvæmt frétt BBC, að dómnum verði áfrýjað.
Bandaríkin Erlend sakamál Mest lesið Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Lægðin fyrr á ferðinni Veður Nóg sé komið af Trump Erlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Innlent Musk segi ósatt um Starlink Erlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Upplifa endurtekið áfall vegna dómsins Innlent Skiljanlega skiptar skoðanir á stærstu kerfisbreytingu í áratug Innlent Fleiri fréttir „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Sjá meira