Ragnhildur, Svavar og Hreinn nýir stjórnendur hjá N1 Hreinn Þorvaldsson, Ragnhildur Leósdóttir og Svavar Kári Grétarsson hafa verið ráðin í stjórnendastöður hjá N1. Viðskipti innlent 18.6.2025 11:19
Sigrún Ósk ráðin upplýsingafulltrúi Akraneskaupstaðar Sigrún Ósk Kristjánsdóttir sjónvarpskona hefur verið ráðin í starf upplýsingafulltrúa Akraneskaupstaðar. Viðskipti innlent 18.6.2025 11:10
Selur ísbílinn eftir þrjátíu ár í bransanum Ásgeir Baldursson hefur sett Ísbílaútgerðarina á sölu en hann hefur starfað hjá fyrirtækinu síðan 1994. Fyrirtækið gerir í dag út fjórtán bíla um allt land. Viðskipti innlent 18.6.2025 10:40
Tilkynningum frá verslunareigendum um alvarleg atvik hafi fjölgað Viðskipti innlent 18.6.2025 09:08
Efast um að veitingamenn óttist að styggja embættismenn Formaður heilbrigðisnefndar Reykjavíkur segist efast um að veitingamenn í Reykjavík óttist í mörgum tilvikum að styggja stjórnsýsluna. Hann segir heilbrigðiseftirlitið, sem mótmælti á sínum tíma íþyngjandi reglugerðarbreytingu um auglýsingaskyldu, starfa af heilindum. Viðskipti innlent 16.6.2025 10:36
Hrund nýr fjármálastjóri Íslandshótela Hrund Hauksdóttir hefur verið ráðin fjármálastjóri Íslandshótela. Viðskipti innlent 16.6.2025 10:30
Veitingamenn óttist að styggja embættismenn Framkvæmdastjóri samtaka fyrirtækja í veitingarekstri segir að veitingamenn í Reykjavík hafi verið illa upplýstir um reglugerð sem hefur nýlega lagt steina í götur þeirra. Hann segir að þeir óttist margir að styggja stjórnsýsluna en veitingamenn lýsa erfiðum samskiptum við heilbrigðiseftirlitið. Borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins telur að betur gengi ef eftirlitið væri einkavætt. Viðskipti innlent 15.6.2025 14:05
Regluverk setur langborðinu stólinn fyrir dyrnar Veitingastaðir í Reykjavík hafa þurft fresta hinu árlega langborði um nokkrar vikur þar sem regluverk hjá heilbrigðiseftirlitinu gerir það að verkum að auglýsa þurfi starfsleyfi í fjórar vikur áður en það er veitt. Viðskipti innlent 15.6.2025 10:37
Kvika segir hvorugt tilboð nægilega gott Kvika banki hefur afþakkað boð bæði Arion banka og Íslandsbanka upp í samrunadans. Stjórn bankans telur tilboðin hvorugt endurspegla virði Kviku. Viðskipti innlent 13.6.2025 15:58
Keyptu Björgólf strax út úr Heimum Kaup Heima á Grósku ehf. af þeim Andra Sveinssyni, Björgólfi Thor Björgólfssyni, og Birgi Má Ragnarssyni eru nú frágengin. Kaupverðið var greitt með hlutum í Heimum og þeir urðu stærstu hluthafar félagsins. Samhliða uppgjörinu keyptu þeir Andri og Birgir Már Björgólf Thor út úr Heimum, en þeir hafa verið kallaðir hægri og vinstri hönd hans. Viðskipti innlent 13.6.2025 15:50
Stólaleikur í Svörtuloftum Breytingar hafa verið gerðar á framkvæmdastjórn Seðlabanka Íslands. Breytingar eru þó þess eðlis að enginn hættir og enginn nýr kemur til starfa, heldur skipta þrír stjórnendur aðeins um stóla. Viðskipti innlent 13.6.2025 15:08
Jón stýrir markaðsmálunum hjá N1 Jón Cleon hefur verið ráðinn forstöðumaður markaðsmála hjá N1 og hefur þegar hafið störf. Viðskipti innlent 13.6.2025 14:48
Stefán nýr útvarpsstjóri Sýnar Stefán Valmundarson hefur verið ráðinn útvarpsstjóri Sýnar. Hann mun stýra starfsemi útvarpsstöðvanna Bylgjunnar, FM957, X977, Léttbylgjunnar, Gullbylgjunnar og hlaðvarpsveitunnar TAL. Viðskipti innlent 13.6.2025 13:57
Kastrup opnar á ný eftir karp við heilbrigðiseftirlitið Veitingastaðurinn Kastrup við Hverfisgötu hefur opnað dyr sína á ný en nýir rekstraraðilar ráku sig á vegg í regluverki heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur sem tafði fyrir opnuninni. Búið er að afnema reglugerðina. Viðskipti innlent 13.6.2025 11:31
Kjarasamningar undirritaðir fyrir nær allt launafólk Kjarasamningar til ársins 2028 hafa verið undirritaðir fyrir nær allt launafólk bæði á almennum og opinberum vinnumarkaði í yfirstandandi samningalotu sem hófst í febrúar 2024. Í heild er áætlað að gerðir hafi verið um 250 kjarasamningar í núverandi lotu. Á kjörskrám stéttarfélaganna voru um 189 þúsund manns. Viðskipti innlent 13.6.2025 10:40
Enn færri komast að í HR en vilja Heildarfjöldi umsókna í Háskólann í Reykjavík, að meðtöldum óyfirförnum umsóknum erlendis frá, er tæplega 4.400 og því á pari við aðsóknina fyrir haustönn 2024. Yfirfarnar umsóknir í ár eru þó eilítið færri, tæplega 2.800 en voru á sama tíma í fyrra tæplega 2.900. Viðskipti innlent 13.6.2025 10:00
Sigríður Theódóra til Aton Sigríður Theódóra Pétursdóttir hefur verið ráðin til starfa sem ráðgjafi hjá samskipta- og hönnunarstofunni Aton. Viðskipti innlent 13.6.2025 09:55
Dæmdur skattsvikari beri enga ábyrgð á fjármálum fyrirtækisins Forstjóri Úrvals Útsýnar segir að Viktor Heiðdal Sveinsson, sem sakfelldur var árið 2021 fyrir skattalagabrot í tengslum við ferðaskrifstofur sínar en starfar nú sem ráðgjafi hjá Úrval Útsýn, hafi ekkert með fjármál fyrirtækisins að gera. Hann sjái aðeins um skipulagningu ferða. Viðskipti innlent 12.6.2025 21:52
Stórfyrirtæki flýi borgina vegna skatta Sjálfstæðismenn í Reykjavík munu leggja til að borgarstjórn samþykki að lækka álagningarhlutfall fasteignaskatta á atvinnuhúsnæði og íbúðarhúsnæði við gerð fjárhagsáætlunar fyrir árið 2026, þannig að tekjur borgarsjóðs af álögðum fasteignagjöldum hækki ekki milli áranna 2025 og 2026. Oddviti þeirra segir að mörg stærstu fyrirtæki landsins hafi flúið borgina undanfarin ár vegna hæstu fasteignaskatta á höfuðborgarsvæðinu. Viðskipti innlent 12.6.2025 17:06
Skúli og félagar aftur sýknaðir af milljarðakröfum Skúli Mogensen og aðrir stjórnarmenn Wow air hafa verið sýknaðir af öllum kröfum þátttakenda í skuldafjárútboði Wow air rétt fyrir fall félagsins. Þátttakendurnir kröfust ríflega 2,6 milljarða króna í skaðabætur. Viðskipti innlent 12.6.2025 16:05
Magnús Þór leggur Samtökum iðnaðarins ráð Magnús Þór Gylfason hefur verið ráðinn til Samtaka iðnaðarins sem ráðgjafi og hefur þegar hafið störf. Viðskipti innlent 12.6.2025 13:22
Búinn að afnema regluverkið sem tafði fyrir opnun Kastrup Regluverk sem hefur gert veitingamönnum í Reykjavík lífið leitt að undanförnu hefur að hluta verið afnumið. Regluverkið olli því meðal annars að Kastrup þurfti að fresta opnun sinni á ný. Þá hyggst ráðherrann einnig aflétta regluverki sem hefur tafið fyrir opnun kaffirisans Starbucks á Íslandi. Viðskipti innlent 12.6.2025 13:19
Segir ljóst að SVEIT hafi eitthvað að fela Formaður Eflingar segir tregðu Samtaka fyrirtækja á veitingamarkaði eða SVEIT til að afhenda samkeppniseftirlitinu gögn er varða kjarasamninga við stéttarfélagið Virðingu vera skýrt merki um að samtökin hafi eitthvað að fela. Framkvæmdarstjóri SVEIT segir ekki koma til greina að afhenda gögnin ef þeim verður deilt með Eflingu. Viðskipti innlent 12.6.2025 12:21
Íris nýr sviðsstjóri hjá VSB verkfræðistofu Íris Þórarinsdóttir hefur tekið við stöðu sviðsstjóra samgangna og skipulags hjá VSB verkfræðistofu. Viðskipti innlent 12.6.2025 10:27
SVEIT kærir dagsektir Samkeppniseftirlitsins Samtök fyrirtækja á veitingamarkaði (SVEIT) mun kæra ákvörðun Samkeppniseftirlitsins um álagningu dagsekta. Engar sektir verða lagðar á SVEIT þar til niðurstaða áfrýjunarnefndar liggur fyrir um skyldu SVEIT til afhendingar gagna. Viðskipti innlent 12.6.2025 09:17