Viðskipti innlent

Taldi sig hafa boðið 5.000 kall í fyrsta far­rými en greiddi sex­falt meira

Kjartan Kjartansson skrifar
VIðskiptavinur flugfélags bauð í að uppfæra flugsæti á fyrsta farrými. Hann taldi sig hafa boðið fimm þúsund krónur en greiddi á endanum rúmlega þrjátíu þúsund krónur fyrir herlegheitin og tvöfaldaði kostnaðinn við flugferðina. Myndin er úr safni.
VIðskiptavinur flugfélags bauð í að uppfæra flugsæti á fyrsta farrými. Hann taldi sig hafa boðið fimm þúsund krónur en greiddi á endanum rúmlega þrjátíu þúsund krónur fyrir herlegheitin og tvöfaldaði kostnaðinn við flugferðina. Myndin er úr safni. Vísir/Vilhelm

Viðskiptavinur flugfélags sem taldi sig hafa boðið fimm þúsund krónur í að uppfæra á fyrsta farrými en greiddi sexfalt hærri fjárhæð fær ekki endurgreitt. Úrskurðarnefnd sagði engin gögn til um fjárhæðina sem hann bauð auk þess sem hann hefði síðan nýtt sér þjónustuna þrátt fyrir að hann vissi hvað hún kostaði.

Kvartandinn í málinu keypti tvo flugmiða með ónefndu flugfélagi til og frá ótilgreindum áfangastað. Síðar bauð hann í uppfærslu á sætunum á fyrsta farrými. Hann taldi sig hafa boðið fimm þúsund krónur í uppfærsluna, alls tuttugu þúsund krónur fyrir bæði sæti báðar leiðir.

Hann var hins vegar rukkaður um 132.506 krónur fyrir uppfærsluna. Hún tvöfaldaði þannig þannig kostnað hans við flugferðirnar.

Krafðist maðurinn þess að flugfélagið endurgreiddi sér mismuninn á þeirri upphæð sem hann var rukkaður um fyrir uppfærsluna annars vegar og því sem hann taldi sig hafa boðið hins vegar. Skaut hann málinu til kærunefndar vöru- og þjónustukaupa.

Samþykkti skilmálana með því að nýta þjónustuna

Flugfélagið sagði að reikningurinn fyrir uppfærsluna hefði verið í samræmi við tilboðið sem maðurinn gerði sjálfur og staðfesti. Lagði það fram gögn úr kerfi sínu og tölvupósta sem viðskiptavinurinn fékk senda áður en ferðin var farin þar sem upphæðirnar komu fram.

Þá benti flugfélagið á að maðurinn hefði getað skoðað, breytt eða afturkallað tilboð sitt í uppfærsluna áður en það var samþykkt. Hann hefði einnig geta breytt eða hætt við þar til 42 klukkustundum fyrir brottför.

Kærunefndin sagðist ekki geta annað en hafnað kröfu mannsins. Engin gögn lægju fyrir í málinu sem sýndu fram á að viðskiptavinurinn hefði boðið aðra upphæð í uppfærsluna en hann greiddi fyrir eða hvernig tilboðsferlið birtist honum.

Með því að nýta svo uppfærsluna, óháð því hvaða fjárhæð hann taldi sig hafa boðið í hana upphaflega, hafi viðskiptavinurinn samþykkt hana á því verði sem var tilgreint í tölvupóstum flugfélagsins til hans.

Maðurinn leiddi líkur að því kvörtun sinni að eitthvað hefði farið úrskeiðis í tölvukerfi flugfélagsins. Gat hann sér til um að lágmarksfjárhæð fyrir uppfærslu á hvorum fluglegg kynni að hafa komið í stað tilboðs hans án þess að hann áttaði sig á því.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×