Erlent

Fullyrða að njósnagervitungl hafi myndað Hvíta húsið og Pentagon
Yfirvöld í Norður-Kóreu fullyrða að gervitungl, sem þau skutu nýlega á loft, hafi náð mjög skýrum ljósmyndum bæði af Hvíta húsinu, bandaríska varnarmálaráðuneytinu og bandarískum flugmóðurskipum. Kim Jong-un leiðtogi landsins segist hafa skoðað myndirnar.

Vísbendingar um að allt að 20 prósentum barna sé gefið melatónín
Nærri einu af hverjum fimm börnum yngri en 14 ára í Bandaríkjunum er gefið melatónín til að bæta svefninn. Ný rannsókn bendir til þess að 18 prósentum barna á aldrinum fimm til níu ára sé gefið efnið.

Fjórðu fangaskiptin afstaðin en útlit fyrir áframhaldandi átök
Fjórðu fangaskipti Ísrael og Hamas hafa átt sér stað en Ísraelsmenn létu 33 Palestínumenn lausa í nótt, 30 börn og þrjár konur, gegn lausn ellefu Ísraelsmanna, níu barna og tveggja kvenna, sem voru teknir gíslingu í árásunum 7. október síðastliðinn.

Engin draumabyrjun á þreifingum Wilders
Hægrimaðurinn Geert Wilders, sigurvegari nýafstaðinna hollenskra þingkosninga, viðurkennir að stjórnarmyndunarviðræður hafi ekki hafist á neinni „draumabyrjun“.

Vopnahlé á Gasa framlengt um tvo daga
Vopnahlé á Gasa ströndinni hefur verið framlengt um tvo daga. Þetta tilkynna katörsk stjórnvöld sem hafa milligöngu um viðræður á milli Hamas liða og Ísrael.

Skipar nýja stjórn undir forystu Morawiecki þrátt fyrir minnihluta
Síðdegis í dag mun Andrzej Duda, forseti Póllands, skipa nýja ríkisstjórn undir forystu Mateuszar Morawiecki. Þetta gerir hann þrátt fyrir að Morawiecki hafi ekki meirihluta.

Nýja-Sjáland verði ekki reyklaust
Ný ríkisstjórn í Nýja-Sjálandi stefnir á að hætta við áform um að gera landið reyklaust. Er verkefnið eitt af þeim sem á að hverfa til þess að lækka skatta í landinu.

Afreksíþróttamaður myrti brúði sína og þrjá aðra í brúðkaupinu
Taílenskur íþróttamaður og fyrrverandi hermaður skaut brúði sína og þrjá til viðbótar, áður en hann skaut sjálfan sig til bana, á sjálfan brúðkaupsdaginn. Brúðkaupsgestir segja brúðhjónin hafa rifist í veislunni.

Fimmtán ára piltur talinn hafa stungið jafnaldra sinn til bana
Fimmtán ára danskur piltur verður dreginn fyrir dómara í dag og yfirheyrður. Pilturinn er grunaður um að hafa stungið jafnaldra sinn til bana í bænum Grenaa á Jótlandi í gær. Pilturinn hefur verið ákærður fyrir manndráp.

Musk fundar um gyðingaandúð með ráðamönnum í Ísrael
Frumkvöðullinn og athafnamaðurinn Elon Musk mun funda í dag með Isaac Herzog, forseta Ísrael, og aðstandendum hverra ástvinir eru og hafa verið í haldi Hamas.

Útgöngubann í Síerra Leóne eftir árásir og frelsun fanga
Útgöngubann er í gildi í Síerra Leóne eftir að vopnaðir menn ruddust inn í fangelsi í landinu og frelsuðu fanga. Samkvæmt yfirvöldum áttu árásirnar sér stað í gærmorgun, í fjölda stórra fangelsa. Fjórtán Íslendingar eru í Síerra Leóne samkvæmt tilkynningu utanríkisráðuneytisins.

Mögulegt að hléið verði framlengt gegn lausn fleiri gísla
Nú þegar sólarhringur er eftir af umsömdu vopnahléi á Gasa ströndinni eykst þrýstingur á Ísraela að hléið verði framlengt.

Þrettán saknað eftir að flutningaskip sökk
Þrettán er saknað eftir að flutningaskip sökk undan grísku eyjunni Lesbos.

Missti ríkisborgararéttinn á sjötugsaldri
Maður á sjötugsaldri, sem fæddist í Bandaríkjunum, stundaði nám þar og hefur starfað þar sem læknir í rúm þrjátíu ár, er nú ríkisfangslaus. Þegar hann reyndi nýverið að endurnýja vegabréf sitt fékk hann bréf um að mistök hefðu verið gerð við fæðingu hans og hann hefði aldrei átt að fá bandarískan ríkisborgararétt.

Landlægt útgöngubann í Síerra Leóne
Forseti Síerra Leóne lýsti í morgun yfir landlægu útgöngubanni eftir að þungvopnaðir menn ruddust inn í fangelsi í höfuðborginni Freetown og frelsuðu þar fanga. Skömmu áður höfðu vopnaðir menn ráðist á herstöð í borginni, sem er skammt frá forsetahöllinni, og reynt að brjótast inn, eða brotist inn, í vopnabúr herstöðvarinnar.

Vaknaði við sprengingar meðan kollegarnir eyddu nóttinni í sprengjubyrgi
Sendiherra Íslands gagnvart Úkraínu segir óhugnanlegt að hafa vaknað upp við sprengjudrunur í Kænugarði í gærmorgun, þegar Rússar gerðu umfangsmikla drónaárás á borgina. Úkraínumenn minntust þess í gær að 90 ár eru liðin frá hungurmorðum Rússa á milljónum Úkraínumanna.

Hvað gerist eftir vopnahléið?
Vopnahlé Ísrael og Hamas á Gasaströndinni hefur nú staðið yfir í meira en tvo daga, af þeim fjórum sem samið var um. Hléið hefur að mestu leyti haldið vel, þar sem árásir hafa ekki verið gerðar frá því það hófst á föstudaginn.

Stærsti og elsti ísjaki heims á ferðinni
Einn stærsti ísjaki heimsins og jafnvel sá elsti er á ferðinni í fyrsta sinn í rúma þrjá áratugi. Ísjakinn sem kallast A23a brotnaði frá Fichner-Ronne íshellunni árið 1986 en festist við botninn í Weddell-hafi.

Hamas-liðar sleppa þrettán gíslum
Hamas-samtökin hafa sleppt þrettán ísraelskum gíslum og nokkrum erlendum ríkisborgurum. Misræmi er þó í yfirlýsingum ríkja um tölu gísla sem sleppt hefur verið í kvöld.

Ákæra fjölda fólks vegna óeirðanna í Dyflinni
Að minnsta kosti 24 hafa verið færðir fyrir dómara í Dyflinni á Írlandi og ákærðir vegna óeirða sem áttu sér stað í borginni aðfaranótt föstudags. Þrír voru ákærðir fyrir vopnaburð og fjórir fyrir þjófnað, svo eitthvað sé nefnt.

Stærsta drónaárásin hingað til
Rússar gerðu í nótt umfangsmestu drónaárásina sem gerð hefur verið á Kænugarð. 75 sjálfsprengidrónum var flogið að höfuðborg Úkraínu en flugher landsins segir 74 þeirra hafa verið skotna niður. Langflestir voru skotnir niður yfir borginni eða úthverfum hennar.

Derek Chauvin stunginn í fangelsi
Derek Chauvin, fyrrverandi lögregluþjónn sem dæmdur var fyrir morðið á George Floyd, er sagður í alvarlegu ástandi eftir að hann var stunginn í fangelsi í gær. Árásin var gerð í fangelsi í Tucson í Arisóna, þar sem Chauvin afplánar 21 árs dóm fyrir að svipta Floyd réttindum sínum.

Fagnaðarlæti á Vesturbakkanum
Mikil fagnaðarlæti brutust út á Vesturbakkanum í gærkvöldi þegar 39 konum og börnum var sleppt úr ísraelskum fangelsum. Það var gert í skiptum fyrir þrettán konur og börn sem vígamenn Hamas og Íslamsks jíhads héldu í gíslingu á Gasaströndinni.

Ásökunum gegn frægum rigndi inn á lokametrunum
Undanfarna daga hefur fjöldi frægra Bandaríkjamanna verið sakaðir um fyrir kynferðisbrot. Í gær var greint frá slíkum ásökunum á hendur borgarstjóra New York-borgar Eric Adams, og í dag er greint frá meintum brotum rapparans Sean „Diddy“ Combs.

Búið að sleppa tuttugu og fjórum gíslum
Hamas-liðar hafa sleppt fyrstu gíslunum úr haldi í fangaskiptum á Gasaströndinni. Um er að ræða tíu Taílendinga, einn Filippseying og þrettán Ísraela sem sleppt var í skiptum fyrir 39 Palestínumenn í haldi Ísraela. Vopnahléið sem hófst í morgun hefur að mestu haldið og neyðarbirgðir berast íbúa Gasastrandarinnar.

Pistorius sleppt úr fangelsi í janúar
Fangelsisyfirvöld í Suður-Afríku hafa samþykkt umsókn Oscar Pistorius um reynslulausn. Honum verður því sleppt úr fangelsi þann 5. janúar.

Var með sannar glæpasögur á heilanum og langaði að prófa að myrða
Jung Yoo-jung, 23 ára gömul kona, hefur verið dæmd í lífstíðarfangelsi í Suður-Kóreu fyrir að myrða ókunnuga manneskju. Sagðist hún hafa framið morðið „af forvitni“.

Kanadísk „ofursvín“ ógna Bandaríkjunum
Íbúar nokkurra ríkja í norðanverðum Bandaríkjunum óttast innrás kanadískra „ofursvína“ og eru að grípa til aðgerða gegn þeim. Stofn svínanna hefur stækkað gífurlega í Kanada og óttast sérfræðingar þar að svínin muni valda hamförum á lífríkinu þar.

Þrjátíu og fjórir í haldi eftir óeirðirnar í Dyflinni
Þrjátíu og fjórir voru handteknir í óeirðum í Dyflinni á Írlandi í gær.

Bær rýmdur eftir enn eitt lestarslysið
Íbúum lítils þorps í Rockcastle-sýslu í Kentucky í Bandaríkjunum hefur verið leyft að snúa aftur til síns heima, eftir að bæirnir voru rýmdir í kjölfar lestarslyss. Minnst sextán lestarvagnar fóru af sporinu nærri Livingston og var þorpið rýmt í kjölfarið.