Innlent
17 18 19 20 21 22 23 24 25 … 334 ›
Heilsustofnunin í Hveragerði fær langtímasamning Heilbrigðisráðherra, forstjóri Sjúkratrygginga Íslands og forseti Heilsustofnunar NLFÍ undirrituðu í dag nýjan fjögurra ára þjónustusamning um sérhæfða endurhæfingu. Innlent 2.7.2026 16:05
Heimsótti bráðamóttökuna 292 sinnum á fimm árum Á fimm ára tímabili kom 621 heimilislaus einstaklingur, tæplega 60 prósent hópsins, á bráðamóttökur Landspítalans, samtals 9.491 sinnum. Flestar komur voru í Fossvogi. Meðalfjöldi koma á hvern einstakling var fimmtán en sá sem kom oftast gerði það 292 sinnum á fimm ára tímabili. Innlent 2.7.2026 14:52
Reyndist ekki vera hópuppsögn Uppsagnir hjá Reykjavíkurborg í júní reyndist ekki vera hópuppsögn líkt og borgin lýsti yfir. Átján var sagt upp. Innlent 2.7.2026 14:29
Frumniðurstöður kalli á dýpri umræðu um verðlagningu olíufélaganna Í nýju umræðuskjali Samkeppniseftirlitsins um olíufélögin kemur fram að álagning á dísilolíu hafi frá árinu 2022 hækkað um fimmtíu prósent að raunvirði en álagning á bensínlítrann hækkað um 25% að raunvirði á sama tímabili. Forstjóri Samkeppniseftirlitsins segir frumniðurstöður kalla á dýpri umræðu um verðlag olíufélaganna á Íslandi. Innlent 2.7.2026 13:32
Tugir vilja feta í fótspor Fannars Fyrrverandi þingmenn, fyrrverandi bæjarstjórar og bílasali eru meðal þeirra sem vilja verða bæjarstjóri Grindavíkurbæjar. Innlent 2.7.2026 13:11
Vasaþjófar sem herja á ferðamenn engir amatörar Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu segir tilkynningum um vasaþjófnað hafa fjölgað síðastliðna daga og vikur og segir þjófnaðinn vera „þaulskipulögð brotastarfsemi“ brotahópa sem koma til landsins. Lögreglan á Suðurlandi hefur gripið til aukinna aðgerða vegna viðvarandi vasaþjófa á helstu ferðamannastöðum. Meðal annars sinni ómerktir lögreglumenn eftirliti. Innlent 2.7.2026 12:55
Villti á sér heimildir sem eftirlitsmaður MAST hefur fengið ábendingar um einstakling sem fór á milli hesthúsa á Suðurlandi og villti á sér heimildir sem eftirlitsmaður stofnunarinnar. Innlent 2.7.2026 12:15
Ekki hægt að fullyrða að bensínlækkunin hafi skilað sér Í hádegisfréttum verður fjallað um nýtt umræðuskjal Samkeppninseftirlitsins um eldsneytisverð hér á landi. Innlent 2.7.2026 11:37
Ein hópuppsögn í júní Vinnumálastofnun barst ein tilkynning um hópuppsagnir í júní. Uppsögnin var á sviði fiskeldis. Innlent 2.7.2026 11:19
Koma eigi í veg fyrir skólaforðun barna með samræmdum viðbrögðum Mennta- og barnamálaráðuneytið undirbýr útgáfu landsviðmiða um skólasókn grunnskólanemenda fyrir skólaárið 2026–2027. Markmiðið er að skrá, bregðast við og koma í veg fyrir skólaforðun barna í grunnskólum á samræmdan hátt á landsvísu. Innlent 2.7.2026 10:25
Flúði á Hopp-deilibíl eftir innbrot og ók yfir göngubrú Karlmaður sem var handtekinn í gær vegna gruns um innbrot í Efstaleitisapótek flúði vettvang á Hopp-deilibíl. Maðurinn var handtekinn eftir eftirför í bíl og á fæti. Innlent 2.7.2026 09:13
Agnes var meira en bara morðingi Þemasýning um líf og starf síðustu konunnar sem tekin var af lífi á Íslandi, Agnesar Magnúsdóttur, verður opnuð í Vatnsdalshólum næstkomandi laugardag. Listakonan á bak við verkefnið vill sýna mannlegu hliðina á Agnesi en ekki bara að fjallað sé um hana sem morðingja. Innlent 2.7.2026 09:12
Saka ríkisstjórnina um svik Sveitarstjórn Múlaþings sakar ríkisstjórnina um svik með því að samþykkja samgönguáætlun þar sem Fjarðarheiðargöng eru sett aftar í forgangsröðunina. Innlent 2.7.2026 09:12
Nemendum mismunað með ósamræmi einkunna Barna- og menntamálaráðherra segir misræmi í einkunnagjöf við útskrift nemenda úr grunnskóla búa til falskt öryggi. Verið sé að mismuna nemendum sem komast ef til vill ekki í sitt fyrsta val um framhaldsskóla vegna þessa. Þá er hún döpur yfir fylgi Flokks fólksins sem mælist utan þings. Innlent 2.7.2026 08:20
Krefjast tafarlausrar stöðvunar hvalveiða Dýraverndarsamband Íslands, Hvalavinir – vernd hafsins, Náttúruverndarsamtök Íslands og Samtök um dýravelferð hafa sent Matvælastofnun (MAST) formlega kröfu um að hvalveiðar Hvals hf. verði stöðvaðar tafarlaust og að hafin verði ítarleg rannsókn á meintum brotum á lögum um velferð dýra. Innlent 2.7.2026 08:18
Eltur og handtekinn í tengslum við innbrot í apótek Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu var kölluð til í gærkvöldi eða nótt vegna yfirstandandi innbrots í apótek. Þegar komið var á vettvang var gerandinn farinn en sá sem tilkynnti hafði farið á eftir honum. Innlent 2.7.2026 07:03
Hopp segir mál ökumanns í höndum lögreglu Lögregla hafði afskipti af ökumanni sem ók deilibíl frá Hopp á hjólastíg í Fossvogi í Reykjavík í kvöld. Óljóst er hvað ökumanni gekk til og segir framkvæmdastjóri að málið sé í höndum lögreglu. Ekki sé talið að ökumaður hafi valdið skemmdum. Innlent 1.7.2026 22:10
Reki fyrirtæki og séu nálægt því að missa allt frá sér „Oft er þetta fólk sem er í vinnu og hefur kannski fyrirtæki og er í miklum umsvifum og er bara um það bil að missa allt frá sér vegna neyslunnar. Hún er dýr og krefst þess líka að fá meira og aftur og þetta verður mikil áþján fyrir einstaklinginn og fjölskyldu hans að sjálfsögðu.“ Þetta segir Valgerður Rúnarsdóttir, framkvæmdastjóri lækninga hjá SÁÁ, um þann fjölbreytta hóp sem sæki sér aðstoðar vegna kókaínfíknar. Innlent 1.7.2026 21:47
Klausturbleikjan fæst ekki lengur Ein þekktasta bleikjueldisstöð landsins, Klausturbleikja á Kirkjubæjarklaustri, hefur hætt starfsemi. Oddviti Skaftárhrepps segir þetta áfall fyrir lítið sveitarfélag og telur að strangt og dýrt eftirlit hafi átt þátt í því hvernig fór. Innlent 1.7.2026 21:41
Staðfestir stækkun friðlands við Gróttu og Seltjörn Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, hefur staðfest stækkun friðlandsins við Gróttu á Seltjarnarnesi. Hið friðlýsta svæði er alls um 1,5 km² að stærð. Með endurskoðaðri friðlýsingu nái verndin nú einnig til Seltjarnar, sem er eitt mikilvægasta fæðu- og hvíldarsvæði fugla á svæðinu. Unnið var að friðlýsingunni í sex ár. Innlent 1.7.2026 21:35
Fjórtán ný félög flytja í Mannréttindahúsið Mannréttindahúsið hefur stækkað með opnun nýrrar álmu og eru nú yfir 40 félög með aðsetur í húsinu. Mannréttindahúsið er rekið af ÖBÍ réttindasamtökum. Innlent 1.7.2026 21:10
Sími undir dýnu á skiptiborði tengdur innflutningi amfetamínbasa Tveir menn eru grunaðir um að hafa í sameiningu skipulagt innflutning á fjórtán lítrum af amfetamínbasa til Íslands með Dettifossi, gámaskipi Eimskips, í apríl. Mennirnir fengu tvo skipverja Eimskips til að aðstoða við innflutninginn. Mennirnir fjórir hafa verið í gæsluvarðhaldi frá því í apríl en búast má við því að gefin verði út ákæra í málinu á næstu dögum. Innlent 1.7.2026 20:15
Lokuðu götu á Ólafsfirði vegna tilkynningar um skotvopn Lögreglan á Norðurlandi eystra lokaði í kvöld götu á Ólafsfirði vegna tilkynningar um mann með skotvopn. Innlent 1.7.2026 20:06
Fylgi Sjálfstæðisflokks ekki meira í sex ár Sjálfstæðisflokkurinn mælist með 24,9 prósenta fylgi í nýjum þjóðarpúlsi Gallups. Fylgi flokksins hefur ekki verið meira frá því í könnun í apríl árið 2020 þegar fylgið var 25,1 prósent samkvæmt frétt RÚV um nýjan þjóðarpúls Gallups. Innlent 1.7.2026 19:45
„Verulegur samdráttur og menn eru að segja upp mannskap“ Samdráttur í byggingariðnaði hefur gert það að verkum að fyrirtæki eru farin að horfa út fyrir höfuðborgarsvæðið í leit að verkefnum og þá bjóða margfalt fleiri í sama verkið nú en áður. Uppsagnir eru í geiranum og dæmi um að starfsmannafjöldi hafi helmingast hjá einu fyrirtæki. Innlent 1.7.2026 18:58
„Skráningum rignir inn“ Áfram Ísland er ný hreyfing sem vill berjast gegn fullri aðild að Evrópusambandinu. Stofnfundur fer fram á mánudag. Halldór Benjamín Þorbergsson, einn stofnfélaga, segir að þó svo að baráttan fari fram um hásumar skynji hann mikinn áhuga. Skráningum rigni inn. Það sé ábyrgð þjóðar að kynna sér málið fyrir kosningar í ágúst. Innlent 1.7.2026 18:57
Eftirspurn eftir kókaíni virðist aldrei hafa verið meiri Lögregla hefur lagt hald á um tvö hundruð kíló af kókaíni það sem af er ári, á aðeins sex mánuðum. Það er næstum tvöfalt meira en allt síðasta ár. Í kvöldfréttum í gær sagði lögregla að samfélagið þyrfti að líta í eigin barm og ræða eftirspurnina, ekki aðeins innflutninginn. Í kvöld verður rætt við Valgerði Rúnarsdóttur, framkvæmdastjóra lækningasviðs SÁÁ, um afleiðingar kókaínneyslu. Innlent 1.7.2026 18:00
Staðfesta fjölskyldutengsl nú með DNA-rannsókn Dómsmálaráðuneytið hefur skrifað undir samning við Alþjóðafólksflutningastofnunina, IOM, um framkvæmd DNA-sýnatöku og aðstoð við afhendingu ferðaskilríkja vegna mála sem tengjast fjölskyldusameiningu hér á landi. Innlent 1.7.2026 16:58
Nýtt innviðafélag hlýtur nafnið Göng og brú Innviðafélag stofnað í samræmi við lög um innviðafélag sem samþykkt voru á Alþingi 18. júní síðastliðinn hefur hlotið nafnið Göng og brú ohf. Innlent 1.7.2026 15:30
Ný hreyfing mynduð gegn aðild að ESB Áfram Ísland er ný hreyfing sem vill berjast gegn Evrópuaðild og hún hefur nú boðað til fundar í Sjálfstæðissalnum við Austurvöll þann 6. júlí. Innlent 1.7.2026 15:17