Innlent

Þeim fækkar sem lesa og skrifa skilaboð við akstur
Hlutfall fólks sem á það til að lesa skilaboð við akstur lækkar úr 40,1 prósent í 35,8 prósent á milli ára. Hlutfall þeirra sem á það til að skrifa skilaboð við akstur lækkar úr 31,8 prósent í 27,7 prósent.

Varað við vatnavöxtum og skriðuföllum: Vegir lokuðust á Vestfjörðum
Vegurinn í Ísafjarðardjúpi lokaðist í nótt eftir að áin Rjúkandi í Hestfirði flæddi yfir veginn. Einnig féll aurskriða yfir veginn í sama firði, með þeim afleiðingum að nokkrir ökumenn komust ekki leiða sinna.

Fjórir handteknir í tengslum við rán
Fjórir voru handteknir á höfuðborgarsvæðinu í gærkvöldi eða nótt í tengslum við rán. Nokkrum var hins vegar sleppt eftir skamma stund en málið er í rannsókn.

Sóttvarnaraðgerðir „aldeilis ekki“ meiri en í Svíþjóð
Alma Möller, oddviti Samfylkingarinnar í Kraganum, segir það hafa verið nauðsynlegt að fletja kúrfuna í upphafi Covid-faraldurs. Ísland komi vel út í rannsóknum á umframdauðsföllum og sóttvarnaraðgerðir hafi verið síst meiri hérlendis en annars staðar.

Bíll festist eftir aurskriðu við Dýrafjarðargöng
Vegurinn að gangamunna Dýrafjarðarganga lokaður vegna aurskriðu. Einn bíll var á ferðinni og festist í aurnum, en ökumaður sem var einn í bílnum slasaðist ekki.

Alræmdi túristahópurinn tók líka yfir pítsustað
Hópur indverskra ferðamanna, sem fjallað hefur verið um að hafi valdið miklu fjaðrafoki með framferði sínu í Staðarskála í gær, var mættur á veitingastað í Reykjavík í gærkvöldi og olli ekki síður miklum usla.

Hrafnar opna lokaðan póstkassa eins og ekkert sé
Nokkrir hrafnar hafa gert sér að leik að opna póstkassa á sveitabæ í Árborg og tekið öll gluggaumslögin í kassanum og rifið þau niður eða farið með þau eitthvað í burtu. Þeir neita þó að borga reikningana í umslögunum.

Fyrrverandi félagsmálaráðherra eigi eftir að svara í máli Yazans
Dómsmálaráðherra segir að fyrrverandi félagsmálaráðherra hafi enn ekki svarað hvaða upplýsingar hann hafði sem kröfðust þess að stöðva ætti brottför fjölfatlaðs palestínsks drengs og fjölskyldu úr landi í haust. Hún er ósátt við niðurstöðu málsins.

Hafi ekki sakað blaðamenn um hleranir: „Ég sagði það ekki og hef hvergi sagt það“
Jón Gunnarsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, segir ekki rétt að hann hafi sakað blaðamenn um að standa í hlerunum sem beindust að syni hans, Gunnari Bergmann Jónssyni. Hann setur þó spurningamerki við vinnubrögð blaðamanna.

„Gæsahúð, án gríns“
Ný sýning verður opnuð á laugardaginn, degi íslenskrar tungu, í Eddu, húsi íslenskunnar, en þar munu sum af verðmætustu handritum Íslendinga vera til sýnis. Fréttastofa fékk forskot á sæluna þegar að handritin voru flutt á milli húsa í dag.

Sagði að Þórdís myndi undirrita vegna tengsla Bjarna við Hval
Sonur Jóns Gunnarssonar á að hafa sagt á upptöku að faðir sinn hafi tekið sæti á lista Sjálfstæðisflokksins í skiptum fyrir að komast í aðstöðu til að veita veiðileyfi til Hvals hf. Þá hafi hann sagt að utanríkisráðherra muni undirrita útgáfu leyfisins vegna hagsmunatengsla forsætisráðherra.

Leynilegar upptökur og hrafnar sem tæta í sig reikninga fólks
Ísraelskt njósnafyrirtæki sendi leynilegar upptökur á íslenska fjölmiðla. Jón Gunnarsson svarar fyrir málið í myndveri.

Í gæsluvarðhald vegna alvarlegra ofbeldisbrota í Hafnarfirði
Karlmaður á fimmtugsaldri var í dag úrskurðaður í vikulangt gæsluvarðhald í Héraðsdómi Reykjaness í þágu rannsóknar á alvarlegum ofbeldisbrotum.

Bauð leyniupptökur af spillingu í nafni ísraelsks njósnafyrirtækis
Leynileg upptaka sem virðist hafa verið grundvöllur umfjöllunar um aðstoðarmann forsætisráðherra og hvalveiðar var boðin fleirum en Heimildinni í síðustu viku. Boðin voru send í nafni ísraelsks njósnafyrirtækis sem vann meðal annars fyrir Harvey Weinstein.

Bein útsending: Tekist á um samgöngur í Norðvesturkjördæmi
Oddvitar í Norðvesturkjördæmi koma saman á opnum fundi á Ísafirði í dag þar sem meðal annars verður rætt um samgönguinnviði og Vestfjarðarlínu. Innviðafélag Vestfjarða heldur fundinn þar sem farið verður yfir hvernig forsvarsmenn flokka bregðast við ákalli um stórátak í uppbyggingu samgönguinnviða.

Hafa tilkynnt E. coli veikindin til Sjóvá
Enn eru þrjú börn inniliggjandi á Barnaspítalanum vegna E. coli sýkingar á leikskólanum Mánagarði. Tvö eru á legudeild og eitt á gjörgæslu. Barnið er ekki í lífshættu að sögn Valtýs Stefánssonar Thors yfirlæknis á barnaspítala Hringsins. Sjóvá hafa borist tilkynningar og fyrirspurnir vegna veikindanna en Félagsstofnun stúdenta er bótaskyld vegna þeirra.

Ók á sjö kindur og drap þær
Sjö kindur drápust um helgina á Suðurlandi þegar var ekið á þær. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Lögreglunni á Suðurlandi. Þar segir að frá því á föstudag hafi verið skráð um 150 mál hjá embættinu.

Ekki púað á Snorra
Ein mest lesna frétt fréttavefsins Mannlífs um þessar mundir er undir fyrirsögninni „Púað á Snorra“. Eitthvað er það málum blandið og við ritun og birtingu fréttarinnar gerði Reynir Traustason ritstjóri þau örmu mistök að upplýsa um heimildarmann sinn – í ógáti.

„Ásakanir Svandísar í minn garð eru lygi frá rótum“
Snorri Másson oddviti Miðflokksins í Reykjavíkurkjördæmi Suður segir að hann „sundli við fúkyrðaflaumi“ Svandísar Svavarsdóttur í hlaðvarpinu Ein pæling fyrir helgi. Hann segir ásakanir Svandísar í hans garð lygi frá rótum.

„Ásakanir Jóns Gunnarssonar eru rangar“
Ritstjóri Heimildarinnar hefur vísað þungum ásökunum Jóns Gunnarssonar alfarið á bug. Hann sagði blaðamenn Heimildarinnar hafa staðið að því að tálbeita veiddi upplýsingar um hvalveiðar upp úr syni hans.

Elduðu úti, óðu yfir vaktstjórann og fylltu matsalinn
Rekstrarstjóri bensínstöðvarinnar í Staðarskála segir farir starfsfólks síns ekki sléttar eftir samskipti við stóran hóp erlendra ferðamanna í gær. Hópurinn hafi gengið fram með svo miklum dónaskap að það hálfa væri meira en nóg.

Nauðsynlegt að sameinast um aðgerðir í jafnréttismálum
Gestir á Heimsþingi kvenleiðtoga segja kominn tími til að grípa til aðgerða til að vinna gegn því bakslagi sem hafi orðið í jafnréttismálum á alþjóðlegri grundu. Þetta segir stjórnarformaður þingsins sem hófst í morgun.

Tálbeita á Edition og vegklæðning flettist af í Öxnadal
Í hádegifréttum verður meðal annars fjallað um hið undarlega mál sem Jón Gunnarsson þingmaður lýsti í Facebook uppfærslu í morgun.

Bein útsending: Heimsþing kvenleiðtoga
Heimsþing kvenleiðtoga Reykjavik Global Forum, fer fram í Hörpu í dag og á morgun. Þingið er skipulagt í samstarfi við fjölmarga erlenda og innlenda aðila, og í ár er sérstök áhersla lögð á að kvenleiðtogar taki höndum saman undir yfirskriftinni „Power Together for Action.”

Settur forstjóri skipaður forstjóri
Guðlaugur Þór Þórðarson umhverfis-, orku og loftslagsráðherra hefur skipað Rúnar Leifsson í embætti forstöðumanns Minjastofnunar Íslands. Hann hefur verið settur forstjóri Minjastofnunar frá 1. maí 2023, þegar þáverandi forstjóri lét af störfum.

Sautján sóttu um embætti skrifstofustjóra fjármála
Sautján hafa sótt um embætti skrifstofustjóra fjármála í heilbrigðisráðuneytinu en umsóknarfrestur rann út 28. október síðastliðinn.

Pallborðið: Hvaða lausnir bjóða flokkarnir?
Í kosningapallborði fréttastofunnar í dag er rætt við frambjóðendur þeirra flokka sem fengju einna flest þingsæti á Alþingi samkvæmt könnunum, sumir hafa verið að sækja á en fylgi annarra að dala. Þátturinn verður í beinni útsendingu og hefst klukkan 14.

Fimm prósent segja innflytjendamálin mikilvægust
Efnahagsmál eru að flestra mati mikilvægasta mál komandi kosninga, en heilbrigðismál rata oftar á lista fólks yfir þau fimm málefni sem leggja þurfi áherslu á. Þrátt fyrir að hafa farið hátt í umræðunni telja aðeins fimm prósent að innflytjendamál séu mesta forgangsmálið.

Verðlaunuð fyrir að berjast gegn slúðri
Freyja Rós Haraldsdóttir, kennari, jafnréttisfulltrúi og gæðastjóri við Menntaskólann á Laugarvatni, hlaut hvatningarverðlaun Dags gegn einelti sem afhent voru á föstudaginn. Valið var úr innsendum tilnefningum.

Tveir af fimm telja hvalveiðar veikja stöðu Íslands í alþjóðlegum viðskiptum
Rúm fjörutíu prósent Íslendinga segjast telja að hvalveiðar veiki stöðu Íslands í alþjóðlegum viðskiptum. Tæplega fjórtán prósent segja veiðarnar styrkja stöðu Íslands að einhverju leyti. Hátt í helmingur telur veiðarnar ekki hafa nein áhrif.