Síðustu strandaglóparnir komust til Keflavíkur í nótt Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 27. febrúar 2026 12:03 Bogi segir starfsfólk Icelandair hafa unnið þrekvirki í gær. Síðustu farþegar Icelandair sem lentu í töfum vegna hríðarbyls við Keflavíkurflugvöll síðdegis í gær og var því lent á varaflugvöllum voru komnir til Keflavíkur um tvöleytið í nótt. Forstjóri segir leiðakerfi Icelandair hafa verið komið á réttan snúning í morgun og segir starfsfólk hafa unnið þrekvirki.
Beina þurfti fimmtán farþegaþotum Icelandair síðdegis í gær á varaflugvelli í Reykjavík, á Akureyri og á Egilsstöðum eftir að skyndilegur stormur skall á við Keflavíkurflugvöll. Ástandið hafði í heild þannig áhrif á tvö þúsund farþega. Bogi Nils Bogason forstjóri Icelandair segir daginn hafa gengið vel miðað við óvæntar aðstæður. Ótrúlegt verk í krefjandi aðstæðum „Því þetta kom mjög óvænt upp og hafði veruleg áhrif á aðstæður í Keflavík þannig það var ekki hægt að lenda þar þannig það voru fimmtán vélar sem fóru annað, fimm til Reykjavíkur, átta til Akureyrar og tvær til Egilsstaða og þetta sýnir náttúrulega bara hversu mikilvægir varaflugvellir okkar eru þegar svona aðstæður koma upp sem getur alltaf gerst hér á Íslandi.“ Sex hundruð farþegar voru enn á Akureyri þar til seint í gær þar sem skipta þurfti út áhöfnum fjögurra véla vegna starfstíma. „Og það var þannig að síðustu farþegar fóru klukkan tvö í nótt frá Keflavíkurflugvelli og þeir sem þurftu að fara á hótel fóru þangað um þrjú í nótt. Síðan komst leiðakerfið okkar bara á réttan snúning að langmestu leyti í morgun sem er frábærlega vel gert af okkar fólki, þannig ég vil nýta tækifærið og þakka starfsfólki Icelandair fyrir frábæra vinnu í krefjandi aðstæðum og þakka líka okkar farþegum fyrir þolinmæðina, þetta gekk mjög vel í krefjandi aðstæðum.“ Einn farþega sem hafði beðið í átta tíma á Akureyri sendi fréttastofu ábendingu og kvartaði undan upplýsingaskorti af hálfu Icelandair. Hafið þið fengið margar kvartanir og ábendingar frá farþegum eftir gærdaginn? „Ekki hingað til, við höfum meira fengið af jákvæðri endurgjöf en við að sjálfsögðu tökum tillit til og finnst gott að fá ábendingar um það sem betur má fara og við viljum alltaf gera betur í svona aðstæðum.“
Fréttir af flugi Icelandair Reykjavíkurflugvöllur Keflavíkurflugvöllur Isavia Akureyrarflugvöllur Egilsstaðaflugvöllur Mest lesið Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir Innlent Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Innlent Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Erlent „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Innlent Ekið á fimm ára barn á hjóli Innlent Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Erlent Vilja formlega afsökun frá Selenskí Erlent Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Innlent Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Erlent Tilkynnt um tvær líkamsárásir Innlent Fleiri fréttir Harðari tónn en áður hafi verið sleginn Uppsagnir, undarleg taktík og umtöluð ræða Ekið á fimm ára barn á hjóli Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Skil næstu lægðar nálgast Tilkynnt um tvær líkamsárásir Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Stutt geti verið í kosningar Boðar fyrstu lögin og reglurnar gagnvart gervigreind Eldur á Hellu Slökkvilið kallað út í Hafnarfjörð Segir merkilegt að einkaskilaboð séu rædd á Alþingi Beitti úðavopni á vegfarendur Sextán ára unglingar sóttir í bæinn eftir afskipti lögreglu Svara verði í hvaða umboði skilaboðin voru send Maður á sextugsaldri með áverka á höfði eftir árás ungmenna Verður gervigreindin mennskari eða fólk eins og gervigreind? Efnahagsmálin, SÁÁ og skítapotturinn á Sprengisandi Skemmtistað lokað í miðborginni vegna fjölda ungmenna Söfnuðu 32 milljónum fyrir langveik börn Tómas kominn aftur til starfa Siðferðislegir hugleysingjar neiti að semja um frið Þyrlan lenti við Hörpu Daði spreytir sig í Gettu betur Ráðherra hafi hrakið hana úr starfi: „Ég mun aldrei gleyma svipnum á Ragnari“ Umdæmin mishrifin af fækkun embætta Tugir mættir til þess að mótmæla ríkisstjórninni Sjá meira