Innlent
18 19 20 21 22 23 24 25 26 … 334 ›
Inga geti ekki slegið af kröfum og ekki hægt að vinna með Sigmundi Björn Leví Gunnarsson fyrrverandi þingmaður Pírata spáir því að næsta ríkisstjórn verði sett saman af Sjálfstæðisflokknum, Viðreisn og Samfylkingunni. Erfitt sé fyrir Samfylkingu og Viðreisn að fara í stjórn með Flokki fólksins því Inga Sæland geti ekki slegið af sínum kröfum. Innlent 1.12.2024 22:33
„Ég ætla að standa mig betur“ Úrslit kosninganna gjörbreyta áformum verðandi þingmanns Samfylkingarinnar sem ætlaði að flytja til Spánar og skrifa bækur. Nýkjörnir þingmenn Viðreisnar stefna á að vera samferða í vinnuna þegar þingstörf hefjast. Innlent 1.12.2024 22:02
„Elstu menn muna vart eftir svo miklum ís“ Vatn er farið að flæða yfir göngustíga við Ölfusá vegna ís- og krapamyndunar og er fólk beðið að sýna varúð. Lögreglan fer í reglulegar eftirlitsferðir um svæðið til að fylgjast með þróuninni. Innlent 1.12.2024 21:44
Bjarni og Sigmundur segja eðlilegt að Kristrún fái fyrst umboð Bjarni Benediktsson formaður Sjálfstæðisflokksins segir eðlilegt að Kristrún Frostadóttir formaður Samfylkingarinnar fái stjórnarmyndunarumboð fyrst. Það vinni ekki margt með Sjálfstæðisflokknum svo hann geti gert kröfu um að fá það fyrst. Samfylkingin eigi að fá tilraun til þess að vinna úr því hann er stærstur flokka á þingi. Þetta kom fram í formannaspjalli við Heimi Má Pétursson eftir kvöldfréttir. Innlent 1.12.2024 21:36
„Vinstri vængurinn er í raun og veru úti“ Vinstri græn guldu afhroð í kosningunum og ná ekki manni á þing í fyrsta skipti síðan flokkurinn var stofnaður árið 1999. Flokkurinn á jafnframt ekki rétt á framlögum úr ríkissjóði en flokkar þurfa að fá að lágmarki 2,5 prósent atkvæða. Formaður flokksins segir þingið missa sterka rödd fyrir náttúruvernd og kvenfrelsi. Innlent 1.12.2024 21:02
„En þá snappar Bjarni sem ég tel vin minn“ Bolli Kristinsson, oft kenndur við 17, kaus Miðflokkinn en óskar þess heitast að fá að koma heim í Sjálfstæðisflokkinn sem hafi yfirgefið hann. Bjarni Benediktsson hafi snappað þegar Bolli og aðrir reyndu að búa til DD-lista í september Innlent 1.12.2024 20:45
„Ekkert sérstök upplifun“ og „ákveðinn léttir“ að missa þingsæti Willum Þór Þórsson, fráfarandi heilbrigðisráðherra, segir vonbrigði að detta út af þingi eftir að útlit var fyrir að hann myndi halda sæti sínu, alveg þar til síðustu tölur bárust eftir hádegi í dag. Björn Leví Gunnarsson, oddviti Pírata í Reykjavík suður sem einnig kveður þingið segir niðurstöðuna vonbrigði og létti í senn. Innlent 1.12.2024 19:45
Vatnsstaðan ekki verið hærri frá flóðinu 2006 Vatnsyfirborð Ölfusár hækkar og hækkar vegna klakastíflu sem hefur myndast í henni. Hækkunina má sjá myndrænt á myndum þar sem klakinn nálgast grenitré sem stendur á toppi Jórukletts í miðri ánni. Innlent 1.12.2024 19:43
Flokkssystkin ætla samferða í vinnuna og Vinstri græn syrgja Stjórnarandstaðan bætti við sig tuttugu og fjórum þingsætum og er Samfylkingin stærsti sigurvegarinn en hún bætti við sig níu mönnum. Kjörsókn var 80,2 prósent, eða örlítið meiri en í síðustu þingkosningum. Innlent 1.12.2024 18:00
Formenn gera upp kosningaúrslitin í beinni á Stöð 2 Formenn og leiðtogar flokka sem náðu inn á þing eða féllu af þingi í kosningunum í gær mæta í spjall hjá Heimi Má á Stöð 2 strax að loknum kvöldfréttum. Stjórnarflokkarnir þrír biðu afhroð í kosingunum en þrír stjórnarandstöðuflokkar með Samfylkinguna í broddi fylkingar unnu stóra sigra. Innlent 1.12.2024 17:47
Kveikt í póstkössum og blaðagámi Tilkynnt var um eld í fjölbýlishúsi í dag en þegar lögregla kom á vettvang var samkvæmt dagbók lögreglunnar búið að slökkva hann. Þegar lögregla var komin kom í ljós að einnig hafði verið kveikt í póstkassa í næsta stigagangi auk þess sem tilkynnt var um að kveikt hefði verið í blaðagámi nokkrum götum frá. Innlent 1.12.2024 17:47
Embætti og stöður sem losna eftir kosningar Mikið hefur verið fjallað um fjölda embættismanna sem voru í framboði til Alþingis í nýafstöðnum kosningum. Þar að auki er fjöldi sveitastjórnarfólks í framboði. Spurningin er hvaða stöður og embætti losna eftir kosningarnar? Innlent 1.12.2024 17:27
Óviss með framtíð sína innan Pírata Oddviti Pírata í Reykjavíkurkjördæmi norður segir flokkinn þurfa að fara í innri endurskoðun og ákveða sína vegferð næstu árin. Hún sé þó ekki viss hvort hún taki þátt í því verkefni. Innlent 1.12.2024 16:59
Lokatölur í Suðvesturkjördæmi: Willum Þór úti í kuldanum Sjálfstæðisflokkurinn hlaut afgerandi bestu kosningu sína í Suðvesturkjördæmi, kjördæmi formanns og varaformanns flokksins. Willum Þór Þórsson, sem var ráðherra fyrir Framsóknarflokkinn, datt út af þingi. Innlent 1.12.2024 16:24
Brynjar hvetur flokk sinn til að fara í naflaskoðun Brynjar Níelsson, frambjóðandi Sjálfstæðisflokksins í þriðja sæti á lista Sjálfstæðisflokks í Reykjavík suður segist, í grátklökku kveðjubréfi, líklega vera að setja Íslandsmet í að hætta í pólitík en nú er komið að leiðarlokum hjá þessari Facebookstjörnu Sjálfstæðisflokksins. Innlent 1.12.2024 16:22
Eldur í íbúð í Vesturbergi Eldur kviknaði í íbúð á annarri hæð í íbúðahúsi í Vesturbergi í Breiðholti á fjórða tímanum í dag. Innlent 1.12.2024 16:04
VG rak ekki kosningabaráttuna á yfirdrætti Snærós Sindradóttir spyr þeirrar spurningar sem margir velta fyrir sér: Hvernig standa fjármálin hjá Vinstri grænum? Ekki vel segir Sunna Valgerðardóttir en kosningabaráttan var þó ekki rekin á yfirdrætti. Innlent 1.12.2024 15:37
31 snýr ekki aftur á þing Af 63 þingmönnum síðasta kjörtímabils hverfa 30 á braut þegar nýtt þing tekur til starfa. Innlent 1.12.2024 15:07
Halla forseti hittir alla formennina á morgun Halla Tómasdóttir forseti Íslands segist ætla að hitta alla formenn flokkanna á morgun, það er þeirra sem náðu inn á þing, með það fyrir augum að taka afstöðu til stjórnarmyndunarumboðs. Innlent 1.12.2024 14:56
„Langt frá því sem við í Vinstri grænum vonuðum“ Svandís Svavarsdóttir formaður Vinstri grænna þakkar stuðningsfólki og samstarfsfólki sínu fyrir samvinnuna í færslu á Facebook fyrr í dag. Samkvæmt niðurstöðum úr Alþingiskosningum þurrkast flokkurinn alveg út af þingi og missir rétt sinn til árlegra fjárframlaga til stjórnmálasamtaka úr ríkissjóði. Innlent 1.12.2024 14:49
Aldursforseti þingsins er grjóthörð í horn að taka Aldursforsetinn á næsta þingi, sú sem kom inn síðust sem jöfnunarþingmaður í Suðvestur, er Jónína Björk Óskarsdóttir fyrir Flokk fólksins. Hún segist ekki hafa séð þetta fyrir. Innlent 1.12.2024 13:42
Úrslit á landsvísu: Þessi sitja á þingi næsta kjörtímabil Fjórir stjórnarandstöðuflokkar bættu samtals við sig 24 þingsætum í alþingiskosningunum í gær á meðan ríkisstjórnarflokkar síðasta kjörtímabils guldu sameiginleg afhroð. Vinstri græn þurrkuðust út af þingi en Sjálfstæðisflokkur vann varnarsigur. Innlent 1.12.2024 13:28
Krossar fingur vegna Sigurðar Inga Sigríður Á. Andersen hefur tryggt sér þingsæti fyrir Miðflokkinn og Halla Hrund Logadóttir tekur nýliðasæti fyrir Framsóknarflokkinn. Halla Hrund bindur enn vonir við að Sigurður Ingi tryggi sér sæti á þingi. Innlent 1.12.2024 12:45
Stórsigur stjórnarandstöðu, fyrstu viðbrögð og stemning fram á nótt Farið verður ýtarlega yfir helstu niðurstöður alþingiskosninganna í hádegisfréttum Stöðvar 2, Vísis og Bylgjunnar núna klukkan tólf. Innlent 1.12.2024 11:58
Væri æskilegt að geta séð niðurstöður eftir kjörstöðum Formaður Sjálfstæðisflokksins segist klóra sér í hausnum yfir velgengni Flokks fólksins sem fjármálaráðherra til langs tíma. Margt sem flokkurinn hafi talað fyrir myndi kosta ríkissjóð verulega. Bjarni segir æskilegt að hægt yrði að sjá nánara niðurbrot atkvæða í kjördæmunum. Innlent 1.12.2024 11:52
„Ég er sá fyrsti sem hafnaði þessari ríkisstjórn“ Bjarni Benediktsson formaður Sjálfstæðisflokksins er hvergi nærri af baki og lýsir því yfir að það séu ýmis stjórnarmynstur inni í myndinni. Hann lítur ekki á niðurstöður kosninganna sem einhvern sigur vinstrisins. Innlent 1.12.2024 11:51
Lokatölur í Norðvesturkjördæmi: Flokkur fólksins með flesta þingmenn Sjálfstæðisflokkurinn hlaut flest atkvæði í Norðvesturkjördæmi en Flokkur fólksins flesta þingmenn. Sex flokkar fengu yfir tíu prósent atkvæða í kjördæminu og hvern sinn kjördæmakjörna þingmanninn. Innlent 1.12.2024 11:42
Lokatölur í Norðausturkjördæmi: Gömlu stjórnarflokkarnir töpuðu fjórðungi atkvæða Ríkisstjórnarflokkarnir töpuðu samtals tæplega fjórðungi þeirra atkvæða sem þeir fengu í síðustu kosningum í Norðausturkjördæmi. Vinstri græn þurrkuðust út í kjördæmi sem var helsta vígi flokksins utan Reykjavíkur. Innlent 1.12.2024 11:36
„Þannig fór um sjóferð þá“ „Þannig fór um sjóferð þá,“ segir Þórhildur Sunna Ævarsdóttir, þingflokksformaður Pírata, um úrslit næturinn en ljóst þykir að Píratar eru dottnir út af þingi. Innlent 1.12.2024 11:31
Framsókn: Það verður alltaf sviðasulta í kæliborðinu Kristinn Hrafnsson ritstjóri Wikileaks er einn þeirra sem býður upp á greiningu á stöðu mála nú að loknum kosningum. Hann segir Kristrúnu Frost Taylor Swift kosninganna. Innlent 1.12.2024 11:11