Innlent
300 301 302 303 304 305 306 307 308 … 334 ›
Bein útsending: Hátíðardagskrá á degi íslenskrar tungu Haldið er upp á dag íslenskrar tungu í 28. sinn í dag. Í Eddu, húsi íslenskunnar, fer fram sérstök hátíðardagskrá klukkan 16. Innlent 16.11.2023 15:32
Kanna hvort vegabréf og peningar hafi verið haldlögð Íslensk stjórnvöld og Landamæra- og strandgæslustofnun Evrópu vinna að því að kanna afdrif 180 Venesúelamanna sem synjað var um alþjóðlega vernd hér á landi. Fólkinu var flogið í beinu leiguflugi til Venesúela í gær. Talið er að fólkið sé í haldi lögreglu í Venesúela. Vegabréf þess hafi verið handlögð. Innlent 16.11.2023 15:20
Átta ára fangelsi fyrir skotárás og fleiri brot Fannar Daníel Guðmundsson hefur verið dæmdur til átta ára fangelsisvistar vegna skotárásar á skemmtistaðnum The Dubliner í mars síðastliðnum auk fleiri brota. Innlent 16.11.2023 15:03
Opna dagdvöl fyrir heimilislausa yfir köldustu vetrarmánuðina Velferðarráð Reykjavíkur samþykkti í gær að ganga til samstarfs við Samhjálp um rekstur dagdvalar fyrir heimilislausa yfir köldustu vetrarmánuðina. Öðrum sveitarfélögum á höfuðborgarsvæðinu hefur verið boðið að vera með gegn hlutdeild í kostnaði. Innlent 16.11.2023 15:00
Ægisíðan verulega ógeðsleg Bjarni Brynjólfsson fyrrverandi upplýsingastjóri Reykjavíkurborgar segir ástandið við Ægisíðuna slæmt og fjörukantinn þar verulega ógeðslegan: Endalausar skólpleifar í þarabunkum, leifar af klósettpappír og fleira miður geðslegt. Innlent 16.11.2023 14:54
Ætla að tryggja Grindvíkingum laun næstu mánuði Félagsmála- og fjármálaráðherra vinna nú að frumvarpi sem á að leggja fyrir ríkisstjórn á morgun sem á að tryggja að Grindvíkingar fái laun næstu mánuði. Horft er til úrræða í kórónuveirufaraldri við gerð frumvarpsins. Innlent 16.11.2023 14:21
Vilja fella út meinlegan staf úr tóbakslögum Píratar leggja fram frumvarp þar sem lagt er til að fellt verði út alfarið ákvæði sem bannar fjölmiðlum að fjalla um einstakar vörutegundir tóbaks nema til að vara sérstaklega við skaðsemi þeirra. Innlent 16.11.2023 14:16
Ofbauð að Clinton fengi sviðið og afboðaði komu sína Skipuleggjendur bókmenntahátíðarinnar Iceland Noir eru miður sín vegna umræðu sem skapast hefur í kringum komu bandarísku stjórnmálakonunnar Hillary Clinton á viðburð tengdan hátíðinni. Þeir benda þó á að hátíðin snúist um bókmenntir - ekki pólitík. Rithöfundur sem hætti við að koma fram á Iceland Noir vegna afstöðu Clintons til vopnahlés á Gasa segir ekkert annað hafa verið í stöðunni en að sniðganga hátíðina. Innlent 16.11.2023 14:10
Orkuverinu í Svartsengi verði fjarstýrt til áramóta Páll Kristinsson, rekstrarstjóri í orkuveri HS Orku í Svartsengi, segir að starfsmenn búist við því að þurfa að fjarstýra orkuverinu til áramóta hið minnsta. Reykjanesvirkjun geti framleitt rafmagn fari allt á versta veg en erfiðara verði með heitt og kalt vatn, þó unnið sé að lausnum. Innlent 16.11.2023 13:27
Gleymdi hvað hann ætlaði að sækja vegna hryllingsins sem blasti við Baldvin Einar Einarsson, íbúi í Grindavík, segir hús sitt í norðurhluta bæjarins ónýtt. Óvissan sé algjör en hann búi nú hjá þriggja manna fjölskyldu sonar síns í fjörutíu fermetra íbúð. Hann flutti til Grindavíkur fyrir fjórum árum til að vera nærri foreldrum sínum sem nú eru fallnir frá. Innlent 16.11.2023 12:46
Vonast til að koma rafmagni aftur á innan nokkurra klukkustunda Vinnuflokkar frá HS Veitum hafa verið í bænum fyrir hádegið en rafmagn fór af stórum hluta bæjarins í gær. Innlent 16.11.2023 12:36
Kennari fær engar bætur eftir stympingar við nemanda Kona sem hlaut tíu prósent örorku í starfi sínu sem kennari eftir átök við nemanda, sem átti sér sögu um hegðunarvanda, fær engar skaðabætur. Héraðsdómur komst að þeirri niðurstöðu að konan hefði ekki átt að beita líkamlegu inngripi þegar nemandi hljóp um matsal skólans. Innlent 16.11.2023 12:35
Líður ekkert alltof vel í Svartsengi Ingi Rúnar atvinnubílstjóri segir að bílstjórum sem vinna að gerð varnargarðanna líði ekkert alltof vel að vera á svæðinu. Unnið sé alla nóttina. Innlent 16.11.2023 12:31
Aukið viðbragð í kjölfar grunsamlegra mannaferða Löggæsla í Grindavík hefur verið aukin eftir að tilkynningar bárust um grunsamlegar mannaferðir að næturlagi. Lögregla stendur nú vaktina allan sólarhringinn. Fjölmiðlum er hins vegar meinaður aðgangur að bænum í dag. Innlent 16.11.2023 12:05
Vilja leggja jafnlaunavottunina niður Miðflokkurinn, þeir Sigmundur Davíð Gunnlaugsson og Bergþór Ólason, hafa lagt fram þingsályktunartillögu þar sem gert er ráð fyrir því að jafnlaunavottunin verði lögð niður. Innlent 16.11.2023 12:03
Þitt nafn bjargar Justynu Hin árlega og alþjóðlega herferð, Þitt nafn bjargar lífi, hefst í dag. Amnesty segir herferðina hafa breytt lífi þolenda mannréttindabrota frá því henni var komið á fót árið 2001. Innlent 16.11.2023 11:59
Beina sjónum sínum helst að miðju gangsins Smáskjálftavirkni í kvikuganginum við Sundhnúk heldur áfram og GPS gögn sýna að gliðnun heldur áfram. Jarðeðlisfræðingur og deildarstjóri hjá Veðurstofunni segir stöðuna svipaða og í gær og að þau eigi alveg eins von á gosi í dag, á morgun eða næstu daga. Innlent 16.11.2023 11:55
Hádegisfréttir Bylgjunnar Í hádegisfréttum verður rætt við Lögreglustjórann á Suðurnesjum sem segir að löggæsla í bænum hafi verið aukin eftir að til sást til grunsamlegra mannaferða að næturlagi í bænum. Innlent 16.11.2023 11:39
Nýr Baldur siglir til Stykkishólms í dag Nýja Breiðafjarðarferjan Baldur er að verða tilbúin í áætlunarsiglingar milli Stykkishólms og Brjánslækjar um Flatey. Komu skipsins verður fagnað með athöfn í Stykkishólmi á morgun. Innlent 16.11.2023 11:11
Taldi Skattinn aftur hafa gengið fram hjá sér vegna kynferðis Skatturinn braut ekki gegn lögum um jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna þegar kona var ráðin í starf sérfræðings á Eftirlis-og rannsóknasviði hjá stofnuninni. Þetta er niðurstaða kærunefndar jafnréttismála. Um er að ræða í annað sinn á þremur árum sem maðurinn kærir ráðningu embættisins til nefndarinnar. Innlent 16.11.2023 10:54
Vy-þrif kærð til lögreglu Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur hefur kært þriffyrirtækið Vy-þrif til lögreglu fyrir ólöglega matvælageymslu í kjallara í Sóltúni í Reykjavík. Fyrirtækið hafði frest til 14. nóvember til að bregðast við erindi eftirlitsins en gerði það ekki. Innlent 16.11.2023 10:45
Bjóða Grindvíkingum ókeypis áskrift að Stöð 2 og Stöð 2+ Stöð 2 hefur ákveðið að bjóða öllum íbúum með lögheimili í Grindavík mánaðaráskrift að Stöð 2 og streymisveitunni Stöð 2+. Þetta kemur fram á Facebook-síðu Stöðvar 2. Innlent 16.11.2023 10:36
Segja TEAM-Iceland vinnuheiti: Líti út eins og dæmigerð eftiráskýring Mennta- og barnamálaráðuneytið segir hið umdeilda heiti TEAM-Iceland fyrst og fremst vera vinnuheiti sem notað er í erlendum samskiptum, í tengslum við ráðstefnuna Vinnum gullið, og ekki hafi verið fastsett viðeigandi nafn á íslensku á væntanlega afreksmiðstöð. Innlent 16.11.2023 10:34
Kennarar og skólastjórnendur verði líka að fá að vera „íbúar í áfalli“ Stjórn Kennarasambands Íslands hefur sent frá sér ályktun vegna aðstæðna í Grindavík þar sem segir meðal annars að það sé lykilatriði að kennarar og skólastjórnendur í bænum fái tíma og tilfinningalegt svigrúm til að vinna úr því áfalli sem hefur dunið yfir. Innlent 16.11.2023 10:34
Íslenska verður á undan ensku á Keflavíkurflugvelli Stjórn Isavia hefur tekið ákvörðun um að íslenskan verði á undan öðrum tungumálum á öllum leiðbeiningarskiltum fyrir árslok 2024. Í tilefni af Degi íslensrar tungu hefur verið hleypt af stokkunum átakinu Höldum íslenskunni á lofti. Innlent 16.11.2023 10:12
Ef gos hefst nærri Þorbirni gæti hraun þá runnið inn í Grindavík? „Ef gýs nærri Þorbirni getur það vissulega gerst að hraun rynni inn í Grindavík. Það fer þó eftir hvar gossprunga er staðsett hversu útsettur bærinn er fyrir hraunrennsli.“ Innlent 16.11.2023 09:03
Tæplega tvö hundruð Venesúelamenn yfirgáfu landið í gær Tæplega tvö hundruð Venesúelamönnum, sem synjað hafði verið um alþjóðlega vernd, fóru úr landi í gær og var flogið með beinu flugi til Venesúela. Innlent 16.11.2023 08:57
Sundlaugin lekur Ljóst er að ráðast þarf í framkvæmdir á laugarkeri sundlaugarinnar á Þingeyri þar sem það lekur. Eftir að grunur kviknaði um leka var ákveðið að stöðva áfyllingu í einn sólarhring og lækkaði vatnsyfirborðið þá um 25 sentimetra. Dúkurinn er talinn ónýtur enda kominn til ára sinna. Innlent 16.11.2023 08:49
Búið að hafa samband við alla þá sem fá að fara inn í bæinn í dag Búið er að hafa samband við þá íbúa Grindavíkur sem eiga kost á að fara inn í bæinn í dag. Lögregla ítrekar að þeir einir fái að fara inn í bæinn sem aðgerðastjórnin í Reykjanesbæ hefur nú þegar haft samband við. Innlent 16.11.2023 08:00
Ellert Eiríksson er látinn Ellert Eiríksson, fyrrverandi bæjarstjóri Reykjanesbæjar, er látinn, 85 ára að aldri. Hann lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja síðastliðinn sunnudag. Innlent 16.11.2023 07:30