Innlent

Tæplega tíu milljarða viðsnúningur
A-hluti Reykjavíkurborgar skilaði 4,7 milljarða króna afgangi í fyrra, sem er 9,7 milljarða króna viðsnúningur frá fyrra ári. Rekstrarniðurstaða A- og B- hluta Reykjavíkurborgar fyrir árið 2024 var jákvæð um 10,7 milljarða króna, sem er 14,1 milljarði betri niðurstaða en árið áður.

Kári var harðákveðinn að hætta ekki sem forstjóri
Starfslok Kára Stefánssonar, forstjóra Íslenskrar erfðagreiningar, komu starfsfólki fyrirtækisins í opna skjöldu. Það vekur athygli að í ítarlegri fréttatilkynningu frá almannatengslafyrirtækinu Athygli tjáir Kári sig ekkert um starfslokin. Hann sagðist um áramótin harðákveðinn að ætla ekki að setjast í helgan stein. Hann myndi starfa til dauðadags.

Stuðningsmenn Oscars mótmæltu og Kári Stefáns hættur
Í hádegisfréttum fjöllum við um mótmæli sem efnt var til á Hverfisgötunni í morgun fyrir utan fundarstað ríkisstjórnarinnar.

Bein útsending: Kynna ársreikning Reykjavíkurborgar
Heiða Björg Hilmisdóttir borgarstjóri kynnir ársreikning Reykjavíkurborgar fyrir árið 2024 á blaðamannafundi klukkan 11:30. Sýnt verður beint frá fundinum hér á Vísi.

„Við gerum ekki svona við börn“
„Ég er gáttaður á því hvernig þetta samfélag kýs að koma fram við börn,“ segir tónlistarmaðurinn Páll Óskar Hjálmtýsson. Hann er meðal þeirra sem mótmæltu fyrirhugaðri brottvísun hins 17 ára Oscars við fundarstað ríkisstjórnar í dag.

Mótmælt við ríkisstjórnarfund: „Oscar á heima hér“
Mótmæli standa nú yfir fyrir utan fundarstað ríkisstjórnarinnar á Hverfisgötu. Mótmælendur krefjast þess að stjórnvöld dragi til baka brottvísun hins kólumbíska Oscar Andre Bocanegra Florez.

Kári hættur hjá Íslenskri erfðagreiningu
Kári Stefánsson, stofnandi og forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar, hefur látið af störfum sem forstjóri hjá fyrirtækinu. Unnur Þorsteinsdóttir og Patrik Sulem taka við sem nýir framkvæmdastjórar Íslenskrar erfðagreiningar.

Lokunin óásættanleg og muni leiða til verðhækkana fyrir íbúa
Sveitarstjórn Vopnafjarðarhrepps segir að ákvörðun Póstsins um lokun pósthússins í bænum sé með öllu óásættanleg. Pósthúsinu í bænum var lokað síðasta dag nýliðins aprílmánaðar og krefst sveitarstjórn að ákvörðunin verði endurskoðuð. Sveitarstjórn óttast að lokunin muni leiða til verðhækkana fyrir íbúa.

Líkamsárásir og brotist inn í raftækjaverslun
Lögregla á höfuðborgarsvæðinu hafði í ýmsu að snúast í gærkvöldi og í nótt og var meðal annars kölluð út vegna líkamsárása, innbrots og slagsmála ungmenna við verslunarmiðstöð.

Grunaður um að hafa frelsissvipt ferðamann í nokkrar klukkustundir
Maður um fertugt er grunaður um að hafa haldið erlendum ferðamanni í gíslingu í nokkrar klukkustundir auk þess sem hann hafi verið vopnaður byssu. Hann var úrskurðaður í fjögurra vikna gæsluvarðhald fyrr í dag af Héraðsdómi Reykjavíkur samkvæmt umfjöllun RÚV.

Hikar ekki við að lögsækja skyldi Rafmennt nota nafn skólans
Stofnandi Kvikmyndaskóla Íslands segist ekki hika við að lögsækja Rafmennt skyldi félagið nota nafn Kvikmyndaskóla Íslands eða námskránna sem notast var við. Námskráin sé hans eigin hugarsmíð.

Myndaveisla: Lúðrasveit, fánar og gríðarstór stytta á Verkalýðsdaginn
Margt var um manninn í miðborg Reykjavíkur í tilefni Verkalýðsdagsins. Fólkið safnaðist saman á Skólavörðustíg og gengu þau saman niður á Ingólfstorg. Þar var útifundur þar sem Karla Esperanza Barralaga Ocón starfskona í umönnun, trúnaðarmaður og stjórnarmaður í Eflingu og Jóhanna Bárðardóttir rafveituvirki, rafvirki og trúnaðarmaður RSÍ, tóku til máls. Viktor Freyr Arnarsson ljósmyndari fangaði stemninguna.

Kalla eftir mannúð og miskunnsemi stjórnvalda gagnvart börnum
Prestar og djáknar kalla eftir mannúð og miskunnsemi stjórnvalda í málum barna sem „eiga allt sitt undir ákvörðunarvaldi íslenskra stjórnvalda .“ Þau óska eftir dvalarleyfi fyrir sautján ára kólumbískan dreng og lýsa yfir samstöðu við hann og fjölskyldu hans.

Fulllestað og veikt flutningskerfi raforku
Mikil þörf er fyrir aukna raforkuframleiðslu í landinu vegna fjölda verkefna, sem eru í gangi eða eru að fara af stað en þar spila gagnaver og önnur stórnotkun miklu máli, auk orkuskipta. Í dag er flutningskerfi raforku fulllestað og frekar veikt að sögn framkvæmdastjóra hjá Landsneti.

Þekkir ofbeldið sem konur í karllægum störfum verða fyrir
„Ég var tæplega þrítug þegar ég ákvað að láta ekki staðalímyndir, fordóma og mótlæti hafa áhrif á það hvað ég ætlaði að verða þegar ég yrði stór. Ég skráði mig í nám á rafvirkjabraut í FB og í dag get ég sagt með stolti að ég er ein af ríflega hundrað konum sem hafa lokið sveinsprófi í rafvirkjun á Íslandi,“ segir Jóhanna Bárðardóttir, formaður Félags fagkvenna. Hún var meðal þeirra sem hélt ræðu á Verkalýðsdaginn í Reykjavík.

Vilja móta samfélagið í þágu vinnandi fólks
Forsætisráðherra lagði áherslu á samvinnu stjórnvalda og verkalýðshreyfingarinnar í ávarpi sínu á Verkalýðsdaginn. Flokkar líkt og Samfylkingin þurfi áframhaldandi stuðning til að starfa í þágu vinnandi fólks.

Íslenskum framleiðendum gerðir afarkostir og kröfugöngur verkalýðsins
Íslenskir framleiðendur eru milli steins og sleggju að sögn framkvæmdastjóra Félags atvinnurekenda vegna krafa nýs rekstraraðila fríhafnarinnar á Keflavíkurflugvelli. Fjallað verður um málið í kvöldfréttum Stöðvar 2.

Verkalýðsdagurinn haldinn í skugga sjálftöku forystumanna
Sigurður Kári Kristjánsson, fyrrverandi þingmaður Sjálfstæðisflokksins, segir verkalýðsdaginn vera haldinn í skugga sjálfstöku verkalýðsforingja þetta árið. Hann gagnrýnir margmilljóna króna starfslokagreiðslur til verkalýðsleiðtoga sem snéru sér að öðrum starfsvettvangi.

Breytt veiðigjaldafrumvarp lagt fram
Frumvarp Hönnu Katrínar Friðriksson atvinnuvegaráðherra um hækkun veiðigjalda hefur verið lagt fram á Alþingi eftir að hafa tekið breytingum í kjölfar samráðs. Brugðist hafi verið við ákalli sveitarfélaga um að gæta að áhrifum á litlar útgerðir og ábendingum um skort á mati á áhrifum.

Kaffistofa leigubílstjóra orðin „nyrsta moska í heimi“
Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra segir að kaffiskúr leigubílstjóra á Keflavíkurflugvelli sé orðinn „nyrsta moska í heimi.“ Hann segist gruna að Isavia þori ekki að taka á málinu en að það sé þeirra að svara fyrir.

Kalla saman ráðherranefnd svo rafmagnsleysi endurtaki sig ekki hér
Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra segir að verið se að grípa til aðgerða til að koma í veg fyrir að upp komi umfangsmikið rafmagnsleysi hér á landi eins og varð á Íberíuskaga á mánudag.

Birgir Guðjónsson er látinn
Birgir Guðjónsson, stærðfræðikennari við Menntaskólann í Reykjavík, lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi að morgni sumardagsins fyrsta, 24. apríl síðastliðinn, 68 ára að aldri.

Niðurstöðu um styrkjamálið megi vænta með vorinu
Umfjöllun stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar um styrkjamálið svokallaða er komin langt á veg og búast má við niðurstöðu nefndarinnar með vorinu.

„Þetta er mikill merkisdagur fyrir okkur“
Alþjóðlegur baráttudagur verkalýðsins er í dag. Af því tilefni verða kröfugöngur og dagskrá um land allt. Verkalýðsleiðtogi segir enn ýmislegt til að berjast fyrir og að dagurinn sé gríðarlega mikilvægur.

Handtóku vopnaðan mann og kröfugöngur verkalýðsins
Einn var handtekinn í miðborg Reykjavíkur í morgun eftir að lögreglu var tilkynnt um mann vopnaðan skotvopni í heimahúsi við Hverfisgötu. Aðstoðaryfirlögregluþjónn segir aðgerðina hafa gengið vel.

„Ég skipaði þá aðila sem ég taldi hæfasta“
Inga Sæland félags- og húsnæðismálaráðherra segist hafa skipað þá aðila sem hún taldi hæfasta í stjórn Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar. Þingmaður Miðflokksins gagnrýndi ráðherra fyrir að gæta ekki jafnréttislaga við skipun stjórnarinnar en áttatíu prósent nýrra stjórnarmanna eru karlmenn.

Hátíðardagskrá um allt land á verkalýðsdaginn
Víða um land verður blásið til kröfugöngu og hátíðardagskrár í tilefni af verkalýðsdeginum 1. maí.

Tilkynnt um mann vopnaðan skotvopni og einn handtekinn
Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu barst tilkynning um mann vopnaðan skotvopni á Hverfisgötu og var því sérsveitin kölluð út. Einn hefur verið handtekinn og er málið enn í rannsókn.

Líkamsárás á veitingastað
Lögreglu barst tilkynning um líkamsárás á veitingastað í miðborginni í nótt og er málið nú til rannsóknar.

Pilturinn muni líklega afplána þriðjung átta ára dóms fyrir manndráp
Sautján ára piltur hefur verið dæmdur í átta ára fangelsi fyrir að ráða hinni sautján ára Bryndísi Klöru Birgisdóttur bana á Menningarnótt í fyrra. Afbrotafræðingur segir dóminn þungan miðað við aldur drengsins.