Uppsagnirnar hafi líka áhrif á þá sem eftir verða Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 27. ágúst 2026 23:57 Tæplega níutíu var sagt upp. Vísir Félagsráðgjafafélag Íslands, Sálfræðingafélag Íslands og Viska stéttarfélag lýsa yfir þungum áhyggjum af skipulagsbreytingum og uppsögnum hjá Reykjavíkurborg. Tugum var sagt upp í vikunni.
Tæplega níutíu starfsmönnum var sagt upp hjá Reykjavíkurborg í vikunni vegna skipulagsbreytinga. Uppsagnirnar náðu til velferðar-, frístunda- og skólasviða. Félögin þrjú segja það vekja upp alvarlegar spurningar þegar fjölmennur hópur fagfólks fái uppsagnarbréf á sama tíma og borgin hafi sagst ætla að styrkja framlínuþjónustu, samfellu og koma í veg fyrir þjónusturof. „Aðgerðir sem slíkar vekja upp efasemdir um að markmiðum borgarinnar verði náð,“ segir í yfirlýsingu félaganna. Að baki hverju stöðugildi séu verkefni og þjónusta sem fólk þurfi á að halda. Börn og fjölskyldur hætti ekki að þurfa stuðning þrátt fyrir að skipuriti sé breytta en þegar fagfólk hverfi úr starfi geti orðið rof á þjónustunni. Fjölskyldurnar verði hins vegar ekki einungis fyrir áhrifum. „Áhrif uppsagnanna ná ekki aðeins til þeirra sem fengu uppsagnarbréf 25. ágúst heldur hafa þau áhrif á starfsanda þeirra sem eftir verða, meira álag og minna starfsöryggi, og að lokum á þjónustuþegana sjálfa. Þá hefur einnig komið í ljós að þessar miklu breytingar eru því sem næst óútfærðar sem aftur eykur á óöryggi starfsfólks.“ Stéttarfélögin segjast standa þétt við bakið á starfsfólki sem þessar breytingar snerta. Sömuleiðis óska þau eftir skýrum svörum frá Reykjavíkurborg um forsendur og framkvæmd breytinganna, áhrif þeirra á starfsfólk, málafjölda og vinnuálag og hvernig tryggt verði að þjónusta við börn, fjölskyldur og aðra viðkvæma hópa sem treysta á þjónustuna skerðist ekki. „Félögin telja einnig mikilvægt að árétta að ákvarðanir sem þessar eru ekki teknar í samráði við stéttarfélög, sem einungis fá tilkynningu um ákvarðanir sem eru einhliða teknar af stjórnendum borgarinnar. Við leggjum áherslu á að þegar vinnustaðir vinna að endurskipulagningu sé mikilvægt að að tryggja raunverulegt samráð við starfsfólk, trúnaðarmenn og fagfélög.“
Stéttarfélög Reykjavík Borgarstjórn Vinnumarkaður Mest lesið Maðurinn sem lést var Íslendingur Innlent „Ég elska Obbu“ Innlent Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Innlent Biður Jón afsökunar Innlent Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Innlent „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Innlent Flúði táragas lögreglu í Nice Innlent Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Innlent Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Innlent Fleiri fréttir Syrgja starfsmann sem lést í slysi Maðurinn sem lést var Íslendingur Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Flúði táragas lögreglu í Nice Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag „Ég elska Obbu“ Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Einn handtekinn vegna líkamsárásar í miðbænum Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Vara við „perragleraugum“ Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Bakar til góðs næsta sólarhringinn Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Skoða viðbrögð við rannsókn á Ölgerðinni Minna á útgáfu nafnskírteina vegna rannsóknar lögreglu Eldur í lyftara í álverinu í Straumvík Tveir reyndu að flýja lögreglu á fótum eftir eftirför „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Sjá meira