
Innlent

Hellisheiði opin á ný
Búið er að opna Hellisheiðina eftir að veginum var lokað fyrr í dag vegna veðurs.

Vonskuveður framundan
Vonskuveður á öllu landinu er framundan í kortunum að sögn veðurfræðings. Veðrið í dag hafði mikil áhrif á flugumferð.

Gunnar Bragi starfsmaður Miðflokksins
Gunnar Bragi Sveinsson, fyrrverandi þingmaður og ráðherra, hefur verið ráðinn starfsmaður Miðflokksins.

Um hundrað manns dvelja í Grindavík
Hættustigi hefur verið lýst yfir á vegna vaxandi líkna á eldgosi. Um hundrað manns dvelja nú í Grindavík og er þar aukinn viðbúnaður.

Snjóflóð féllu hjá Ólafsvík
Tvö snjóflóð féllu á veg á milli Ólafsvíkur og Rifs á Snæfellsnesi. Veðurstofa Íslands hefur lýst yfir óvissustigi á Vesturlandi vegna ofanflóðahættu. Vegurinn er nú lokaður.

Sveitarfélögin samþykkja innanhússtillögu ríkissáttasemjara
Stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga (SÍS) samþykkti í dag innanhússtillögu ríkissáttasemjara í kjaradeilu kennara, ríkis og sveitarfélaga.

„Borgin átti að vita þetta fyrir löngu, löngu síðan“
Byggingafulltrúi Reykjavíkur hefur stöðvað framkvæmdir að hluta við Álfabakka 2. Forstjóri Haga segir það breyta áætlunum fyrirtækisins varðandi flutning í húsið. Talsmaður íbúa telur að borgin hafi getað brugðist fyrr við.

Ólöf Tara Harðardóttir er látin
Ólöf Tara Harðardóttir, baráttukona og þjálfari, lést á heimili sínu í gærkvöldi. Hún stofnaði samtökin Öfga og Vitund og var kraftmikil í baráttu gegn kynbundu ofbeldi.

Óveður í beinni, gímaldið og skemmdir eftir vatnstjón
Óveðrið sem gengur yfir landið hefur valdið víðtækum samgöngutruflunum og nær öllum flugferðum innanlands og um Keflavík hefur verið aflýst. Við ræðum við flugrekstrarstjóra Icelandair og verðum í beinni frá vonskuverðinu með veðurfræðingi í kvöldfréttum Stöðvar 2.

Hellisheiðin lokuð og óvissustig vegna snjóflóða
Mörgum vegum hefur verið lokað eða eru á óvissustigi vegna veðurs. Óvissustig vegna ofanflóðshættu er í gildi á sunnanverðum Vestfjörðum og sunnanverðum Austfjörðum.

Daði óskar eftir tillögum frá almenningi um blessað brennivínið
Daði Már Kristófersson, fjármála- og efnahagsráðherra, hefur sett drög að reglugerð um endurskoðun á vöruúrvali, innkaupum og dreifingu ÁTVR á áfengi, í samráðsgátt.

Óvissustig vegna hugsanlegrar snjóflóðahættu
Veðurstofa Íslands lýsir yfir óvissustigi vegna hugsanlegrar snjóflóðahættu á sunnanverðum Vestfjörðum. Óvissustigið tók gildi klukkan fjögur í dag.

Fyrsti fulltrúi Íslands á minningarathöfninni í Auschwitz
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, utanríkisráðherra, var fyrsti fulltrúi íslenskra stjórnvalda til þess að sækja alþjóðlega athöfn til minningar um fórnarlömb helfararinnar í Auschwitz. Fyrrverandi utanríkisráðherra gagnrýndi forsætisráðherra harðlega fyrir að sækja ekki minningarathöfnina, einn norrænna leiðtoga.

Refur með fuglainflúensu
Fuglainflúensa hefur greinst í refi í Skagafirði. Refurinn var aflífaður í vikunni, en íbúi hafði fundið hann og séð að hann væri augljóslega veikur.

Kröfu foreldranna vísað frá
Héraðsdómur Reykjavíkur hefur vísað frá kröfum hóps foreldra leikskólabarna, um að viðurkennt yrði að verkfall leikskólakennara væri ólögmætt.

Halda herberginu og ekkert verður úr setuverkfalli
Þingflokkur Sjálfstæðisflokksins mun halda þingflokksherbergi sínu í Alþingishúsinu og er því ljóst að ekkert verður af áður „boðuðu setuverkfalli“.

Ósakhæfur þegar hann olli árekstri og lagði líf konu í rúst
Karlmaður sem var ákærður fyrir að keyra undir áhrifum og valda hörðum árekstri var metinn ósakhæfur af Héraðsdómi Vesturlands. Manninum var þó gert að greiða kona sem slasaðist alvarlega í árekstrinum þrjár milljónir í miskabætur. Þá þarf hann að greiða 410 þúsund króna sekt innan fjögurra vikna, ellegar þarf hann að sitja 24 daga í fangelsi.

„Við erum ekki að horfa á Excel-skjöl, við erum að horfa á börn“
Jónína Einarsdóttir, áheyrnarfulltrúi leikskólastjóra í skóla- og frístundaráði Reykjavíkur, bókaði á síðasta fundi skóla- og frístundaráðs að mikil óánægja væri meðal leikskólastjóra með nýtt verklag við innritun í leikskóla hjá Reykjavíkurborg.

Framkvæmdir stöðvaðar að hluta
Framkvæmdir við Álfabakka 2A, þar sem unnið er að byggingu „græna gímaldsins“ svokallaða, hafa verið stöðvaðar að hluta af byggingarfulltrúa Reykjavíkurborgar. Nánar tiltekið hafa framkvæmdir við fyrirhugaða kjötvinnslu á jarðhæð hússins verið stöðvaðar vegna skorts á mati á umhverfisáhrifum.

Kennarar óttist vanefndir
Stjórnarmaður í Kennarafélagi Reykjavíkur segir kennara hvekkta vegna vanefnda í síðustu kjarasamningum og óttist að þær haldi áfram verði innanhússtillaga ríkissáttasemjara samþykkt. Hún kallar eftir stuðningi frá aðstandendum barna í skólamálum.Héraðsdómur Reykjavíkur kveður upp dóm í dag í máli foreldra leikskólabarna gegn Kennarasambandinu vegna verkfallsaðgerða.

„Búumst við hinu versta en vonum það besta“
Borgarstarfsmenn eru nú á fullu við að tryggja niðurföll og tugum flugferða hefur verið aflýst vegna veðurspár, sem gerir ráð fyrir hvassviðri og asahláku. Gular og appelsínuguglar viðvaranir taka gildi ein af annarri frá hádegi.

Kennarar melta tillögu ríkissáttasemjara
Í hádegisfréttum fjöllum við um kennaradeiluna en Ríkissáttasemjari kom með innanhússtillögu í gær sem nú er til umfjöllunar.

Minningargreinamálið fer ekki fyrir Hæstarétt
Hæstiréttur hefur ákveðið að taka ekki fyrir svokallað minningargreinamál. Í byrjun nóvember staðfesti Landsréttur dóm héraðsdóms þar sem Reyni Traustasyni og félaginu Sólartúni, útgefanda Mannlífs, var gert að greiða Morgunblaðinu fimmtíu þúsund krónur fyrir vegna endurbirtingar á minningargreinum blaðsins, sem og þrjú hundruð þúsund krónur til bróður manns sem Mannlíf birti minningargrein um.

Lá við árekstri á meðan flugumferðarstjórar horfðu á úrslitaleikinn
Alvarlegt flugatvik varð þann 25. febrúar árið 2024 þegar tvær litlar flugvélar rákust nánast saman í lofti yfir Skerjafirði. Á sama tíma voru flugumferðarstjórar að horfa á úrslitaleik enska deildabikarsins í knattspyrnu, þar sem Liverpool hafði betur gegn Chelsea.

Bein útsending: Er aukin kjöt- og próteinneysla leiðin að bættri heilsu?
Heilsan okkar er ný fundaröð Háskóla Íslands og Landspítala sem hefur það að markmiði að varpa ljósi á áríðandi mál líðandi stundar sem varða heilsu og heilbrigðisþjónustu. Á fyrsta fundinum verður reynt að svara spurningunni: „Er aukin kjöt- og próteinneysla leið að bættri heilsu?“ Sýnt verður frá fundinum, sem hefst klukkan 11:30, hér á Vísi.

Lítið sem ekkert flug framundan
Rúmlega fimmtíu komum og brottförum á Keflavíkurflugvöll hefur verið aflýst í dag. Þetta kemur fram inn á vef flugvallarins.

Vilhjálmur stýrir stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd Alþingis
Samkomulag hefur náðst á milli stjórnar og stjórnarandstöðu um að Vilhjálmur Árnason, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, verði formaður stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar Alþingis. Fyrrverandi dómsmálaráðherra verður varaformaður allsherjar- og menntamálanefndar.

Gagnrýna að einkarekstri leikskóla hafi verið haldið frá bæjarstjórn
Fulltrúar Samfylkingarinnar í bæjarstjórn Hafnarfjarðar gagnrýna að meirihlutinn hafi ákveðið að nýr leikskóli í bænum yrði einkarekinn án umræðu í bæjarstjórn í trássi við sveitarstjórnarlög. Samingur um reksturinn var samþykktur á miðvikudag.

Þorsteinn Skúli tekur formannsslaginn
Þorsteinn Skúli Sveinsson hefur ákveðið að gefa kost á sér til formanns VR. Þorsteinn Skúli er lögfræðingur og starfaði lengi hjá VR sem sérfræðingur á kjarasviði.

Taka ákvörðun í mars um hvort flokksþingi verði flýtt
Miðstjórn Framsóknarflokksins mun koma saman til fundar „um eða upp úr miðjum mars“. Þar verður tekin ákvörðun um hvort flokksþingi verði flýtt.