Páll biður einhvern að forða því að Ísland verði að athlægi Jakob Bjarnar skrifar 22. júlí 2026 09:09 Páll telur illt afspurnar að á Bjargtanga sé skilti þar sem því er haldið fram að þar sé um að ræða vestasta odda Evrópu. vísir/Einar/Marco Battini Páll Einarsson jarðfræðingur biðlar til þeirra sem hafa með skiltið við Bjargtanga að gera að það verði lagfært áður en útlendingar furða sig á landafræðikunnáttu Íslendinga. Sá sem setti skiltið upp segir að þetta sé gamall barnaskólalærdómur sem hafi verið innprentaður í barnsminnið. „
Sé ekki betur en að búið sé að endurnýja skiltið við Bjargtanga, þar sem því er haldið fram að þetta sé vestasti staður í Evrópu. Vissulega er þetta vestasti staður á Íslandi, en alls ekki í Evrópu,“ segir Páll á Facebook-síðu sinni og fær mikil viðbrögð. Páll bendir á að Asoreyjar séu í Evrópu og þar búi fjöldi Evrópubúa talsvert vestar en þetta er. Og nú þegar almyrkvinn er á næsta leiti, en þann 12. ágúst verða þau undur og stórmerki, er þetta illt afspurnar. Mikill fjöldi gesta væntanlegur „Nú stefnir fjöldi útlendinga á þennan stað á næstu vikum. Ég skora á viðeigandi fólk að leiðrétta þetta skilti áður en við verðum að athlægi fyrir skort á landafræðikunnáttu. Asoreyjar eru í Evrópu, jafnmikið og Ísland.“ Vísir lagði í heilmikla rannsóknarvinnu og hafði fyrst samband við Sigríði Ó. Kristjánsdóttur, framkvæmdastjóra Vestfjarðarstofu, sem sagði hana ekkert hafa með þetta skilti að gera. Gerður Björk Sveinsdóttir, bæjarstjóri í Vesturbyggð, var næst og hún sagði að þetta væri flókið mál. Hún vissi allt um það eftir að hugmyndir komu upp í bæjarráði að friðlýsa Látrabjarg; eigendurnir væru fjölmargir. Það var ekki fyrr en Vísir hringdi í Jón „múrara“ Pétursson sem málin fóru að skýrast. Innprentað í barnsminnið að þetta væri vestasti tanginn „Ég gerði þetta skilti,“ sagði Jón. Nú? „Já, og það sem meira er, það eru margir sem hafa skammað mig fyrir þetta. En ég held mig við það sem gömlu karlarnir sögðu mér, þeir Ásgeir Erlendsson á Látrum og Þórður Björnsson. Þeir héldu því alltaf fram að Asoreyjar væru ekkert á Evrópuflekanum,“ segir Jón. Jón Pétursson gæist út um gat skiltis síns. Hann segist hafa frétt að Vestfirðingum hafi verið meinilla við þessar upplýsingar um Asoreyjar, þær hafi breytt heimsmynd þeirra.aðsend Og hann bætir því við að þegar hann var krakki í barnaskóla á Patreksfirði hafi þetta verið innprentað í barnsminnið, að Bjargtangi væri vestasti oddi Evrópu. „Þetta stóð í kennslubókum og ég stóð alltaf í þeirri meiningu. Svo kom upp þessi béfaði blettur á Asoreyjum. Ég hef það fyrir satt að Vestfirðingum sé alltaf illa við hann því hann breytti heimsmyndinni.“ Hér bar því vel í veiði. Jón segir að sér sé ekkert alltof vel við túristana og ágang þeirra en hann hafi nú samt gert þetta fyrir þá, að setja upp þetta skilti. „Ég setti upp lítið skilti fyrir nokkrum árum og það voru bara einhverjar GPS-tölur á því. Því var stolið. Þetta nýja fór upp í fyrravor og stóð allt síðasta sumar og það sem af er þessu. Mér fannst gráupplagt að fólk gæti staðið í holunni. Þetta var nú bara í einhverju bríaríi.“ Harðort bréf til umhverfisstofnunar Jón segir að menn hafi verið að bauna á hann í þessu með Asoreyjar, en það sé þá ekki mikið alvarlegra en sú þvæla sem alls konar leiðsögumenn fylla ferðamenn með. Sú vitleysa sé með miklum ósköpum. Barnabörn Jóns, þær Edda María og Sigrún María, við gamla skiltið sem var stolið.aðsend „Við tökum egg hérna úr bjarginu og þá hafa ferðamenn verið að sniglast í kringum okkur. Og ég er viss um að íslensk leikskólabörn vita meira en þeir. Það voru alls konar spurningar, hvort við værum að gefa fuglunum, hvort við værum að telja eggin og svo þegar við sögðum þeim að við borðuðum eggin kom harðort kvörtunarbréf til Umhverfisstofnunar, að það væru menn sem væru að borða eggin úr björgunum.“ Jón segir þó að hann sé að velta því fyrir sér að breyta skiltinu, að setja Norður-Evrópu inn og það væri þá rétt. Vestasti tangi Norður-Evrópu. En hann er ekkert að flýta sér við það.
Almyrkvi 12. ágúst 2026 Jarða- og lóðamál Vesturbyggð Ferðaþjónusta Látrabjarg Mest lesið Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Innlent Möguleg tengsl við heilabilun Innlent „Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Innlent Kókaínið hafi verið lykilþáttur í vinskapnum Innlent Brynhildur nýr formaður og Gísli Marteinn í stjórn Innlent Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Innlent „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ Innlent Hló að svari sambýliskonunnar Innlent Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Erlent Kona með alvarlega áverka eftir líkamsárás Innlent Fleiri fréttir Sjálfstæðisflokkurinn tapar fylgi Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Umferðarslys við Nýbýlaveg í Kópavogi Gæsluvarðhald sonar þingmannsins aftur framlengt Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Hló að svari sambýliskonunnar Tilboð hrikalega hátt yfir kostnaðaráætlun Kona með alvarlega áverka eftir líkamsárás Brast í grát þegar hún lýsti aðkomu að látnum bróður Möguleg tengsl við heilabilun Skora á borgina að afturkalla uppsagnir á samningum við listamenn Brynhildur nýr formaður og Gísli Marteinn í stjórn „Enn ein vondu tíðindin af þessu máli“ Kókaínið hafi verið lykilþáttur í vinskapnum Verðbólga, uppsagnir og mikil notkun svefnlyfja Forstjórar leita lausna Fulltrúi prentara vill verða forseti ASÍ Sýklalyfjanotkun í dýrum jókst um rúm tuttugu prósent „Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Aðalmeðferð hafin vegna meints manndráps á Kársnesi „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ „Dýr geta augljóslega ekki sjálf leitað réttar síns“ Segir upp eftir tvær vikur í starfi Lægð upp að landinu og önnur dýpri á morgun Tólf með réttarstöðu sakbornings vegna andláts á Stuðlum Einn stöðvaður sem var að „drifta“ á hringtorgi Vinnuvél var ekið upp undir Bústaðavegsbrú Talsvert fleiri karlar en konur teknir fyrir akstur undir áhrifum „Sorglegt að þetta sé staðan“ Gætir fengið allt rétt á prófi en átta í einkunn Sjá meira