
Golf

Birgir missir af mótinu í Kasakstan - vegabréfsáritunin í ólagi
Ekkert verður af því að Birgir Leifur Hafþórsson leiki á áskorendamótaröðinni í þessari viku eins og til stóð. Birgir var kominn til Frankfurt í Þýskalandi þegar í ljós kom að vegabréfsáritun hans til Kasakstan þar sem mótið fer fram var ekki í lagi.

Tiger Woods fellur áfram eins og steinn niður heimslistann
Bandaríski kylfingurinn Tiger Woods heldur áfram að hrapa niður heimslistann og fellur hann niður um sex sæti frá því í síðustu viku. Woods er þessa stundina í 44. sæti. Bandaríkjamaðurinn Webb Simpson er nú í 14. sæti eftir sigurinn á Deutsche Bank meistaramótinu í gær en hann var áður í 27. sæti.

Simpson hefur unnið sér inn 600 milljónir kr. á þessu ári
Bandaríski kylfingurinn Webb Simpson er í miklum ham þessar vikurnar en hann landaði sínum öðrum sigri á aðeins þremur vikum á PGA mótaröðinni í golfi í gær. Simpson sigraði á Deutsche Bank-meistaramótinu eftir bráðabana gegn Chez Reavie en þeir léku báðir á 15 höggum undir pari.

Stefán Már og Signý stigameistarar á Eimskipsmótaröðinni í ár
Að loknu lokastigamótinu á Eimskipsmótaröðinni, Chervolet mótinu á Urriðavelli, kom í ljós hvaða kylfingar eru stigameistarar í islenska golfinu í ár. Stigameistararnir eru krýndir þegar er búið að taka saman öll sex mótin sem voru á Eimskipsmótaröðinni í sumar.

Stefán og Sunna unnu lokastigamót Eimskipsmótaraðarinnar
Lokastigamótið á Eimskipsmótaröðinni lauk í dag með tvöföldum sigri hjá GR, en þau Stefán Már Stefánsson og Sunna Víðisdóttir unnu bæði sannfærandi.

Thomas Björn vann annað mótið í röð
Danski kylfingurinn, Thomas Björn, bar sigur úr býtum á evrópska Mastersmótinu í Sviss, en hann lék á níu höggum undir pari á lokadeginum eða á 62 höggum.

Signý komin heim - ósátt við þjálfara og aðstöðu
Signý Arnórsdóttir, kylfingur úr Golfklúbbnum Keili, er hætt í Troy háskólanum í Alabama. Signý var ósátt við æfingaaðstöðuna og þjálfara sinn að því er fram kemur í viðtali við vefsíðuna Kylfingur.is.

Thomas Björn hafði betur í fimm manna bráðabana
Danski kylfingurinn Thomas Björn stóð uppi sem sigurvegari á Johnnie Walker meistaramótinu sem fram fór á Gleneagles vellinum í Skotlandi. Björn hafði betur gegn fjórum öðrum kylfingum í bráðabana um sigurinn en fimm kylfingar voru efstir og jafnir eftir 72 holur.

J.B. Holmes á leiðinni í heilaskurðaðgerð
Bandaríski kylfingurinn J.B. Holmes gengst í næstu viku undir heilaskurðaðgerð. Holmes var nýlega greindur með "Chiari malformation", sem er galli í þeim stöðvum heilans sem stýra jafnvægisskyni.

Montgomerie dreymir um sæti í Ryder-liði Evrópu
Skoska kylfinginn Colin Montgomerie dreymir um að spila eitt skipti enn fyrir hönd Evrópu í Ryder-bikarnum. Sex ár eru síðan Montgomerie spilaði síðast fyrir Evrópu en hann á að baki átta keppnir fyrir hönd álfu sinnar. Þá var hann fyrirliði Ryder-liðsins í fyrra.

Ólafía Þórunn og Arnór Ingi Íslandsmeistarar í holukeppni
GR-ingarnir Ólafía Þórunn Kristinsdóttir og Arnór Ingi Finnbjörnsson urðu í kvöld Íslandsmeistarar í holukeppni en mótið fór fram á Strandarvelli á Hellu. Arnór Ingi vann heimamanninn Andra Má Óskarsson úr GHR í úrslitaleik eftir bráðabana en Ólafía Þórunn vann Signýju Arnórsdóttur úr Keili í úrslitaleik.

Ólafur komst ekki í gegnum niðurskurðinn
Ólafur Björn Loftsson er úr leik á Wyndham PGA-mótinu í Bandaríkjunum en hann var aðeins einu höggi frá því að komast í gegnum niðurskurðinn.

Stutta spilið að skila Ólafi Birni svona ofarlega
Ólafur Björn Loftsson þarf að treysta á stutta spilið hjá sér á PGA-mótinu í Greensboro í Norður-Karólínu. Þegar tölfræði fyrsta dagsins er skoðuð sést að það eru voru aðeins fjórir keppendur á mótinu sem slógu styttra að meðaltali en Ólafur á þessum fyrsta hring.

Ólafur Björn: Stefnan sett á sigur eins og ávallt
Ólafur Björn Loftsson fór vel af stað á Wyndham PGA-mótinu í Norður-Karólínuríki í gær og lék á tveimur höggum undir pari. Var hann vel fyrir ofan miðjan hóp og á góðan möguleika á að komast í gegnum niðurskurðinn ef hann heldur sig á sömu braut.

Ólafur Björn: Er fullur sjálfstrausts
Ólafur Björn Loftsson, sem nú keppir á Wyndham-mótinu á bandarísku atvinnumannaröðinni, var ánægður að loknum fyrsta keppnisdeginum.

Frábær hringur hja Ólafi Birni - á tveimur undir pari
Ólafur Björn Loftsson fór á kostum á fyrsta degi Wyndham PGA-mótsins í dag. Ólafur fór hringinn á Sedgefield-vellinum á tveimur höggum undir pari.

Ólafur Björn á tveimur undir eftir sextán holur
Ólafur Björn Loftsson, kylfingur úr Nesklúbbnum, stendur sig vel á PGA-mótinu á Sedgefield-vellinum í Norður-Karólínu. Hann hefur nú lokið sextán holum á fyrsta hring og er á tveimur höggum undir pari.

Ólafur með þrjá fugla á fyrstu sjö holunum
Ólafur Björn Loftsson, kylfingur úr Nesklúbbnum, virðist kominn í stuð á Wyndham PGA-mótinu. Ólafur Björn fékk skramba á fyrstu holu en hefur síðan þá fengið þrjá fugla og parað þrjár holur.

Ólafur Björn má ekki taka við verðlaunafénu
Áhugamaður hefur ekki sigrað á PGA-mótaröðinni í tvo áratugi. Phil Mickelson var sá síðasti sem afrekaði það, árið 1991. Ólafur Björn Loftsson getur ekki tekið við hundrað milljónum ef hann sigrar á PGA-mótinu í Norður-Karólínu.

Hækkaði sig um 300 sæti
Keegan Bradley, bandaríski kylfingurinn sem sigraði í PGA-meistaramótinu um helgina, hækkaði sig um 300 sæti á heimslistanum í golfi með sigrinum, eins og greint er frá á kylfingur.is.

Mikið undir á Sedgefield-vellinum - Ólafur Björn mætir stjörnunum
Kylfingurinn Ólafur Björn Loftsson verður í góðum félagsskap þegar hann keppir á PGA-móti á Sedgefield-golfvellinum í Greensboro síðar í vikunni. Margir af bestu og frægustu golfurum heimsins hafa boðað komu sína á mótið

Tvöfaldur sigur hjá GR
Golfklúbbur Reykjavíkur vann sigur í karla- og kvennaflokki í Sveitakeppni GSÍ sem fram fór um helgina Þetta er annað árið í röð sem GR vinnur tvöfalt.

Óvæntur en bandarískur sigur á PGA-meistaramótinu í golfi
Bandaríkjamaðurinn Keegan Bradley vann dramatískan sigur á PGA-meistaramótinu í golfi í Atlanta í Georgíuríki í Bandaríkjunum á sunnudag.

Ólafur Björn í skýjunum: Þarf að útvega mér kylfusvein fyrir PGA-mótið
Ólafur Björn Loftsson í Nesklúbbnum segir tilfinninguna ólýsanlega að hafa tryggt sér sæti á PGA-mótinu í Greensboro í Norður-Karólínu sem fram fer í næstu viku. Margir af bestu kylfingum heims verða meðal keppenda á mótinu.

Frábært afrek hjá Ólafi Birni - keppir á PGA-móti í næstu viku
Ólafur Björn Loftsson vann ótrúlegt afrek í dag þegar hann vann Cardinal-áhugamannamótið í golfi sem fór fram í Norður-Karólínu. Með sigrinum tryggði hann sér þátttökurétt á Wyndham Championship-mótinu sem fram fer í næstu viku og er á PGA-mótaröðinni.

Tvöfaldur sigur GR í Sveitakeppni GSÍ
Golfklúbbur Reykjavíkur sigraði í 1. keild karla í Sveitakeppni GSÍ sem fram fór á Leirdalsvelli um helgina, en GR sigraði GKG í úrslitaleiknum.

Útlitið gott fyrir Bandaríkjamenn - Óþekkt nöfn berjast um sigurinn
Bandaríkjamennirnir Brendan Steele og Jason Dufner eru efstir og jafnir fyrir lokahringinn á PGA-meistaramótinu í golfi á Johns Creek golfvellinum í Atlanta í Bandaríkjunum. Mótinu lýkur í dag.

Golfklúbbur Reykjavíkur í úrslit í karla- og kvennaflokki
Golfklúbbur Reykjavíkur, GR, og Golfklúbbur Kópavogs og Garðabæjar, GKG, mætast í úrslitum í 1. deild karla í Sveitakeppni Golfsambands Íslands. Í úrslitum í 1. deild í kvennaflokki mætast GR og Keilir. GR á titil að verja í báðum flokkum.

GR í góðum málum eftir riðlana í Sveitakeppninni
Golfklúbbur Reykjavíkur er í góðri stöðu í karla og kvennaflokki í Sveitakeppninni í golfi. Bæði lið urðu í efsta sæti í sínum riðli og spila í undanúrslitum síðar í dag.

Enn veldur Tiger Woods vonbrigðum
Bandaríski kylfingurinn Tiger Woods er úr leik á PGA-meistaramótinu í golfi í Atlanta. Woods var samtals á tíu höggum yfir pari eftir tvo fyrstu hringina og var langt frá því að komast í gegnum niðurskurðinn.