Harmageddon

Leoncie loksins komin heim
Indverska prinsessan er að koma sér fyrir eftir að hafa búið erlendis og spjallaði aðeins við vini sína í Harmageddon.

„Örn Bárður er einhver versta auglýsing fyrir Jesú Krist“
Umræður í Harmageddon um fordóma þjóðkirkjuprests sem fær vel borgað fyrir að bera þá út.

Sannleikurinn: Sjónvarpsmaður á RÚV sagði brandara
Íþróttafréttamanni hjá RÚV varð það á í beinni útsendingu að segja brandara og hann gæti þurft að taka pokann sinn í kjölfarið. Það er ef æstur múgurinn nær honum ekki áður.

„Ráðherra grátandi á Facebook eins og táningsstelpa“
Reynir Traustason mætti í Harmageddon og þykir afskaplega vænt um allskonar leka en gerir þá kröfu að gögn séu sönn og ekki stjórnvald að níðast á örsnauðu fólki.

Lögleiðing marijúana getur minnkað tekjur lögreglu í Colorado
Lögregla gat gert upptæka fjármuni og eignir þeirra sem teknir voru fyrir ræktun. Sú upptaka gerði það fjárhagslega skynsamlegt fyrir lögregluna að taka á málum af hörku enda húsnæði, bílar, tæki og reiðufé í boði.

Rassgatið á engu glennir sig - myndband
Handhafi titilsins mest skoðaði rass í heimi á Instagram veitir viðtal.

Samkynhneigðum óhætt á vetrarólympíuleikunum á meðan þeir láta börn vera
Vladimir Putin sagði á föstudag að samkynhneigðir gætu andað rólega í Sochi, á meðan þeir létu börn vera. Gylfi Ægisson, "andstæðingur klámvæðingar“ var fljótur að koma auga á þennan bandamanns sinn.

Hvaða samfélagsmiðlaplága kemur næst?
Frá Ástralíu berast okkur fregnir af ört vaxandi samfélagsmiðlasporti sem virðist vera taka janúar með trompi og gæti orðið það næsta sem við fussum yfir. Það felur í sér drykkju, fíflagang og í sumum tilvikum lífshættu.

Sannleikurinn: Bilun hjá Símanum olli því að þingmenn Pírata misstu samband við stjórnstöð
Margrét Stefánsdóttir, upplýsingafulltrúi Símans, segir að bilunin hafi meðal annars orðið til þess að Helgi Hrafn Gunnarsson, þingmaður, fraus í ræðustól og varð að fara með hann í viðgerð.

„Íslenski bjórinn orðinn dominerandi á markaðnum“
Stefán Pálsson, bjórskólakennari, mætti í menningarhorn Harmageddon og ræddi bjórmenningu.

The Simpsons biðja Judas Priest afsökunar
Aðdáendur bresku hljómsveitarinnar Judas Priest allt annað en sáttir eftir að tónlist sveitarinnar var kölluð dauðarokk í nýlegum þætti af The Simpsons.

Ísland í röngu tímabelti
Breyting á klukkunni ekki vitlausasta hugmyndin sem hefur heyrst á Alþingi.

Glott tímarit - Bull er framtíðin
Þorsteinn Guðmundsson grínisti mætti í Harmageddon og ræddi nýtt tímarit sem hann gefur út.

Strangheiðarlegur og hafður fyrir rangri sök
Stefán Stefánsson hjá Öryggisvarðaskólanum var í viðtali hjá Harmageddon.

Grimmur gyðingur fallinn frá
Stutt minningargrein um Ariel Sharon. Hvíldu í friði vinur.

Jón Gnarr svarar spurningum á Reddit í kvöld
Þar gefst lesendum tækifæri að spyrja borgarstjórann að hverju sem er og mun hann reyna að svara sem flestum á meðan tími gefst til.

Segir umhverfisráðherra ekki notast við rök
Mörður Árnason mætti í viðtal í morgun og ræddi rökleysi umhverfisráðherra.

Segir þingmenn misnota þinghlé vegna sveitarstjórnarkosninga
Þór Saari segir þingmenn misnota fríið til að styðja við bakið á félögum sínum í sveitastjórnarkosningunum og það á fullum launum.

Sannleikurinn: Brynjar Níelsson varpar enn einni sprengjunni
Þingmaðurinn hefur verið ötull baráttumaður fyrir réttindum þeirra sem meira mega sín og má ekkert aumt sjá, hvort sem það er auðmaður, Þjóðkirkjan eða vændiskaupandi.

Sannleikurinn: Fimmtungur íslensku þjóðarinnar er það feitur að hann er í raun og veru helmingur þjóðarinnar
Einn af hverjum fimm Íslendingum myndi éta fjölskyldumeðlim ef hann sullaði yfir sig bernaise sósu. Og hefur hlutfallið ríflega tvöfaldast á 20 árum.

Stjörnuspeki og stjörnufræði nánast það sama
Sigga Kling mætti í Harmageddon einn föstudagsmorgun og gerði það sem hún gerir best. - Vera skemmtileg.

Sannleikurinn: Gefur kost á sér í 4.-5. sæti
Jóhannes Guðnason gefur kost á sér í 4.-5. sæti í elleftu sætaröð, á sýningu Sambíóanna á kvikmyndinni The Wolf of Wall Street klukkan 21:00 í kvöld.

Umhverfisráðherra til í fórnir ef "fagmenn“ komast að þeirri niðurstöðu
"Þannig að þér finnst í lagi að fórna þessum fossum?" "Ef að fagmennirnir komast að þeirri niðurstöðu, þá mun ég virða þá niðurstöðu"

Sannleikurinn: Vinsælustu folunum oftast skilað
Það er ekki bara vinsælum jólabókum skilað. Konur eru líka duglegar við að losa sig við karlmenn og skila þeim.

Óvinir internetsins
Kínverjar hafa bannað margar af vinsælustu vefsíðum heims.

Sannleikurinn: Sjúklingur tafði mikilvæga ostasendingu
Mikilvæg ostasending fyrir Bónus er sögð hafa þurft að bíða í klukkustund á Egilstöðum eftir flugi á vegum Mýflugs árið 2006.

Myndband frá einum síðustu tónleikum Nirvana
Kvikmyndagerðarmaðurinn Dave Markey tók upp hluta af síðustu tónleikum Nirvana í Los Angeles og hefur nú gert myndbandið aðgengilegt á netinu.

Félagsmálaráðherra ræddi húsnæðismál, Breiðholtið og skuldaniðurfellingu
Eygló Harðardóttir, félagsmálaráðherra, ræddi húsnæðismálin í Harmageddon í morgun. Henni leið vel að alast upp í Breiðholtinu og hugmyndin um hvernig hverfið var til og samvinnan þar að baki finnst henni góð.

Sannleikurinn: Erill hjá lögreglu vegna Furby leikfanga
Furby var vinsælasta leikfangið fyrir jólin í ár en er í raun nokkuð fullkomið stríðstól sem lagt hefur líf fjölda fólks í rúst.

Stefán Jón vill bæta lífskjör starfsmanna RÚV
Stefán Jón sem barist hefur gegn fátækt í Afríku vill nú berjast gegn fátækt RÚV.