

HK slakar ekkert á í toppbaráttunni í Inkasso-deild karla en HK vann 2-0 sigur á Njarðvík í kvöld. Fjórir leikir voru í deildinni í kvöld.
Stjarnan og ÍBV deildu með sér stigunum þegar liðin mættust á Samsungvellinum í Garðabæ í kvöld. Stjarnan er nú átta stigum á eftir toppliði Breiðabliks og möguleikinn á að halda í við toppliðinn að renna þeim úr greipum.
Skagamenn burstuðu Magna í Inkasso-deild karla í kvöld en lokatölur urðu 5-0 í viðureign liðanna á Akranesi í kvöld.
Stjarnan fer í efsta sæti Pepsi-deildarinnar með eftir 2-1 sigur á ÍBV í kvöld.
Stjörnumaðurinn Hilmar Árni Halldórsson skoraði sitt tíunda mark í Pepsi-deild karla í sumar í sigri á KA á Akureyri í síðustu umferð. Hilmar Árni fær tækifæri til að bæta við marki í kvöld.
Víkingur og Ólafur Jóhannesson, þjálfari Vals, hafa náð sáttum en miklar deilur hafa staðið á milli félagsins og fyrrum landsliðsþjálfarans undanfarnar vikur og mánuði.
Grindavík reis upp eftir 2-0 tap gegn Blikum á heimavelli og vann mikilvægan sigur á Fjölnisvellinum.
FH átti ekki í vandræðum með Víking í níundu umferð Pepsi deildar karla í Kaplakrika í kvöld þar sem Hafnfirðingar fóru með 3-0 sigur. Hinn ungi Jónatan Ingi Jónsson átti frábæran leik og setti tvö glæsileg mörk.
Þjálfari Víkings, Logi Ólafsson, var ekki sáttur í leikslok og sagðist engar afsakanir hafa fyrir frammistöðu síns liðs. Víkingar lágu 3-0 gegn FH í Kaplakrika í kvöld í Pepsi deild karla.
KR gerði sér lítið fyrir og rúllaði yfir Keflavík á útivelli í kvöld. Gestirnir úr vesturbænum skoruðu fjögur mörk gegn engu marki heimamanna.
Fjórir leikir eru á dagskrá Pepsi-deildar karla í kvöld og má fylgjast með þeim öllum á sömu síðunni hér.
Stjarnan er búið að vinna þrjá leiki í röð eftir afar öflugan sigur norðan heiða á heimamönnum í KA í kvöld.
Valsmaðurinn Rasmus Christiansen brotnaði illa í leik gegn ÍBV í gær og var fluttur með sjúkraflugi til Reykjavíkur eftir leik.
Breiðablik er einu stigi frá toppliði Vals eftir 2-0 sigur á Fylki á heimavelli í kvöld. Mörkin skoruðu Willum Þór Willumsson og Andri Rafn Yeoman.
Ástríðan í Pepsimörkunum var á leik Víkings og ÍBV um helgina þegar liðin mættust í 8. umferð Pepsi-deildarinnar.
Víkingur Ólafsvík vígði nýjan gervigrasvöll með 3-0 sigri á Leikni úr Reykjavík en þrír leikir fóru fram í Inkasso-deildinni í kvöld.
Valur er með átján stig á toppi Pepsi-deildarinnar eftir fjórða sigurinn í röð.
Rasmus Christiansen, varnarmaður Vals, er að öllum líkindum fótbrotinn en hann meiddist illa í leik Vals og ÍBV sem nú stendur yfir.
Valsmenn komust í efsta sæti Pepsi-deildar karla í síðustu umferð og heimsækja Eyjamenn í kvöld þegar 9. umferðina fer af stað. Þá kemur í ljós hvort Hlíðarendapiltar ná að breyta skelfilegu gengi toppliðanna í síðustu umferðum.
Hrvoje Tokic er líklega á förum frá Breiðablik en þetta staðfestir heimasíða félagsins nú í kvöld. Danskur sóknarmaður er á reynslu hjá félaginu.
Fram lenti í engum vandræðum með Hauka er liðin mættust á Laugardalsvelli í sjöundu umferð Inkasso-deildarinnar. Lokatölur 3-1.
Tvö mörk litu dagsins ljós í uppbótartíma er FH og KR skildu jöfn, 2-2, í stórkostlegum knattspyrnuleik í Vesturbæ.
Þjálfari FH var bæði ósáttur við að hafa einungis fengið eitt stig á móti KR en á sama tíma sáttur að hafa þó náð í stigið úr því sem komið var enda lentu hans menn undir þegar um 20 sekúndur lifðu eftir ef uppgefnum viðbótartíma en leikurinn endaði 2-2.
Norðurálsmótið í knattspyrnu fór fram á Akranesi um helgina og það í 34. Skipti.
Stjarnan burstaði Fjölni á heimavelli sínum í Garðabæ þegar liðin mættust í áttundu umferð Pepsi deildar karla í dag. Sjö mörk voru skoruð í leiknum sem fór 6-1 fyrir Stjörnunni.
Stjarnan vann stórsigur á Fjölni í áttundu umferð Pepsi deildar karla í dag. Stjörnumenn skoruðu fjögur mörk á tíu mínútna kafla í seinni hálfleik og urðu lokatölur í Garðabæ 6-1.
Leiknir Reykjavík vann sinn annan sigur í Inkasso-deild karla er liðið vann 3-1 sigur á Magna í dag. Þór og HK skildu svo jöfn fyrir norðan, 2-2.
Valur er komið á topp Pepsi-deildar karla eftir 3-1 sigur á KA á heimavelli í dag. Þetta var þriðji sigur liðsins í röð.
Grindavík tapaði sínum fyrsta leik í dag síðan í 1.umferð Pepsi-deildarinnar þegar þeir biðu lægri hlut gegn Breiðablik á heimavelli í dag. Sigur Blika var sanngjarn en bæði mörkin komu í síðari hálfleik.
„Þetta var frábær sigur gegn toppliðinu. Ég er gríðarlega ánægður með strákana því aðstæður voru erfiðar, blautt og vindur. Við sköpuðum fullt af færum og fannst mér vinna sanngjarnt 2-0."