Menning

Hrúturinn (21.mars - 19.apríl)
Einhvers konar ringulreið ríkir í einkalífinu. Þetta ástand varir þó ekki lengi og er ekkert til að hafa áhyggjur af.

Meyjan (23.ágúst - 22.sept)
Vonbrigði eða óvæntar fréttir gætu haft skaðleg áhrif á stöðu þína fyrri hluta dagsins. Þú skalt því fresta mikilvægum ákvörðunum þar til síðar.

Bogamaður (22.nóv - 21.des)
Ákveðin manneskja veldur þér vonbrigðum. Eitthvað sem hún gerir breytir áætlun þinni en ekki láta það á þig fá.

Meyjan (23.ágúst - 22.sept)
Þú uppskerð eins og þú sáir og ættir því að leggja hart að þér í dag. Taktu þér þó frí í kvöld og gerðu eitthvað skemmtilegt.

Meyjan (23.ágúst - 22.sept)
Þú vinnur vel, sérstaklega í samvinnu við aðra og það ætti að skila umtalsverðum árangri. Kvöldið verður sérstaklega skemmtilegt.

Krabbinn (22.júní - 22.júlí)
Tilhneiging þín til að gagnrýna fólk auðveldar þér ekki að eignast vini eða að halda þeim sem fyrir eru. Sýndu þolinmæði hvað sem á dynur.

Tvíburarnir (21.maí - 21.júní)
Þú upplifir eitthvað skemmtilegt í dag og átt góðar stundir með vinum þínum. Vertu þolinmóður við yngstu kynslóðina.

Bogamaður (22.nóv - 21.des)
Ekki búast við miklu þakklæti fyrir það sem þú gerir fyrir aðra. Fólk virðist hugsa mest um sjálft sig. Kvöldið verður fjörugt.

Tvíburarnir (21.maí - 21.júní)
Til þín verður leitað og margir bera mikið traust til þín. Mikilvægt er að þú standir undir þeim væntingum sem til þín eru gerðar.

Nautið (20.apríl - 20.maí)
Einhver sýnir þér hlýtt viðmót áhuga sem þú áttir alls ekki von á. Þú verður mjög ánægðu með þetta en þú skalt samt ekki sýna það allt of mikið til að byrja með.

Tvíburarnir (21.maí - 21.júní)
Samvinna ætti að skila góðum árangri í dag. Andrúmsloftið á vinnustað þínum er mun betra en verið hefur undanfarið.

Krabbinn (22.júní - 22.júlí)
Einhverjir verða til að skemma fyrir þér annars ágætan dag. Best er fyrir þig að vinna í einrúmi og taka ekki áhættu.

Krabbinn (22.júní - 22.júlí)
Dagurinn gæti orðið annasamur, einkum ef þú skipuleggur þig ekki nógu vel. Farðu varlega í viðskiptum.

Krabbinn (22.júní - 22.júlí)
Þetta verður fremur rólegur dagur hjá þér og þú lætur hugann reika til gamalla tíma og minningarnar rifjast upp.

Sporðdreki (24.okt - 21.nóv)
Vertu þolinmóður þó að einhver sýni þér tillitsleysi og ætlist til of mikils af þér. Reyndu að setja þig í spor annars fólks í stað þess að hugsa alltaf bara um sjálfan þig.

Steingeit (22.des - 19.jan)
Þú finnur fyrir miklum stuðningi og áhuga á hugmyndum þínum. Þér tekst að vinna upp eitthvað sem hefur lengi setið á hakanum.

Steingeit (22.des - 19.jan)
Það bíður þín virkilega skemmtilegt og spennandi tækifæri handan götunnar. Félagslífið verður með besta móti og andinn í vinahópnum er mjög góður.

Vogin (23.sept - 23.okt)
Núna er góður tími til að bæta fyrir eitthvað sem fór aflaga fyrir stuttu. Komdu tilfinningamálunum í lag.

Steingeit (22.des - 19.jan)
Þér verður best ágengt á þeim vettvangi sem þú ert kunnugastur. Ástin og rómantíkin svífa yfir vötnum.

Meyjan (23.ágúst - 22.sept)
Þú ert í góðu jafnvægi og ættir að hugleiða mál sem þú hefur veigrað þér við að hugsa um lengi. Þú munt komast að góðri niðurstöðu.

Ljónið (23.júlí - 22.ágúst)
Fjármálin standa vel og munu fljótlega standa enn betur þar sem viðskiptin blómstra hjá þér. Láttu það eftir þér að taka það rólega í kvöld.

Bogamaður (22.nóv - 21.des)
Félagslífið er blómlegt hjá þér og þú þarft víða að koma við. Það er ekki laust við að þér finnist það einum og mikið af því góða.

Steingeit (22.des - 19.jan)
Þú hyggur á breytingar heima fyrir og þarft að fá samþykki annarra í fjölskyldunni. Það ætti að vera auðsótt mál.

Krabbinn (22.júní - 22.júlí)
Eftir fremur tilbreytingarlausan tíma í ástarlífinu fer heldur betur að lifna yfir þeim málum. Þú verður mjög upptekinn á næstunni.

Tvíburarnir (21.maí - 21.júní)
Þér gengur ekki of vel að lynda við aðra í dag og á þetta sérstaklega við í vinnunni. Gættu þess að segja ekkert sem þú gætir séð eftir.

Hrúturinn (21.mars - 19.apríl)
Þú finnur fyrir þrýstingi frá vinum sem vilja stuðning þinn í ákveðnu máli. Vertu eins hlutlaus og þú getur.

Steingeit (22.des - 19.jan)
Þú verður líklega heppinn í fjármálum næstu daga. Þú ert mun bjartsýnni en þú hefur verið undanfarið og finnst gaman að vera til.

Hrúturinn (21.mars - 19.apríl)
Reyndu að halda þig við áætlanir þínar og vera skipulagður. Þér bjóðast góð tækifæri í vinnunni og er um að gera að grípa gæsina á meðan hún gefst.

Nautið (20.apríl - 20.maí)
Ef þú hyggur á fjárfestingu skaltu fara rólega í sakirnar og vera viss um að allir aðilar séu heiðarlegir.

Fiskarnir (19.feb - 20.mars)
Ef þú ert að reyna við eitthvað nýtt er skynsamlegt að fara varlega og taka aðeins eitt skref í einu. Þú ættir að ráðfæra þig við fjölskylduna áður en þú ferð út í viðamiklar breytingar.