Menning

Hrúturinn (21.mars - 19.apríl)

Ímyndunarafl þitt er frjótt í dag og þú ættir að nýta þér það sem best. Þú þarft að treysta á sjálfan þig því að samvinna gengur ekki vel.

Menning

Bogamaður (22.nóv - 21.des)

Ef þú ert að reyna eitthvað nýtt er viturlegt að taka eitt skref í einu. Það er best að ráðfæra sig við fjölskylduna áður en farið er út í breytingar.

Menning

Bogamaður (22.nóv - 21.des)

Kergja virðist hlaupin í mál sem er bráðnauðsynlegt að reyna að leysa með einhverju móti. Þú ert fremur ráðalaus gagnvart þessum vanda.

Menning

Hrúturinn (21.mars - 19.apríl)

Ef þú ert vingjarnlegur og hjálpsamur við aðra skilar það sér margfalt til baka. Þér virðist ganga allt í haginn og framfarir eru augljósar.

Menning

Fiskarnir (19.feb - 20.mars)

Miklar breytingar eru fyrirsjáanlegar hjá þér á næstunni. Einhver reynir að telja þér hughvarf í máli sem þú hefur tekið ákvörðun í.

Menning

Steingeit (22.des - 19.jan)

Þú leitar viðurkenningar frá öðrum. Þú ert eitthvað óöruggur með sjálfan þig um þessar mundir. Fjármálin virðast ganga vel.

Menning

Hrúturinn (21.mars - 19.apríl)

Þér finnst ef til vill sem fólk sé að ráðskast með þig og ert ósáttur við það. Reyndu að sýna fram á að þú kærir þig ekki um þetta.

Menning

Sporðdreki (24.okt - 21.nóv)

Þú ert ekki alveg viss um hvort þú treystir þér til að takast á við afar krefjandi verkefni. Hugsaðu málið vel og reyndu að vera raunsær.

Menning

Nautið (20.apríl - 20.maí)

Þér verður boðið tækifæri sem þú átt erfitt með að neita en gerir þér þó ekki almennt grein fyrir. Leitaðu ráða hjá öðrum.

Menning

Fiskarnir (19.feb - 20.mars)

Sinntu fjölskyldunni betur en þú hefur gert undanfarið. Vertu minnugur þess að ekkert kemur af sjálfu sér. Vinur þinn kemur þér verulega á óvart. Ástin er á næsta leiti.

Menning

Hrúturinn (21.mars - 19.apríl)

Þú ættir að sinna öldruðum í fjölskyldunni meira en þú hefur gert undanfarið. Þar sem farið er að róast í kringum þig ætti þetta að vera mögulegt.

Menning

Fiskarnir (19.feb - 20.mars)

Þú ert eitthvað pirraður um þessar mundir og þarft að leita að innri sálarró. Útivera og spjall við góða vini ætti að hjálpa þér mikið.

Menning

Sporðdreki (24.okt - 21.nóv)

Margt kemur þér á óvart í dag. Jafnvel það sem þú ert vanur að gera á hverjum degi verður einhvern veginn öðruvísi í dag en vant er.

Menning

Fiskarnir (19.feb - 20.mars)

Þér hættir til að vera of fús til að fórna þér fyrir aðra og í dag ættir þú að hugsa meira um sjálfan þig. Ljúktu því sem þú hefur lengi frestað.

Menning

Fiskarnir (19.feb - 20.mars)

Forðastu að vera uppstökkur því að það bitnar mest á sjálfum þér og þínu nánasta fólki. Horfðu á björtu hliðarnar á tilverunni.

Menning

Bogamaður (22.nóv - 21.des)

Þú veist nákvæmlega hvað það er sem þú vilt en aðrir eru eitthvað að reyna að hræra í þér. Haltu þínu striki og þá gengur allt vel.

Menning

Sporðdreki (24.okt - 21.nóv)

Einhver spenna liggur í loftinu á milli vina en það er þó ekkert til að hafa áhyggjur af. Þú átt í erfiðleikum með að einbeita þér og verður að taka þig á.

Menning

Ljónið (23.júlí - 22.ágúst)

Vinur þinn hjálpar þér við erfitt verkefni en þú verður að launa honum greiðann. Þú skalt þó ekki gera neitt sem þér er alveg þvert um geð.

Menning