Skaddaður á höndunum og allavega þrír dagar eftir Magnús Jochum Pálsson skrifar 22. október 2026 16:03 Axel er enn að skríða. Áhrifavaldurinn Axel Máni lagði af stað skríðandi til Bessastaða frá Njarðvík á mánudaginn og var ætlunin að skríða þessa sirka 45 kílómetra á þremur dögum. Hins vegar skaddaðist Axel svo illa á höndum að verknaðurinn mun taka allavega sex daga.
Vísir fjallaði á þriðjudaginn um þennan gjörning Axels sem ákvað að sýna í beinu streymi á TikTok frá sér skríða frá Njarðvík til Bessastaða þar sem hann ætlar að færa Höllu forseta umslag með bréfi. Markmið Axels með gjörningnum er að afla sér fylgjenda en hann hefur áður ratað í fréttirnar fyrir að láta grafa sig í sand í Nauthólsvík og ganga á hlaupabretti í líkamsræktarstöðinni World Class í heilan sólarhring. Blaðamaður heyrði í Axel áðan sem var staddur í beinu streymi og tók sér pásu frá því að skríða til að tala í símann. Hann hefði sett stefnuna á að vera búinn með gjörninginn á þremur dögum en nú væri fjórði dagurinn upp runninn og ljóst að það tækist ekki nema í sex. „Þetta lengdist út frá því að höndin á mér skaddaðist. Ég er allur bólginn og ógeðslegur á höndunum þannig að ég þurfti að taka smá tíma í að jafna mig í gær. Við vorum akkúrat að byrja beina streymið núna,“ sagði Axel. Hvar ertu staddur? „Ég er að lenda inni í Vogunum,“ sagði hann. Hvernig er líkaminn fyrir utan hendurnar? „Ég er með harðsperrur alls staðar en hnén eru betri en þau ættu að vera. Það eru bara hnefarnir sem hamla mér núna,“ sagði Axel. Þú ert með púða á hnjánum en á höndunum? „Ég byrjaði með boxhanska á höndunum en álagið á hnefana varð svo mikið þannig að ég er núna kominn með venjulega vettlinga og kodda á hendurnar,“ sagði Axel. @seliking Dagur 4 ♬ original sound - Seliking Hvernig líður þér andlega? „Ég er virkilega ferskur andlega. Þetta er smá brekka en maður er jákvæður,“ sagði Axel. Hvernig hafa viðbrögðin verið? „Ég hef aldrei séð annað eins. Ég bjóst engan veginn við þessu,“ sagði Axel sem hefur bætt við sig töluverðum fjölda fylgjenda frá því hann byrjaði að skríða. Þú ætlaðir að vera þrjá daga en þetta stefnir í sex. Ertu kominn með skýrari mynd af þessu? „Við erum komnir með raunverulegt markmið,“ sagði Axel. Hvað á að skríða marga kílómetra í dag? „Ég get ekki lofað kílómetrafjölda en markmiðið er að vera tólf til fjórtán tíma að skríða,“ sagði Axel sem vonast til að enda daginn einhvers staðar á milli Hafnarfjarðar og Voga á Vatnsleysuströnd. Axel er sem betur fer ekki alveg einn, Gunnar Björn, vinur hans og umboðsmaður, tekur gjörninginn upp og aðstoðar Sela og svo fylgir hundur líka með.
Grín og gaman TikTok Samfélagsmiðlar Vogar Hafnarfjörður Mest lesið Síminn stoppar ekki vegna heimildarmyndar Bíó og sjónvarp „Ég get ekki leikið lengur. Ég get ekki lesið“ Lífið Óleyst íslensk ráðgáta: Veist þú svarið? Lífið Færsluóður miðaldra höfundur: „Ég man ekki eftir að hafa gengið í þessar grúppur“ Lífið Tólf barna móðir selur sveitadraum Lífið Skaddaður á höndunum og allavega þrír dagar eftir Lífið Grenjaði, veipaði og keyrði stanslaust Lífið White Lotus-stjarna bætist í leikhópinn Bíó og sjónvarp Gengst við slúðursögu um þungunarpróf Lífið Kempa leikstýrir tálbeitutrylli Ólafs Darra Bíó og sjónvarp Fleiri fréttir Skaddaður á höndunum og allavega þrír dagar eftir Færsluóður miðaldra höfundur: „Ég man ekki eftir að hafa gengið í þessar grúppur“ „Ég get ekki leikið lengur. Ég get ekki lesið“ Óleyst íslensk ráðgáta: Veist þú svarið? Grenjaði, veipaði og keyrði stanslaust Gengst við slúðursögu um þungunarpróf Konur æfi með líkamanum, ekki gegn honum Tólf barna móðir selur sveitadraum Rekinn úr körfuboltaliði FSU fyrir að detta í það Bólginn á höndunum skríðandi til Bessastaða Erfitt að geta ekki eytt peningunum í föt Kristófer Acox selur íbúð með potti í Urriðaholti Umdeildur hlaðvarpspabbi orðinn móðir Harry vill sættast við fjölskylduna Miðaldra kona þóttist vera sofandi í Epal Ranglega greind með MS-sjúkdóm Tískudrottning og fréttamaður selja í Vesturbæ Jennifer Lopez að hitta Ted Lasso-stjörnu Wahlberg segir flugmennina hafa bjargað lífi sínu Hvað veistu um… Nylon? Sahara Ray látin Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Richard Riehle látinn Costanza á klakanum Gjörbreytti einbýli í Kópavoginum Píparapæja selur pent „penthouse“ Sló í brýnu milli poppara yfir Ratcliffe Diljá Mist á lausu Stjörnulífið: Hannes heppinn með Diego Crawford minnist sonarins Sjá meira