Menning

Fiskarnir (19.feb - 20.mars)

Kunningi þinn launar þér ríkulega aðstoð sem þú veittir honum er hann þurfti á að halda og þú finnur að hann metur þig mikils. Lífið brosir við þér um þessar mundir.

Menning

Nautið (20.apríl - 20.maí)

Búðu þig undir að þurfa að fresta einhverju sem þú hefur lengi beðið eftir. Það er mikið að gera hjá þér og þú hefur lítinn tíma til að slappa af.

Menning

Fiskarnir (19.feb - 20.mars)

Hætta er á að ástvinir lendi upp á kant og þú þarft því að leggja þig fram um að sýna nærgætni og tillitssemi í samskiptum. Taktu það rólega í kvöld.

Menning

Steingeit (22.des - 19.jan)

Þú ættir að hugleiða breytingu í starfi þínu. Vinur þinn á í einhverjum erfiðleikum. Þú verður að sýna tillitssemi og nærgætni ef leitað er til þín.

Menning

Sporðdreki (24.okt - 21.nóv)

Þú syndir á móti straumnum um þessar mundir og ert fullur af orku og finnst engin vandamál vera þér ofviða. Það er mikið um að vera í vinahópnum og góður andi ríkjandi.

Menning

Ljónið (23.júlí - 22.ágúst)

Þú flækist í einhver mál sem snerta þig óbeint. Það varðar hagsmuni einhvers sem þú þekkir vel og er þér nákominn. Niðustaða málsins verður þínum manni í hag.

Menning

Krabbinn (22.júní - 22.júlí)

Það borgar sig að vera ekki of opinskár fyrri hluta dagsins og halda frekar hugmyndum sínum og tilfinningum fyrir sjálfan sig. Þú ættir að heimsækja gamlan vin.

Menning

Sporðdreki (24.okt - 21.nóv)

Þú færð fréttir sem þú verður talsvert undrandi á. Þú þarft engu að breyta hjá þér en þessar fréttir hafa engu að síður töluverðar breytingar í för með sér.

Menning

Nautið (20.apríl - 20.maí)

Þú ert óþarflega smámunasamur í dag og það gæti farið í taugarnar á fólki. Þú þarft á tilbreytingu að halda og ættir að gera eitthvað til að lyfta þér upp.

Menning

Fiskarnir (19.feb - 20.mars)

Það er mikilvægt að þú undirbúir vel þær breytingar sem eru fyrirsjáanlegar á næstunni. Þá verður auðveldara að fást við þær.

Menning

Vatnsberinn (20.jan - 18.feb)

Þú ert að skipuleggja frí og ferðalag ásamt fjölskyldu þinni. Það þarf að hyggja að mörgu áður en lagt er af stað. Kvöldið verður rómantískt.

Menning

Steingeit (22.des - 19.jan)

Reyndu að taka það rólega í dag, einkum fyrri hluta dagsins. Þú færð óvænt skilaboð í kvöld. Farðu gætilega í fjármálum.

Menning

Krabbinn (22.júní - 22.júlí)

Eitthvað sem hefur farið úrskeiðis hjá vini þínum hefur truflandi áhrif á þig og áform þín. Þú þarft að skipuleggja tíma þinn upp á nýtt.

Menning

Vogin (23.sept - 23.okt)

Þú ert mjög sannfærandi um þessar mundir og það kemur sér mjög vel fyrir þig. Þú hefur mikið að gera í dag.

Menning

Krabbinn (22.júní - 22.júlí)

Þú kynnist einhverjum mjög spennandi á næstunni og á sá eða sú eftir að hafa mikil áhrif á líf þitt. Það verður mikið um að vera í kvöld.

Menning

Meyjan (23.ágúst - 22.sept)

Spennandi tímar eru fram undan hjá þér og þú kynnist nýju fólki. Fjölskyldan gerir eitthvað skemmtilegt og þú nýtur þess að taka þátt í félagslífi.

Menning

Steingeit (22.des - 19.jan)

Viðskiptin blómstra hjá þér um þessar mundir og það virðist allt verða að peningum í höndunum á þér. Happtölur þínar eru 5, 9 og 12.

Menning