Menning

Tvíburarnir (21.maí - 21.júní)

Reyndu að átta þig á staðreyndum áður en þú lætur skoðanir þínar uppi. Annað gæti orðið þér dýrkeypt. Eitthvað spennandi er að gerast í ástarmálunum.

Menning

Meyjan (23.ágúst - 22.sept)

Vinskapur þinn við ákveðna manneskju blómstrar um þessar mundir. Það er nóg að gera hjá þér og þú nýtur þess að vera til.

Menning

Vogin (23.sept - 23.okt)

Fyrri hluti dagsins verður viðburðaríkur og þú færð nóg að gera. Í kvöld kemur upp óvænt staða í fjölskyldunni eða félagslífinu.

Menning

Vogin (23.sept - 23.okt)

Það er mikið af tilfinningasömu fólki í kringum þig og þú verður að sýna nærgætni. Rómantíkin liggur í loftinu.

Menning

Fiskarnir (19.feb - 20.mars)

Þér finnst kunningi þinn vera skilningslaus og tekur það frekar nærri þér. Þú mátt ekki vera svona viðkvæmur, það er erfiðast fyrir þig sjálfan.

Menning

Hrúturinn (21.mars - 19.apríl)

Láttu sem ekkert sé, þó að einhver sé að gera lítið úr því sem þú ert að fást við. Farðu varlega í að gefa ráð. Það er ekki víst að þau dugi vel.

Menning

Krabbinn (22.júní - 22.júlí)

Í dag lýkur loksins miklum og erfiðum áfanga sem þú hefur lengi verið að búa þig undir. Þér gengur vonum framar og er það þér mikill léttir.

Menning

Nautið (20.apríl - 20.maí)

Eitthvað sem olli þér miklum vonbrigðum í fyrstu færir þér happ af einhverju tagi. Einbeittu þér að því sem brýnt er að ljúka við.

Menning

Tvíburarnir (21.maí - 21.júní)

Þú hefur beðið lengi eftir því að fá ósk þína uppfyllta í ákveðnu máli. Þú þarft líklega að bíða enn um sinn en ekki fara þó að örvænta.

Menning

Meyjan (23.ágúst - 22.sept)

Tilfinningamál verða mikið rædd í dag og notaðu skynsemina í stað þess að fara í einu og öllu eftir því sem aðrir stinga upp á.

Menning

Vogin (23.sept - 23.okt)

Gleymska einhvers nákomins ættingja kostar mikla fyrirhöfn og þú þarft á allri þolinmæði þinni að halda til að æsa þig ekki

Menning

Nautið (20.apríl - 20.maí)

Eitthvað sem þú hefur beðið eftir lengi verður loksins að veruleika. Þú átt ekki eftir að verða fyrir vonbrigðum. Rómantíkin liggur í loftinu.

Menning

Vogin (23.sept - 23.okt)

Þú þarft að hugsa þig vel um áður en ákvörðun er tekin í mikilvægu máli. Breytingar á heimilislífinu eru af hinu góða.

Menning

Nautið (20.apríl - 20.maí)

Það gerist eitthvað óvenjulegt og skemmtilegt í dag og þú nýtur þess svo sannarlega að vera til. Lofaðu ekki upp í ermina á þér.

Menning

Bogamaður (22.nóv - 21.des)

Einhver kemur að máli við þig og færir þér fréttir sem þú áttir alls ekki von á. Þú kætist við þessar fréttir enda er ástæða til þess.

Menning

Nautið (20.apríl - 20.maí)

Áhugi þinn á einhverju máli eykst og þú tekur meiri þátt í félagslífi í dag en undanfarið. Þú getur kynnst skemmtilegu fólki.

Menning