Menning

Vogin (23.sept - 23.okt)
Þú færð miklar þakkir fyrir vel unnið verk. Í dag gætir þú fengið tækifæri til að komast yfir áfall úr fortíðinni.

Ljónið (23.júlí - 22.ágúst)
Treystu því ekki að aðrir komi fram með nothæfar hugmyndir. Virkjaðu þinn eigin huga og hafðu trú á sjálfum þér.

Meyjan (23.ágúst - 22.sept)
Þú verður fórnarlamb einhvers sem er mjög sjálfselskur ef þú ert of auðtrúa. Það er góð hugmynd að hvíla sig vel í kvöld.

Meyjan (23.ágúst - 22.sept)
Þér gengur vel að leysa verkefni sem ollu þér vandræðum fyrir nokkru. Þú ert í góðu jafnvægi og dagurinn verður skemmtilegur.

Nautið (20.apríl - 20.maí)
Þú ættir að vera spar á gagnrýni því að hún gæti komið þér í koll. Vertu tillitssamur við þína nánustu.

Nautið (20.apríl - 20.maí)
Þú mætir skilningi í dag í sambandi við ákveðið atriði, en þú verður að leggja þig allan fram til að fólk hafi trú á þér.

Sporðdreki (24.okt - 21.nóv)
Gættu þess að láta ekki á neinu bera þótt einhver hegði sér undarlega. Þú gætir þurft að taka afstöðu í deilumáli vina.

Steingeit (22.des - 19.jan)
Þér hættir til að vera of fús til að fórna þér fyrir aðra og í dag ættir þú að hugsa meira um sjálfan þig.

Hrúturinn (21.mars - 19.apríl)
Þú ættir að láta meira að þér kveða í félagslífinu. Vertu óhræddur við að láta skoðanir þínar í ljós og koma hugmyndum þínum á framfæri.

Nautið (20.apríl - 20.maí)
Þér tekst eitthvað sem þú hefur lengi reynt að gera. Gættu þess að fara vandlega yfir hvert smáatriði er varðar viðskipti.

Hrúturinn (21.mars - 19.apríl)
Þú hefðir gott af tilbreytingu og ættir að reyna að kynnast einhverju nýju. Taktu það samt rólega og reyndu að hafa frið og ró í kringum þig.

Tvíburarnir (21.maí - 21.júní)
Einhver færir þér áhugaverðar fréttir en þær eru jafnvel mikilvægari en þú heldur. Taktu það rólega í dag.

Hrúturinn (21.mars - 19.apríl)
Atburður sem gerðist fyrir nokkru gæti haft áhrif á daginn. Þú þarft að vera viðbúinn breyttri dagskrá.

Nautið (20.apríl - 20.maí)
Þú er í vafa um hvaða afstöðu þú átt að taka í vandasömu máli. Hugsaðu þig vel um áður en þú tekur ákvörðun.

Ljónið (23.júlí - 22.ágúst)
Þú sækir í ævintýri og ert ekki í skapi fyrir að láta allt ganga sinn vanagang. Þú lætur verða af því að reyna eitthvað framandi.

Sporðdreki (24.okt - 21.nóv)
Eftir fremur tilbreytingarlausa tíma í ástarlífinu fer heldur betur að lifna yfir þeim málum. Raunar verður þú mjög upptekinn á næstunni.

Steingeit (22.des - 19.jan)
Einhver vandamál koma upp en þegar þú kynnir þér málið nánar sérðu að þú þarft ekki að hafa áhyggjur. Fáðu hjálp ef þú getur.

Bogamaður (22.nóv - 21.des)
Þig skortir hugmyndir í vinnunni og ættir að leita eftir hugmyndum frá öðru fólki. Kvöldið verður rólegt.

Sporðdreki (24.okt - 21.nóv)
Þú ert búinn að eiga í illdeilum síðastliðna daga við vini þína en núna eru bjartari dagar fram undan í vinahópnum. Helgin lofar góðu.

Vatnsberinn (20.jan - 18.feb)
Þú ert eirðarlaus og þarft á upplyftingu að halda. Gerðu þér dagamun ef þú hefur tök á því.

Vatnsberinn (20.jan - 18.feb)
Eitthvað óvænt hendir þig og þú veist ekki almennilega hvernig þú átt að bregðast við. Haltu ró þinni og þá mun allt fara vel.

Steingeit (22.des - 19.jan)
Ekki dæma fólk eftir fyrstu kynnum. Reyndu frekar að komast að því hvern

Hrúturinn (21.mars - 19.apríl)
Þú hefur í mörgu að snúast og verður mikið á ferðinni í dag. Þú átt í erfiðleikum með einhverja einstaklinga.

Hrúturinn (21.mars - 19.apríl)
Þú ert að velta einhverju alvarlega fyrir þér og það gæti dregið athygli þína frá því sem þú ert að vinna að. Reyndu að hvíla þig.

Fiskarnir (19.feb - 20.mars)
Þér verður mest úr verki fyrri hluta dagsins, sérstaklega þar sem þú þarft á einbeitingu að halda. Heppni annarra gæti orðið þín heppni.

Sporðdreki (24.okt - 21.nóv)
Þú hefur næma tilfinningu fyrir hvernig andrúmsloftið er í kringum þig og það kemur þér að gagni við að umgangast fólk. Næstu dagar verða rólegir og ánægjulegir.

Hrúturinn (21.mars - 19.apríl)
Einhver spenna bíður þín í dag og skemmtilegir atburðir en fólk gæti verið ósamvinnuþýtt við þig. Einhver þarfnast ráðgjafar.

Tvíburarnir (21.maí - 21.júní)
Þú verður að sýna tillitssemi og nærgætni ef einhver leitar til þín með vandamál. Kvöldið verður skemmtilegt í góðra vina hópi.

Fiskarnir (19.feb - 20.mars)
Gamall vinur kemur í heimsókn til þín og þið eigið ánægjulega stund saman. Fjölskyldulífið tekur mikið af tíma þínum.

Bogamaður (22.nóv - 21.des)
Breytingar eru í uppsiglingu. Hugaðu að því sem þú þarft að gera á næstunni. Það er mikilvægt að þú skipuleggir þig vel.