Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Freyja Þórisdóttir skrifar 22. október 2026 23:46 Umdeildi áhrifavaldurinn Clavicular, sem hefur öðlast frægð fyrir að „looksmaxx-a“, hefur haldið úti þjálfunarbúðum fyrir menn á öllum aldri sem eiga þá ósk heitasta að vera meira aðlaðandi. Getty Bandaríski áhrifavaldurinn Braden Eric Peters, sem er betur þekktur undir nafninu Clavicular, hefur neitað sök vegna ákæru um refsiverð brot, þar á meðal nauðgun. Er hann helst þekktur fyrir að breiða út hugmyndina um að „looksmaxx-a“ sem gengur út á að líta sem best út sama hvað og eftir öllum mögulegum leiðum, jafnvel með skaðlegum aðferðum.
Hinn virkilega umdeildi Clavicular, sem er fæddur árið 2005, var ákærður í september fyrir nauðgun, fyrir að hafa byrlað manneskju ólyfjan í því skyni að hafa við hana samræði og fyrir að hafa útvegað einstaklingi undir 21 árs aldri áfengi, er fram kemur í frétt bandaríska miðilsins CBS um málið. Neitað öllum ásökunum Ákærurnar eiga rætur að rekja til atviks árið 2025 þegar hann er sakaður um að hafa áreitt og veist að 17 ára stúlku á heimili fjölskyldu sinnar í Massachusetts. Peters hefur neitað ásökununum og segir að samskiptin hafi verið með samþykki stúlkunnar. Í dag var honum sleppt úr gæsluvarðhaldi gegn 10.000 dala, um 1,2 milljóna króna, tryggingu og honum gert að hafa hvorki samband við ákærandann né birta færslur um hana, auk þess sem hann þurfti að láta vegabréf sitt af hendi. Ákærandinn á að hafa sagt lögreglufulltrúa frá því að þann 23. maí 2025 hefði Peters pantað fyrir hana Uber-leigubíl að húsi fjölskyldu sinnar, þar sem þau drukku saman áfengi á meðan þau tóku upp og deildu beinu streymi á samfélagsmiðlum. Á hann síðan að hafa nauðgað henni en lögreglumaðurinn sem tók við kærunni sagðist telja að hún hefði ekki getað veitt samþykki vegna aldurs síns og þeirrar ölvunar sem sjá mátti á henni í streyminu, að því er CBS greindi frá. Ekki í fyrsta sinn Þá er þetta alls ekki í fyrsta sinn sem Peters kemst í kast við lögin en í mars var hann handtekinn í Flórída og þá grunaður um að hafa skipulagt slagsmál tveggja kvenna og birt myndband af þeim á samfélagsmiðlum. Peters tengist að auki annarri rannsókn fiska- og dýraverndarnefndar Flórída sem snýr að myndbandi á samfélagsmiðlum þar sem hann sést ásamt þremur öðrum mönnum skjóta krókódíl í hausinn á fenjasvæðunum í Flórída. Clavicular er með yfir milljón fylgjendur á TikTok og Instagram og hefur vakið athygli fjölmiðla fyrir öfgafullar aðferðir sem hann hefur beitt í nafni „looksmaxxing“. Hann hefur viðurkennt að hafa slegið sig með hamri í andlitið og kjálkalínuna og tekið ýmsa stera, sprautur og önnur lyf til að ná fram því sem hann lýsir sem líkamlegri fullkomnun. Hann gefur óspart ráð um hvernig megi virðast karlmannlegur og framkvæmir glæfrabrögð til að hneyksla fylgjendur sína.
Bandaríkin Samfélagsmiðlar Dómsmál Erlend sakamál Tengdar fréttir „Eins og við séum að fara ansi mörg ár aftur í tímann“ Áhrifamáttur samfélagsmiðlastjarna sem ala á kvenhatri og öfgafullri karlmennsku nær til ungmenna hér á landi að sögn verkefnastjóra ofbeldis- og kynheilbrigðismála Barnaheilla. Dæmi séu um að ungir drengir komi öðruvísi fram við kvenkyns starfsfólk í skólum og frístund miðað við karlkyns. 19. mars 2026 20:19 Íslenskir strákar í heimildarmynd um skuggaheim karláhrifavalda Louis Theroux tæklar Karlahvelið (e. the Manosphere) í nýjustu heimildarmynd sinni en það er samansafn áhrifavalda, vefsíðna og umræðuhópa sem boða róttæka karlmennsku og kvenfjandsamleg viðhorf. Theroux ræðir þar við menn sem hafa hagnast á slíku en á einum tímapunkti í myndinni bregður fyrir tveimur ungum íslenskum drengjum sem biðja um mynd með einum áhrifavaldinum. 17. mars 2026 15:09 Mest lesið Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Lífið Nýr Bond lítur dagsins ljós von bráðar Bíó og sjónvarp Síminn stoppar ekki vegna heimildarmyndar Bíó og sjónvarp Hvað veistu um… Karl Bretakonung? Lífið Tólf barna móðir selur sveitadraum Lífið „Ég get ekki leikið lengur. Ég get ekki lesið“ Lífið Ótrúleg saga fólks sem valdi mildi og mannúð í stað reiði Menning Skaddaður á höndunum og allavega þrír dagar eftir Lífið Óleyst íslensk ráðgáta: Veist þú svarið? Lífið Kempa leikstýrir tálbeitutrylli Ólafs Darra Bíó og sjónvarp Fleiri fréttir Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Hvað veistu um… Karl Bretakonung? Skaddaður á höndunum og allavega þrír dagar eftir Færsluóður miðaldra höfundur: „Ég man ekki eftir að hafa gengið í þessar grúppur“ „Ég get ekki leikið lengur. Ég get ekki lesið“ Óleyst íslensk ráðgáta: Veist þú svarið? Grenjaði, veipaði og keyrði stanslaust Gengst við slúðursögu um þungunarpróf Konur æfi með líkamanum, ekki gegn honum Tólf barna móðir selur sveitadraum Rekinn úr körfuboltaliði FSU fyrir að detta í það Bólginn á höndunum skríðandi til Bessastaða Erfitt að geta ekki eytt peningunum í föt Kristófer Acox selur íbúð með potti í Urriðaholti Umdeildur hlaðvarpspabbi orðinn móðir Harry vill sættast við fjölskylduna Miðaldra kona þóttist vera sofandi í Epal Ranglega greind með MS-sjúkdóm Tískudrottning og fréttamaður selja í Vesturbæ Jennifer Lopez að hitta Ted Lasso-stjörnu Wahlberg segir flugmennina hafa bjargað lífi sínu Hvað veistu um… Nylon? Sahara Ray látin Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Richard Riehle látinn Costanza á klakanum Gjörbreytti einbýli í Kópavoginum Píparapæja selur pent „penthouse“ Sló í brýnu milli poppara yfir Ratcliffe Diljá Mist á lausu Sjá meira
„Eins og við séum að fara ansi mörg ár aftur í tímann“ Áhrifamáttur samfélagsmiðlastjarna sem ala á kvenhatri og öfgafullri karlmennsku nær til ungmenna hér á landi að sögn verkefnastjóra ofbeldis- og kynheilbrigðismála Barnaheilla. Dæmi séu um að ungir drengir komi öðruvísi fram við kvenkyns starfsfólk í skólum og frístund miðað við karlkyns. 19. mars 2026 20:19
Íslenskir strákar í heimildarmynd um skuggaheim karláhrifavalda Louis Theroux tæklar Karlahvelið (e. the Manosphere) í nýjustu heimildarmynd sinni en það er samansafn áhrifavalda, vefsíðna og umræðuhópa sem boða róttæka karlmennsku og kvenfjandsamleg viðhorf. Theroux ræðir þar við menn sem hafa hagnast á slíku en á einum tímapunkti í myndinni bregður fyrir tveimur ungum íslenskum drengjum sem biðja um mynd með einum áhrifavaldinum. 17. mars 2026 15:09