Fimmhundruð manns í örlagaríku teiti Einn ríkulegasti kvenbúningur í sögu landsins var lengi talinn hafa glatast í skipsskaða undan ströndum Íslands árið 1809. Síðar kom í ljós að svo var ekki og árið 1963 fannst búningurinn óvænt í safni Viktoríu og Alberts í Lundúnum. Sá fundur markaði tímamót í íslenskum búningarannsóknum en búningurinn er nú til sýnis á Þjóðminjasafninu. Tíska og hönnun 11.5.2026 14:31
Gusugleði í Vesturbæjarlaug Gusugleðin var við völd í Vesturbæjarlaug á laugardag þegar hönnunarmerkið Salún bauð í sundveislu og kynnti samtímis nýja línu sem heitir Gárur. Gusumeistarinn Saga Klose hélt utan um gusulotur og DJ Karítas þeytti skífum. Tíska og hönnun 11.5.2026 10:33
Mikil hvatning ef fólk hlær að fötunum „Ég er svolítið mikið út um allt, hávær og fyrirferðamikil og það er klæðaburðurinn minn líka,“ segir útvarpsstjarnan Jóna Margrét Guðmundsdóttir, sem hefur gríðarlega gaman að tískunni. Blaðamaður ræddi við hana um óhefðbundinn og frumlegan klæðaburð hennar, eftirminnileg tískuslys, saumaskap á nóttunni og fleira fjörugt. Tíska og hönnun 6.5.2026 20:02
Týndi strax 120 þúsund króna sokkum Tónlistarmaðurinn Friðrik Róbertsson, betur þekktur sem Flóni, hefur mikinn áhuga á klæðaburði og tísku og hefur fjárfest í ýmsum hátískuflíkum undanfarin ár. Sum kaup hafa verið góð en önnur ekki eins farsæl. Tíska og hönnun 27.4.2026 13:40
Varð að vera flottastur í eigin teiti „Þetta var svo fullkomið augnablik, að ganga um Austurstræti í kjólnum sem ég var búinn að vinna svona lengi að,“ segir hinn tvítugi Ástvaldur Mateusz Kristjánsson en hann fagnaði stórafmæli sínu í glæsilegum kjól sem hann saumaði sjálfur á tæpum þremur mánuðum. Blaðamaður ræddi við hann um tískuna, tilveruna og þessa einstöku flík. Tíska og hönnun 24.4.2026 07:04
„Ég vil ekki líkjast öllum öðrum“ „Mesti innblásturinn í mínu lífi hefur alltaf verið amma mín,“ segir hin 25 ára gamla Nadía Sif Líndal Gunnarsdóttir, áhrifavaldur, tískuáhugakona og fyrirsæta. Nadía vinnur í tískuvöruversluninni Nínu á Akranesi og hefur sömuleiðis tekið að sér ýmis verkefni tengd markaðssetningu. Hún byrjaði að sitja fyrir þegar hún var sextán ára gömul og elskar að klæða sig upp fyrir öll tilefni. Tíska og hönnun 14.4.2026 20:02
Gabbana stígur til hliðar hjá Dolce & Gabbana Stefano Gabbana, tískuhönnuður og annar stofnenda Dolce & Gabbana, hefur sagt af sér sem stjórnarformaður tískuhússins sem hann stofnaði með Domenico Dolce. Hann verður áfram í hönnunarhlutverki hjá fyrirtækinu. Tíska og hönnun 10.4.2026 11:21
Euphoria stjörnurnar gáfu ekkert eftir Það var mikið stjörnufans á rauða dreglinum við kínverska leikhúsið í Los Angeles í gærkvöldi á forsýningu á þriðju þáttaröð af unglingadramanu Euphoria. Leikararnir skinu skært í hátískufötum en mikil eftirvænting ríkir eftir þessari lokaseríu sem verður frumsýnd 12. apríl. Tíska og hönnun 8.4.2026 11:33
Kröfuharður og með öll smáatriði á lás „Ég hef alltaf haft gaman af því að klæða mig upp. Jafnvel þegar ég er einn heima vil ég vera í fallegum fötum, oft í silki „afa“-náttfötum og inniskóm,“ segir fagurkerinn Davíð Laufdal sem ræddi við blaðamann um tískuna. Tíska og hönnun 7.4.2026 20:01
Feiminn í æsku en fann sig í tískunni „Þetta gefur mér mikinn tilgang þrátt fyrir að vera mjög krefjandi og tímafrekt. Þetta er áskorun á hverjum degi og ég bara elska þetta,“ segir hinn 22 ára gamli Haraldur Björnsson sem rekur sitt eigið fatamerki undir nafninu Coppermine. Tíska og hönnun 30.3.2026 20:02
Elskar að klæða sig upp fyrir jafnvel ekkert „Oftast er ég frekar fljót að setja saman föt en ef það gengur ekki eins og ég hafði ímyndað mér verður oft mikið drama,“ segir hin tvítuga Hildur Jónsdóttir Norfjörð. Hildur er sálfræðinemi, fimleikaþjálfari og vinnur í hlutastarfi í skartgripaversluninni Hildi Hafstein og hefur mikla ástríðu fyrir tísku og klæðaburði. Tíska og hönnun 25.3.2026 20:00
Guðbjörg hlaut heiðursverðlaun í London Gullsmiðurinn Guðbjörg Kr. Ingvarsdóttir rekur ásamt fjölskyldu sinni skartgripaverslunina Aurum að Bankastræti. Þau ferðuðust öll saman til London fyrr á árinu og unnu þar til virtra verðlauna. Tíska og hönnun 24.3.2026 09:03
Skarsgård seiðandi senuþjófur Alexander Skarsgård hefur farið frumlegar leiðir í klæðaburði við kynningu á kvikmyndinni Pillion. Þar leikur Skarsgård aðalhlutverkið á móti Harry Melling í BDSM ástarsögu. Tíska og hönnun 23.3.2026 20:01
Dorrit sprengir skvísuskalann á skíðum Skartgripadrottningin og fyrrverandi forsetafrúin Dorrit Moussaieff nýtur sín á skíðum í sólinni í Aspen í Colorado-fylki þessa dagana. Hún hefur verið dugleg að deila skemmtilegu myndefni á samfélagsmiðlum þar sem hún rokkaði meðal annars stuttbuxur og íslenska lopapeysu. Tíska og hönnun 23.3.2026 16:01
Hátískuhönnuður yfir í hraðtískuheiminn Það er gömul saga og ný að hátískuhönnuðir fari í samstarf við risastór hraðtískufyrirtæki og njóta slíkar línur gjarnan mikilla vinsælda. John Galliano, fyrrum listræni stjórnandi Dior og Maison Margiela, og risafyrirtækið Zara eru nýjasta dæmið um slíkt. Tíska og hönnun 18.3.2026 13:00
Klæddist fimm kílóum af mannahárum Raunveruleikastjarnan Lisa Rinna úr þáttunum Raunverulegar húsmæður Beverly Hills vakti mikla athygli í Óskarspartýi Eltons John á sunnudagskvöld. Lisa, sem er orðin eins konar tískugoðsögn í Hollywood, er þekkt fyrir að fara eigin leiðir í tískunni og sýndi það og sannaði þarna. Tíska og hönnun 17.3.2026 09:38
„Meðan ég er ánægð skiptir álit annarra engu“ „Ég er svo heppin að tengjast ömmu á þennan hátt þar sem hún dó þegar ég var mjög ung,“ segir tískudrottningin María Hrund sem er 24 ára gömul og starfar sem verslunarstjóri í Andrá Reykjavík. María Hrund er útskrifaður klæðskeri og lifir fyrir góð snið, gæðaefni og skart. Hún ræddi við blaðamann um tískuna, fataskápinn, verðmæta erfðagripi og persónulegan stíl. Tíska og hönnun 16.3.2026 20:02
Óþekkjanleg á Óskarnum Raunveruleikastjarnan Kim Kardashian er þekkt fyrir að taka áhættu í klæðaburði og fer oft frumlegar leiðir í fatavali. Í gegnum tíðina hefur hún unnið náið með umdeilda listræna stjórnandanum Demna sem var lengi hjá tískuhúsinu Balenciaga en hefur nú fært sig yfir til Gucci. Tíska og hönnun 16.3.2026 15:33
Súperstjarna tískuheimsins klæddi Laufeyju Laufey Lín er ekki bara ein stærsta tónlistarstjarna heims heldur hefur hún sömuleiðis haslað sér völl sem mikil tískudrottning sem veitir milljónum innblástur í klæðaburði. Á tónleikunum um helgina skipti hún fjórum sinnum um lúkk sem var hvert öðru glæsilegra og allt sérhannað á hana fyrir tilefnið. Tíska og hönnun 16.3.2026 13:55
Elín Hall í sjóðheitri íslenskri hönnun Rísandi stjarnan Elín Hall hitaði upp fyrir Laufeyju í Kórnum um helgina og virtist njóta sín einstaklega vel á sviðinu. Hún nýtti tækifærið til að gera íslenskri hönnun hátt undir höfði og klæddist skemmtilegum hvítum fatnaði frá fatahönnuðinum Sigureyju Reynis. Tíska og hönnun 16.3.2026 11:20
Þau flottustu og mest púkó á Óskarnum Óskarsverðlaunin eru stærsta uppskeruhátíð Hollywood þannig að stjörnurnar passa sig alltaf að vera í sínu fínasta pússi en hátíðin er ekki síður þekkt fyrir tískuveisluna sem þar fer fram. Rauði dregillinn var sérstaklega stælí í nótt þegar Óskarinn fór fram í 98. sinn. Tíska og hönnun 16.3.2026 10:36
Hvetur karlmenn til að leggja sig meira fram „Ég flutti til London tuttugu ára gamall og fór aðeins að prófa mig áfram þar,“ segir Vilberg Andri Pálsson sem er í dag 27 ára gamall og býr hérlendis. Hann er tónlistarmaður og sölumaður í Herrafataverslun Kormáks og Skjaldar og elskar hvað tíska og skemmtileg klæði geta haft jákvæð áhrif á sjálfsöryggið. Tíska og hönnun 11.3.2026 07:03
Heitasti keramiker landsins í fíling Menningarlífið iðaði í Reykjavíkurborg á fimmtudag síðastliðinn og kúltúrkettir landsins létu sig ekki vanta á opnun Rammagerðarinnar á Skólavörðustíg. Tíska og hönnun 10.3.2026 10:34
Chappell Roan elskar Fischersund Íslensku ilmsystkinin í Fischersundi slóu í gegn á tískuvikunni í París á dögunum með vel heppnaða ilmtónleika. Meðal gesta var súperstjarnan Chappell Roan sem er hrifin af íslensku lyktunum. Tíska og hönnun 9.3.2026 16:11