Lífið

Richard Riehle látinn

Oddur Ævar Gunnarsson skrifar
Riehle brá sér í hin ýmsu hlutverk.
Riehle brá sér í hin ýmsu hlutverk. Rodin Eckenroth/Getty

Bandaríski leikarinn Richard Riehle sem þekktastur er fyrir hlutverk sitt sem Tom Smykowski í kvikmyndinni Office Space er látinn 78 ára að aldri. Riehle lék í yfir fjögurhundruð kvikmyndum og sjónvarpsþáttum á löngum ferli.

Bandaríski slúðurmiðillinn TMZ greinir frá andláti Riehle og segir hann hafa látist á heimili sínu í Los Angeles í Bandaríkjunum. Riehle sló gjörsamlega í gegn árið 1999 sem Tom Smykowski í Office Space, vörustjóra sem sagt er upp störfum, lifir af bílslys og fær gríðarháar skaðabætur sem gera honum kleift að elta drauma sína og hefja sprenghlægilega innreið í mottubransann.

Riehle lék einnig í ýmsum öðrum sjónvarpsþáttum og kvikmyndum á borð við Casino, The Man from Earth og Bridesmaids. Þá hefur hann einnig brugðið á leik í sjónvarpsþáttum á borð við The Mindy Project, George Lopez og Grounded for Life.

Hann ólst upp í Wisconsin ríki og hóf leikferil sinn í leikhúsi en steig sín fyrstu skref á hvíta tjaldinu árið 1975 í kúrekamyndinni Rooster Cogburn sem skartaði þeim John Wayne og Katharine Hepburn í aðalhlutverkum. Riehle giftist konunni sinni Jane Latham árið 1970, þau eignuðust fjögur börn saman.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.