Tónlist

Eurobandið syngur með Söndru Kim í Þýskalandi
Eurobandið verður meðal skærustu Euovision-stjarna á árlegri árshátíð eins stærsta Eurovision-aðdáendaklúbbsins sem um getur. Árshátíðin er haldin í München í byrjun janúar og meðal þeirra sem þar koma fram auk Eurobandsins er hin belgíska Sandra Kim. „Svo skemmtilega vill til að við erum að spila á sama stað og hún. Það verður forvitnilegt að hitta hana og heyra hana syngja, rúmum tuttugu árum eftir sigurinn,“ segir Friðrik Ómar, ein aðalsprautan í Eurobandinu. Hann bendir á að þrátt fyrir að rúmlega tveir áratugir séu liðnir síðan Kim sigraði er hún aðeins 36 ára í dag. Sandra var enda aðeins fjórtán þegar hún fór með framlag Belga, J’aime la vie, alla leið árið 1986 á stóra sviðinu í Bergen. Sama ár og Gleðibankinn sigraði heiminn með Icy-tríóinu.

Rífandi góðir dómar
Jóhann Jóhannsson fær rífandi góða dóma fyrir nýju plötuna sína, Fordlandia. Platan er ósungin en segir sögur um misheppnaðar útópíur. Lagaheitin og útskýringar sem Jóhann birtir á netinu segja söguna. Gagnrýnendur beggja vegna Atlantshafsins eru yfir sig hrifnir.

Stóns loks á Íslandi
Fyrstu tónleikar Stóns eru í kvöld á Players í Kópavogi. Þetta er tökulagasveit sem sérhæfir sig í Rolling Stones-lögum. Stóns eru valinkunnir menn úr íslenska rokkinu, Frosti Júníor í Esju er Charlie Watts, Kalli í Lights on the Highway er Bill Wyman, Biggi í Motion Boys er Brian Jones og Bjarni og Bjössi í Mínus eru Keith og Mick.

Cliff til liðs við Shadows á ný
Söngvarinn Cliff Richard ætlar í tónleikaferð seint á næsta ári með sínum gömlu félögum í The Shadows í tilefni af fimmtíu ára afmæli hljómsveitarinnar.

Stórbók og fleiri gersemar
Viðhafnarútgáfur af ýmsu tagi hafa verið algengar í tónlistarútgáfu undanfarin ár og verða sífellt íburðarmeiri. Trausti Júlíusson spáði í þróunina og skoðaði nýja spariútgáfu Sigur Rósar-plötunnar Með suð í eyrum við spilum endalaust. Viðhafnarútgáfur hafa verið algengar í tónlistarútgáfu undanfarin ár.

Skítatúr Spocks í spinningsal
Hljómsveitin Dr. Spock var á framandlegum slóðum í hádeginu í gær þegar hún hélt útgáfutónleikana sína í spinningsal Sporthússins í Kópavogi. Múgur og margmenni svitnuðu við grjóthart rokkið með gula hanska á höndunum. Voru gestir ekki bara aumir í afturendanum eins og vanalega eftir spinningtíma heldur flestir með hvínandi són í eyrunum líka.

Fórnaði mottunni fyrir nýju plötuna
Brandon Flowers, söngvari hljómsveitarinnar The Killers, rakaði nýlega af sér yfirvaraskeggið sem hann hefur skartað síðustu ár. Ástæðuna segir hann vera að mottan hafi ekki samræmst nýrri stefnu sveitarinnar.

Gaman á Græna hattinum
Það verður gaman á Græna hattinum um helgina: á föstudagskvöld er það Margrét Guðrúnar og Bandið hans pabba en þá sveit skipa ekki ómerkari menn en: Ásgeir Óskarsson (Pelican, Stuðmenn, Þursaflokkurinn) trommur, Björgvin Gíslason (Náttúra, Pelican), gítar, Tómas Tómasson (Stuðmenn, Þursaflokkurinn) bassi og Margrét Guðrúnar píanó og söngur.

Rockville í fjórða sinn
Tónlistarhátíðin Rockville er nú haldin fjórða árið í röð á Paddy's í Keflavík. Stuðið hefst í kvöld og stendur fram á sunnudagsmorgun. Mikill fjöldi hljómsveita kemur fram, þar á meðal Dr. Spock, Retro Stefson, Mammút, Agent Fresco, Fm Belfast, Slugs, Æla, Hellvar, Dark Harvest, Andrúm, Klaus, Miri, DLX ATX, Morðingjarnir og Sudden Weather Change. Miðaverði er haldið niðri sem kostur er, passi á kvöldin þrjú kostar 2.300 kr., en þúsund kall á stök kvöld.

Megas kyssir jólasvein
Megas & Senuþjófarnir blása til jólatónleika í Salnum í Kópavogi fimmtudagskvöldið 18. desember. Meiningin er að leika lög úr hnausþykkum lagasarpi meistarans og krydda pakkann með sérstaklega uppæfðum jólalögum, meðal annars smellinn „Ég sá mömmu kyssa jólasvein“. Mun sá jólasveinn væntanlega gera ýmislegt fleira en að kyssa mömmuna. Miðasala á þetta einstaka tækifæri til að láta sjálfan Megas koma sér endanlega í jólafílinginn er hafin á midi.is.

Sjúklegt basl og dálítið stress
Rapparinn Addi Intro úr hljómsveitinni Forgotten Lores er að gefa út sína fyrstu sólóplötu, Tivoli Chillout. Platan átti að koma út hjá Geimsteini en vegna kreppunnar og vandræða með gjaldeyri ákvað fyrirtækið að fresta útgáfunni fram í apríl. Það hugnaðist Adda ekki og ákvað hann að gefa hana út sjálfur með öllu því veseni sem því tilheyrir.

Hálf öld aðskilur nafnana
52 ár, eða rúmlega hálf öld, skilur að nafnana Ragnar Bjarnason og Ragnar Sólberg sem eru báðir að gefa út sólóplötur núna fyrir jólin.

Blender gerir upp árið
Plata rapparans Lil" Wayne, Tha Carter III, hefur verið kjörin plata ársins af bandaríska tónlistartímaritinu Blender. Listar yfir plötur ársins fara smám saman að birtast og ríður Blender á vaðið með þessum nýja lista.

Coxon kallaður til æfinga með Blur
Damon Albarn hefur staðfest að Blur ætli að koma aftur saman á næsta ári með gítarleikarann Graham Coxon innanborðs. „Blur ætlar að æfa saman og síðan kemur í ljós hvort við erum til í tuskið,“ sagði Albarn, skömmu áður en hann flutti óperu sína Monkey: Journey to the West í London.

Mamma og pabbi hjálpa
„Ég er búin að vera að syngja í þrjú fjögur ár,“ segir Elín Eyþórsdóttir átján ára sem hefur gefið út sína fyrstu plötu, See you in dreamland. „Ég söng fyrst á kaffi Hljómalind þegar ég sá að maður gæti troðið þar upp og lét bara mína nánustu vita.

Fræbbblarnir þrjátíu ára
Í dag er stór dagur fyrir íslenska pönkáhugamenn því þrjátíu ár eru liðin síðan Fræbbblarnir komu fram í fyrsta skipti. „Þetta var í Kópavogsbíói á Myrkramessu MK,“ segir Valgarður Guðjónsson, Valli í Fræbbblunum. „Það var menningarleg samkoma, ræður, ljóðalestur og kórinn söng. Við vorum auðvitað alveg út úr kú. Þurftum að hafa mikið fyrir því að fá að spila því skemmtinefndin reyndi með öllum tiltækum ráðum að útiloka okkur. Sem betur fer áttum við hauk í horni sem kom okkur inn.“

Fyrsta alvöru sólóplatan
Gítarleikarinn snjalli Guðmundur Pétursson hefur gefið út sólóplötuna Ologies. Hann segir að hún sé fyrsta alvöru sólóplata sín en fyrir mörgum árum gaf hann út tilraunakennda plötu sem fór frekar hljótt um.

Rúnar Júl staldrar við
Rúnar Júlíusson gerir upp feril sinn á þrefaldri plötu. Rúnar er enn að þrátt fyrir 45 ár í bransanum. Hann segist markvisst vinna að því að fresta hrörnuninni, eins og hann orðar það.

Montin Atómstöð í útrás
Lag Atómstöðvarinnar, Think No, er að finna á safnplötunni Riot on Sunset vol. 14 sem bandaríska útgáfufyrirtækið 272 Records gefur út.

Hvíla sig á upptökum
Breska hljómsveitin Arctic Monkeys ætlar að spila á tónlistarhátíðinni Big Day Out í Ástralíu í janúar þrátt fyrir að vera enn á kafi í gerð sinnar þriðju plötu.

Red Hot besta sveitin
Bandaríski rapparinn Kanye West segir að The Red Hot Chili Peppers sé uppáhaldshljómsveitin sín. Hann segir að góðar melódíur sveitarinnar hafi fyrst og fremst heillað sig.

Settu met á Myspace
Nýjasta plata Guns N"Roses, Chinese Democracy, er orðin vinsælasta platan í sögu Myspace-síðunnar. Sveitin leyfði aðdáendum sínum að hlusta ókeypis á plötuna á síðunni á fimmtudag og voru viðbrögðin framúrskarandi. Þegar mest lét var platan spiluð 25 sinnum á sekúndu sem er vitaskuld mjög góður árangur.

Dylan og Megas eru áhrifavaldar
Tónlistarmaðurinn Sverrir Norland játar að meistararnir Bob Dylan og Megas séu báðir á meðal áhrifavalda á hans fyrstu plötu sem er nýkomin út.

Upptökur á næstu plötu Gusgus hafnar
Hljómsveitin Gusgus hefur hafið upptökur á sinni sjöttu plötu í Tankinum við Önundarfjörð. Sveitin dvelur í hljóðverinu í níu daga og er áætlaður útgáfudagur í byrjun næsta árs.

Hjaltalín hita upp fyrir Cold War Kids
Hjaltalín er leiðinni í tónleikaferð um Evrópu með bandarísku sveitinni Cold War Kids. Um vikulangan túr er að ræða sem hefst í Tórínó á Ítalíu á laugardagskvöld.

Fólk sýni baráttuanda
Mammút, Agent Fresco og fleiri hljómsveitir koma fram á tónleikum í Vetrargarðinum í Smáralind á laugardaginn. Tildrög tónleikanna eru þau að tónlistarmaðurinn Ká Eff Bé, Kristinn F. Birgisson, samdi lag til kærustu sinnar sem hefur glímt við heilakrabbamein síðastliðin fimm ár.

Coldplay að hætta?
Chris Martin, söngvari hljómsveitarinnar Coldplay, vill ekki verða gömul rokkstjarna. Söngvaranum, sem er 31 árs í dag, finnst ekki að hljómsveitir eigi að halda áfram eftir að meðlimir þeirra verða 33 ára.

Heildin skiptir höfuðmáli
Þriðja sólóplata Beatmakin Troopa, Search For Peace, er komin út. Hljómsveitin er hugarfóstur Pans Thorarensen sem gaf á síðasta ári út plötuna Parallel Island með föður sínum Óskari.

Ókeypis rafmúsik
„Við höfum haldið mánaðarleg tónleikakvöld undir nafninu Weirdcore þar sem við höfum safnað saman þeim sem eru að gera eitthvað að viti í rafmúsík," segir Sveinbjörn Þorgrímsson, Biogen.

Óútgefið verk eftir The Beatles
Fjórtán mínútna spunaverk sem Bítlarnir tóku upp við hljóðritun á Penny Lane í janúar 1967 undir stjórn Pauls McCartney veldur nokkrum deilum um þessar mundir í Bretlandi. Paul vill endilega að tilraunaverkið, sem ber heitið Carnival of light, verði gefið út, en það er frjáls spuni unninn áfram með aðferðum raftónskálda.