Seiðandi Alaska heillaði gesti upp úr skónum Frægðarsól tónlistarkonunnar Kolfreyju Sólar, sem er betur þekkt sem Alaska, hefur sjaldan skinið skærar en nú. Hún var að gefa út plötuna 1867 sem er í senn tilfinningarík og dansvæn og fagnaði útgáfunni með glæsilegum útgáfutónleikum í hráu umhverfi á Korpúlfsstöðum. Tónlist 28.9.2026 11:00
Taylor Swift sló met á VMA-hátíðinni Madonna og Taylor Swift fóru með sigur af hólmi á MTV Video Music-verðlaunahátíðinni 2026, VMA. Madonna hlaut þrenn verðlaun en Swift fékk verðlaun fyrir besta myndbandið, The Fate of Ophelia, og varð um leið sú tónlistarkona sem hefur hlotið flest verðlaun í sögu hátíðarinnar. Tónlist 28.9.2026 07:17
Myndaveisla: Aron Can var ekkert að flækja þetta Tíu ár eru liðin frá því að tónlistarmaðurinn Aron Can Gultekin gaf út sína fyrstu plötu, Þekkir Stráginn, þá aðeins sextán ára gamall. Til að fagna áratugnum í bransanum hélt Aron afmælistónleika í Laugardalshöll í gær þar sem síðustu tíu árin voru gerð upp. Tónlist 27.9.2026 18:22
„Þú ætlar ekki að verða feilaður rappari“ besta mantran „Mín skilaboð eru alltaf: Ekki láta það trufla þig hvað fólki finnst. En það síðasta sem þig langar er að vera rappari sem feilaði í litlu samfélagi eins og Akureyri. Þessar áhyggjur urðu samt rosaleg hvatning fyrir mig,“ segir rapparinn og rísandi stjarnan Pétur Már Guðmundsson, sem flestir þekkja sem heilagan þar sem hann notast við listamannanafnið Saint Pete. Tónlist 19.9.2026 07:01
Fresta öðrum tónleikum sínum hérlendis vegna óvænts fráfalls ástvinar Tónleikum þungarokkshljómsveitarinnar Manowar sem áttu að fara fram í Hörpu í nóvember hefur verið frestað þar til í desember. Er það vegna þess að fjölskyldumeðlimur bassaleikara hljómsveitarinnar féll óvænt frá. Hljómsveitin hefur áður þurft að fresta tónleikum sínum á Íslandi en það var í fyrsta sinn sem sveitin lagði leið sína til landsins, þann 1. febrúar í fyrra. Þá var flugið þeirra fellt niður vegna óveðurs. Tónlist 18.9.2026 23:21
„Það tók viku að vinna í Rúriki“ „Mér fannst þessi hugmynd náttúrulega alveg hræðileg, eins og margar góðar hugmyndir sem hafa komið frá ykkur bræðrum,“ segir umboðsmaðurinn Máni Pétursson um það þegar Jón Jónsson stakk upp á því að stofna strákasveit á sínum tíma. Hugmyndin varð að veruleika og IceGuys varð til. Tónlist 17.9.2026 20:00
Írar ekki með í Eurovision annað árið í röð Írska ríkissjónvarpið, RTÉ, hefur staðfest að Írland muni ekki taka þátt í Eurovision í ár og að þau muni heldur ekki sýna keppnina á sjónvarpsstöð sinni. Írar tóku ekki þátt í Eurovision í fyrra eins og Ísland, Holland og Spánn. Tónlist 17.9.2026 12:31
„Ég ætlaði í lögfræði en tónlistin tók völdin“ „Þegar ég byrjaði í Versló stefndi ég á að verða lögfræðingur. Ég þekki mikið af lögfræðingum, viðskiptafræðingum og fólki sem hefur lagt fyrir sig misgáfulega hluti á æðri stigum menntasviðs. Ég ætlaði í lögfræði en tónlistin tók völdin,“ segir Magnús Jóhann Ragnarsson píanóleikari. Tónlist 17.9.2026 06:32
„Ég ætla að sofa heila eilífð núna“ Stórstjarnan Laufey Lín lauk gríðarlega vel heppnuðu tónleikaferðalagi um helgina eftir að hafa troðið 70 sinnum upp víða um heiminn. Við tekur kærkomin og tímabundin hvíld en það er sjaldan lognmolla í kringum Laufeyju. Tónlist 14.9.2026 12:31
„Verstur af öllu er helvítis doðinn, vera heima og vorkenna sér“ Haraldur Ari Stefánsson, leikari og tónlistarmaður, gefur út sína fyrstu sólóplötu á næstu vikum og hefur þegar gefið út þrjár smáskífur sem eins konar smakkplatta af plötunni. Í dag kemur út tónlistarmyndband við smáskífuna „Tvær leiðir“ sem fjallar um það hvernig maður hefur alltaf val í lífi sínu. Tónlist 11.9.2026 09:48
Fjórtán manns hita upp fyrir Mos Def í Gamla bíó Á annan tug tónlistarmanna mun hita upp fyrir Yasiin Bey, fyrrum Mos Def, þegar hann leikur á tónleikum í Gamla bíó á fimmtudag. Tónlist 7.9.2026 21:07
Lifa í draumi og heiðra Eyfa Hljómsveitin Lón með tónlistarmanninn Valdimar Guðmundsson í fararbroddi hafa sent frá sér ábreiðu af goðsagnakenndu íslensku dægurlagi. Tilgangur útgáfunnar er að heiðra Eyjólf Kristjánsson, sem er betur þekktur sem Eyfi. Tónlist 7.9.2026 16:01
Laufey djammaði með Robyn og Troy Sivan Stórstjarnan Laufey Lín er mætt til New York eftir stutt og gott stopp hér á Íslandi. Dagar tónlistarkonunnar eru sannarlega viðburðaríkir en um helgina skellti hún sér á tónleika hjá sænsku poppstjörnunni Robyn og átti góðar stundir með henni að þeim loknum. Tónlist 7.9.2026 14:00
HAM boða endalok alls Þungarokkshljómsveitin HAM er um þessar mundir að leggja lokahönd á nýja breiðskífu sem vonast er eftir á streymisveitu í október og á tvöföldum vínyl í nóvember. Platan heitir Endalok alls og er sú ellefta sem sveitin sendir frá sér. Tónlist 2.9.2026 09:57
Ein langlífasta tónlistarhátíð landsins hefst í sautjánda sinn Tónlistarhátíðin Extreme Chill hefst á morgun en hún fer fram í Reykjavík dagana 2.–6. september. Þetta er 17. árið sem hátíðin er haldin. Tónlist 1.9.2026 15:01
Afþakkar Grammy-tilnefningu Sænska poppstjarnan Zara Larsson vill ekki vera tilnefnd sem besti nýliðinn á Grammy-verðlaunahátíðinni 2027. Ástæðan er einföld, hún er enginn nýgræðingur í tónlistinni. Tónlist 1.9.2026 12:47
Miley losar sig við eftirnafnið Poppstjarnan Miley Cyrus stendur á tímamótum fyrir útgáfu tíundu plötu sinnar. Hún virðist hafa ákveðið að losa sig við eftirnafn sitt og ætlar greinilega einungis að nota listamannsnafnið Miley héðan af. Tónlist 1.9.2026 11:52
Skvísur og gæjar í útgáfuhófi Tatjönu Stemmingin var rífandi góð þegar Nova fagnaði útgáfu ábreiðunnar „Einhver elskar mig“ eftir Tatjönu í Bíó Paradís. Dýnamíska dúóið Cyber hitaði upp fyrir Tatjönu sem flutti síðan útgáfu sína af sígildum smelli Páls Óskars auk fleiri laga. Tónlist 1.9.2026 11:01
Highway 61 Revisited fagnar 61 árs afmæli Sjötta plata tónlistarmannsins Bobs Dylan, Highway 61 Revisited, kom út þann 30. ágúst 1965, fyrir 61 ári og einum degi, og olli straumhvörfum í rokktónlist. Platan markaði tímamót á ferli Dylan sem færði sig með plötunni úr órafmagnaðri þjóðlagatónlist í rafmagnað rokk. Tónlist 31.8.2026 17:15
Azealia Banks heldur tónleika í Austurbæjarbíói Tónlistarkonan Azealia Banks, sem er þekktust fyrir smellinn „212“ og að sitja ekki á umdeildum skoðunum sínum, heldur tónleika í Austurbæjarbíói fimmtudaginn 3. desember næstkomandi. Tónlist 27.8.2026 10:27
Sísí Ey snýr aftur eftir tíu ára fjarveru Danstónlistardrottningarnar í hljómsveitinni Sísí Ey eru mættar aftur með splunkunýtt lag. Tíu ár eru frá því að hljómsveitin gaf síðast út efni en hún sló eftirminnilega í gegn árið 2013 með smellinum Ain’t Got Nobody. Tónlist 26.8.2026 09:00
Myndaveisla: Leynigestir og innlifun á stórafmælistónleikunum Fjörutíu ára afmælistónleikar Bylgjunnar voru haldnir í Hljómskálagarðinum á Menningarnótt. Stórstjörnur líkt og Friðrik Dór, Birgitta Haukdal og Stebbi Hilmars voru meðal þeirra sem stiga á svið en stemningin var gríðarleg þrátt fyrir rigningu og rok. Tónlist 25.8.2026 12:10
Lag sem enginn söng á toppnum í Ástralíu Dansútgáfa af Madonnu smellinum Like a Prayer hefur orðið eitt vinsælasta lag Ástralíu, þótt enginn söngvari hafi flutt lagið. Röddin og trommurnar voru búnar til með gervigreind og velgengni lagsins hefur nú orðið kveikjan að nýjum reglum um ástralska vinsældalista. Tónlist 25.8.2026 11:25
Versace-ást Villa Vill kveikjan að lagi og skúlptúr Plötusnúðurinn DJ Margeir varð innblásinn af stjörnulögfræðingnum Villa Vill og lét smella af sér mynd á skýlu og Versace-skyrtu í Hótel Keflavík. Ljósmyndin gat af sér lagið „Strike a Pose (I'm Wearing Versace)“ með rapparanum Magugu sem þeir frumfluttu á Menningarnótt. Margeir ætlar svo að taka lagið enn lengra og búa til skúlptúr eftir ljósmyndinni. Tónlist 24.8.2026 15:00