

Spáð er nokkuð hvassri norðan- og norðaustanátt í dag, víða 13 til 20 metrum á sekúndu og snjókomu eða él, einkum á Norður- og Austurlandi þar sem gul viðvörun verður í gildi. Þurrt að kalla sunnan heiða og bjart veður fram eftir degi, en lítilsháttar snjókoma þar í kvöld. Frost 0 til 6 stig, en frostlaust yfir daginn syðst.
Í dag er spáð norðaustan 10 til 18 metrum á sekúndu, en hvassara í vindstrengjum undir Vatnajökli. Él á Norður- og Austurlandi, en þurrt og bjart um landið sunnanvert. Frost 0 til 6 stig, en frostlaust við suðurströndina yfir daginn.
Það verður hægt vaxandi norðaustanátt á landinu í dag. Síðdegis nær 10-18 m/s víða. Él verður á Norður- og Austurlandi, en bjart að mestu um landið sunnanvert. Frost mælist 0 til 6 stig í dag en frostlaust verður sunnantil yfir daginn.
Bjart verður að mestu um landið sunnanvert í dag. Dálítil él verður á Norður- og Austurlandi og hvassast suðaustan til. Annað kvöld bætir heldur í vind.
Bjart veður verður vestan- og sunnantil í dag en stöku él á norðan- og austanverðu landinu. Frost u allt land en hiti verður rétt yfir frostmarki sunnanlands.
Veðurstofan gerir ráð fyrir norðan- og norðaustanátt í dag, víða fimm til tíu metrar á sekúndum, en suðaustan átta til þrettán á Suðvesturlandi í dag. Reikna má með stöku éljum í flestum landshlutum en úrkomulítið að mestu á Suðausturlandi og norðvestanlands.
Veðurstofan gerir ráð fyrir fremur hægri norðaustlægri átt og víða dálitlum éljum. Lengst af verður þurrt og björt Suður- og Vesturlandi ogsvalt veður.
Áfram verður svipað veður og verið hefur verið í dymbilvikunni, en bætir líklega í vind þegar líður að páskahelginni.
Gular viðvaranir eru í gildi á nær öllu vestan- og norðanverðu landinu. Þær renna út á Breiðafirði og Vestfjörðum á hádegi en ekki fyrr en á morgun á Norðvestur- og Norðurlandi. Slæm færð er á vegum um land allt og víða vegir lokaðir eða á óvissustigi.
Núna í morgunsárið er 958 millibara lægð yfir Suðurlandi og það er því breytilegt hvaðan vindur blæs í dag. Við suðurströndina verður suðvestan 13 til 18 metrar á sekúndu og rigning en á Vestfjörðum verður norðaustan stormur og snjókoma.
Gul veðurviðvörun tekur gildi seint í dag á Vestfjörðum. Búist er við norðaustan 13-20 metrum á sekúndu og snjókomu og skafrenningi með slæmu skyggni. „Versnandi færð og varasamt ferðaveður,“ segir á vef Veðurstofunnar.
Lægð nálgast nú landið úr suðvestri og má reikna með hægt vaxandi austan- og suðaustanátt. Það mun svo hlýna sunnanlands með rigningu eða slyddu.
Hægfara lægð er nú stödd skammt vestur af landinu og benda nýjustu spár til þess að veðrið á Vestfjörðum verði mun skárra í dag en verið hefur. Þó er stutt í hvassa norðaustanátt úti á miðunum og þar lítið að breytast til að hún nái aftur inn á land.
Spáð er austlægri átt, fimm til þrettán metrum á sekúndu, sunnan- og austanlands og verður nokkuð vætusamt á þessum slóðum og þungbúið. Norðvestantil er hins vegar spáð norðaustan 15 til 23 metrum á sekúndu og snjókomu.
Veðurstofan hefur gefið út appelsínugula viðvörun vegna norðaustan hríðar sem hefur skollið á norðvesturhluta landsins. Gular viðvaranir hafa sömuleiðis verið gefnar út við Faxaflóa, Breiðafjörð og Ströndum og Norðurlandi vestra.
Skammt suðvestur af Reykjanesi er nú þúsund millibara lægð sem mjakast norður og fylgir henni slydda eða snjókoma á vestanverðu landinu. Má reikna með vindi átta til fimmtán metrum á sekúndu.
Veðurstofan gerir ráð fyrir norðlægri átt í dag, víða fimm til þrettán metrum á sekúndu, og dálitlum éljum í flestum landshlutum.
Lægð suðaustur af landinu og hæð yfir Grænlandi stýra veðrinu í dag og má gera ráð fyrir norðaustlægri átt, yfirleitt kalda, en allhvössu á Vestfjörðum og Suðausturlandi.
Lægðardrag færist nú vestur yfir landið með dálítilli snjókomu eða slyddu og síðar rigningu.
Skammt suðaustur af Hvarfi er nú lægð sem þokast austur á bóginn. Gera má ráð fyrir að vindur verði aðeins norðlægari en í gær og áfram bjart veður suðvestantil á landinu. Þó má reikna með dálitlum éljum norðaustanlands.
Alldjúp og kröpp lægð fór til vesturs skammt suður af Reykjanesi í nótt og olli hvassri austan- og suðaustanátt með talsverðri rigningu á þeim slóðum.
Allmikil lægð á vestanverðu Grænlandshafi veldur því að austan- og suðaustanáttir leika um landið og fylgir þeim lítilsháttar væta og hlýindi. Lengst af verður þó þurrviðri fyrir norðan.
Veðurstofan gerir ráð fyrir að það verði áfram mild suðaustlæg átt í dag og nokkuð hvasst suðvestantil, en hægari vindur í öðrum landshlutum.
Lægð suðvestur af landinu beinir nú til okkar mildri austan- og suðaustanátt og má gera ráð fyrir að víða verði strekkingsvindur en hvassviðri með suðurströndinni.
Lægðin sem liggur skammt suður af landinu kemur með milt loft og er hitastigið víða komið upp í núll til sjö stig núna í morgunsárið. Íbúar á höfuðborgarsvæðinu vöknuðu upp við hvíta jörð í morgun.
Veðurstofan gerir ráð fyrir að það muni bæta í vind á landinu þegar gangi í norðan átta til fimmtán metra á sekúndu og hvassara í vindstrengjum suðaustantil síðdegis.
Útlit er fyrir norðanátt á landinu í dag – ýmist golu eða kalda og stöku éljum – en björtum köflum sunnan heiða og er ekki búist við úrkomu á þeim slóðum.
Allmikil lægð skammt norðaustur af Jan Mayen hreyfist nú norður og önnur, sem er heldur veigaminni og djúpt suður í hafi, hreyfist til norðausturs. Þessar tvær lægðir stjórna veðri í dag, en þar sem þær eru fjarri landi eru vindar hægir og dálítli él á víð og dreif.
Yfir Austurlandi er nú djúp og víðáttumikil lægð á hreyfingu austur og gengur í kjölfarið í vestanhvassviðri eða -storm suðaustantil. Annars verður hægari norðvestlæg átt og slyddu- eða snjóél víða um landið.
Veðurstofan hefur gefið út gula viðvörun vegna vestan- og norðvestan hríðar á morgun.