Viðskipti erlent

Fréttamynd

EA lokar einu þekktasta leikjafyrirtæki heims

Nýir eigendur mjög skuldsetts Electronic Arts hafa tekið þá ákvörðun að loka einu af farsælustu og þekktustu leikjafyrirtækjum heims. Um fjögur hundruð starfsmönnum EA hefur verið sagt upp og fyrirtækinu BioWare verður lokað. Þá er búið að hætta við framleiðslu fimmta leiksins í hinni vinsælu seríu Mass Effect.

Viðskipti erlent

Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

Meta sektað um þrjú þúsund milljarða króna

Bandaríska samfélagsmiðlarisanum Meta hefur verið gert að greiða sekt að andvirði 25 milljarða Bandaríkjadollara eða um þrjú þúsund milljarða króna vegna þess hvernig fyrirtækið laug um meðferð þess á gögnum notenda samfélagsmiðilsins Facebook. Um er að ræða stærstu sekt sem fyrirtækið hefur fengið.

Viðskipti erlent
Fréttamynd

Skoða að sam­eina Tesla og SpaceX

Elon Musk, auðugasti maður heims, segir til skoðunar að sameina tvö þekktustu fyrirtæki hans, bíla- og vélmennafyrirtækið Tesla og geimferða-, gervigreindar- og internetfyrirtækið SpaceX. Bæði fyrirtæki hafa stofnað sérstakar nefndir sem hafa það hlutverk að kanna hvað hægt væri að græða á slíkri sameiningu.

Viðskipti erlent
Fréttamynd

Paramount og Warner Bros. heyra brátt sögunni til

David Ellison, forstjóri Paramount Skydance segir að þegar kaupin á Warner Bros. Discovery ganga í gegn, muni fyrirtækið fá nafnið Skydance. Þannig munu vörumerkin Paramount og Warner heyra sögunni til, eftir að hafa verið áhrifamikil vörumerki í Hollywood í marga áratugi.

Viðskipti erlent
Fréttamynd

G7 setja hundrað milljón tunnur á markaðinn

Leiðtogar G7-ríkjanna svokölluðu hafa samþykkt að hleypa hundrað milljónum tunna af hráolíu og olíuafurðum úr neyðarbirgðum sínum á markað. Fyrst verða tuttugu milljónir tunna settar á markaðinn og mun restin fylgja yfir næstu fjóra mánuði. Með þessu er vonast til að lækka megi verð á díselolíu og öðrum olíuafurðum, sem hafa hækkað mikið á undanförnum mánuðum.

Viðskipti erlent
Fréttamynd

Olíuflæðið nálgast fyrra horf en verð lækkar ekki

Flæði olíuafurða frá Mið-Austurlöndum og um Hormússund er nærri því sem það var áður en stríð Bandaríkjanna og Ísrael gegn Íran hófst í febrúar. Klerkastjórnin í Íran virðist vera að missa tökin á sundinu og þar með getuna til að beita efnahagslegum þrýstingi á Bandaríkjamenn, á sama tíma og herkví Bandaríkjanna gegn Íran hefur leitt til þess að Íran flytur varla dropa af olíu eða jarðgasi úr landi.

Viðskipti erlent
Fréttamynd

OpenAI hættir við að gefa út nýtt „svikult“ líkan

Bandaríska gervigreindarfyrirtækið OpenAI hefur hætt við að gefa út nýtt gervigreindarlíkan, GPT-6.1 Astra af öryggiástæðum. Líkanið er sagt hafa sýnt af sér svikula hegðun og sagt hafa reynt að nota utanaðkomandi verkfæri þrátt fyrir að hafa vitað að það væri ekki öruggt.

Viðskipti erlent
Fréttamynd

Japanskir stýrivextir ekki eins háir í þrjá­tíu ár

Seðlabanki Japans hefur ákveðið að hækka stýrivexti um 0,25 prósentustig, úr 1 prósenti í 1,25 prósent. Slík hækkun hefur ekki verið gerð í 31 ár en þetta er gert til að mæta efnahagslegum þrýstingi heimafyrir og gáfu forsvarsmenn bankans til kynna að frekari hækkanir væru líklegar.

Viðskipti erlent
Fréttamynd

Olíu­birgðir að klárast og krísa lík­leg

Búið er að vara lengi við því að takmarkanir á flutningum olíuafurða um Hormússund muni á endanum leiða til olíukrísu. Yfirmenn bandarískra olíufélaga segja að sú krísa sé nú að raungerast. Olíubirgðir víða um heim séu að verða tómar og vandræði Sáda við að flytja út olíu um aðrar leiðir en sundið hafa aukið á vandann.

Viðskipti erlent
Fréttamynd

Novo hættir að vera Nordisk

Danska lyfjafyrirtækið Novo Nordisk ætlar að fríska upp á ímynd sína með nýju nafni og vörumerki og gengur héðan í frá aðeins undir nafninu Novo. Þá ætlar fyrirtækið, sem hefur orðið undir í samkeppni að undanförnu, að kynna nýja viðskiptaáætlun á næstu dögum.

Viðskipti erlent
Fréttamynd

Greiða 4,3 milljarða vegna sölu per­sónu­upp­lýsinga

Forsvarsmenn stefnumótaforritsins Grindr hafa samþykkt að greiða 26 milljónir punda til að binda enda á lögsókn gegn fyrirtækinu vegna ásakana um að persónuupplýsingum breskra notenda hafi verið deilt með auglýsingafyrirtækjum. Þar á meðal eru upplýsingar um það hvort viðkomandi notendur hafi verið smitaðir af HIV-veirunni og kynhneigð þeirra.

Viðskipti erlent
Fréttamynd

ChatGPT virkar á ný

Truflanir voru á nokkrum þjónustum gervigreindarrisans OpenAI, þar á meðal á hinu geysivinsæla spjalllíkani ChatGPT. Tugþúsunda tilkynntu um truflanir og bárust fréttastofu ábendingar frá fólki hérlendis um að þjónustan hefði legið niðri.

Viðskipti erlent
Fréttamynd

Tekjur Nvidia tvö­földuðust milli ára

Ekkert lát virðist ætla að verða á velgengni bandaríska tæknifyrirtækisins Nvidia, sem er verðmætasta fyrirtæki heims. Forsvarsmenn þess birtu í gær ársfjórðungsuppgjör sem fór fram úr björtustu vonum greinenda og ýtti til hliðar áhyggjum fjárfesta hvað varðar eftirspurn eftir tölvuflögum fyrirtækisins fyrir gervigreind en fyrirtækið hefur hagnast gífurlega á slíkri framleiðslu.

Viðskipti erlent
Fréttamynd

Meta kaupir sig frá mála­ferlum vegna barnavelferðar

Samfélagsmiðlarisinn Meta féllst á að greiða jafnvirði tvö þúsund milljarða íslenskra króna með sátt sem það gerði við flest ríki Bandaríkjanna í dag. Ríki höfðuðu mál gegn fyrirtækinu fyrir að gera ekki nóg til að koma í veg fyrir neikvæð áhrif samfélagsmiðla þess á börn.

Viðskipti erlent