G7 setja hundrað milljón tunnur á markaðinn Samúel Karl Ólason skrifar 2. október 2026 15:14 Emmanuel Macron segir að ákvörðunin feli í sér að engir tálmar verði settir á flutning olíuafurðir milli G7-ríkja og að með þessu yrði refsiðaðgerðum gegn Rússlandi haldið áfram. AP/Manu Fernandez Leiðtogar G7-ríkjanna svokölluðu hafa samþykkt að hleypa hundrað milljónum tunna af hráolíu og olíuafurðum úr neyðarbirgðum sínum á markað. Fyrst verða tuttugu milljónir tunna settar á markaðinn og mun restin fylgja yfir næstu fjóra mánuði. Með þessu er vonast til að lækka megi verð á díselolíu og öðrum olíuafurðum, sem hafa hækkað mikið á undanförnum mánuðum.
Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, hefur þrýst verulega á leiðtoga annarra ríkja eins og Þýskalands og Frakklands að grípa til þessara aðgerða. Aðgerðinni er einnig ætlað að koma í veg fyrir útflutningsbann á díselolíu frá Bandaríkjunum, sem Trump var líklegur til að grípa til. Áðurnefndir leiðtogar samþykktu þetta á fundi í Frakklandi í morgun. Emmanuel Macron, forseti Frakklands, opinberaði ákvörðunina í kjölfarið. Hann sagði að ákvörðunin fæli einnig í sér að engir tálmar yrðu settir á flutning olíuafurða milli G7-ríkjanna. Þá snýst ákvörðunin einnig um það að refsiaðgerðum gegn Rússlandi verði haldið áfram en Trump hefur gefið til kynna að hann hafi viljað rússneska olíu á markaðinn til að létta á olíuverði. Je viens de réunir les dirigeants du G7 pour évoquer la situation énergétique mondiale. Nous sommes d’accord pour travailler de manière coordonnée pour contribuer à la baisse des prix des produits pétroliers, notamment du diesel.Nous avons décidé de :→ flexibiliser la… pic.twitter.com/ilaXb94kD6— Emmanuel Macron (@EmmanuelMacron) October 2, 2026 G7-ríkin eru Bandaríkin, Bretland, Frakkland, Ítalía, Japan, Kanada og Þýskaland. Hópurinn var kallaður G8 á sínum tíma en Rússum var vísað úr honum eftir innlimun Krímskaga og innrásina í austurhluta Úkraínu árið 2014. Meira flæði en verðið lækkar ekki Áður en Macron opinberaði ákvörðunina hafði Donald Trump lýst því yfir á samfélagsmiðli sínum að „Evrópa“ hefði samþykkt að opna birgðir sínar af díselolíu. Hann gaf til kynna að þessar birgðir væru mjög umfangsmiklar. Frá því Bandaríkjamenn og Ísraelar hófu stríðið gegn Íran í febrúar, með meðfylgjandi takmörkunum á siglingar um Hormússund og árásum Írana á olíuvinnsluinnviði í nágrannaríkjum sínum, hefur olíuverð hækkað verulega á heimsvísu. Fyrir stríðið fóru um nítján milljónir tunna af olíuafurðum um Hormússund á degi hverjum. Ríkisstjórn Trumps og Repúblikanar eru undir miklu álagi vegna mikillar hækkunar á eldsneytisverði í Bandaríkjunum í aðdraganda þingkosninga í næsta mánuði. Sjá einnig: Uppörvandi fréttir fyrir Demókrata Undanfarinn mánuð hefur tekist að flytja mikið magn olíuafurða um Hormússund og með flutningum um aðrar leiðir hefur flæðið frá Mið-Austurlöndum verið að nálgast fyrra horf. Olíuverð hefur samt ekki lækkað í takti við það, þar sem hagkerfi heimsins eru enn viðkvæm gagnvart frekari truflunum á olíuflæði. Víða um heim hefur verið gengið töluvert á olíubirgðir á þessu ári.
Bensín og olía Bandaríkin Frakkland Donald Trump Árásir Bandaríkjanna og Ísraels á Íran Mest lesið Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Viðskipti innlent Undirbúningur kólnunar: Hver er BMI stuðullinn þinn í vinnu? Atvinnulíf Skuldar þrotabúi föður síns hundruð milljóna króna til Viðskipti innlent Leiguverð lækkar að raunvirði og óvissa á fasteignamarkaði Viðskipti innlent Airbnb-gestir þurfa ekki lengur að vaska upp Neytendur EA lokar einu þekktasta leikjafyrirtæki heims Viðskipti erlent Meta sektað um þrjú þúsund milljarða króna Viðskipti erlent Veiðigjöldin lækkað en ekki hækkað á þessu ári Viðskipti innlent Stýrir vörumerkja- og markaðsmálum hjá Íslandshótelum Viðskipti innlent Fær hvorki bætur né afsökunarbeiðni eftir að hafa stungið sig á saumnál Neytendur Fleiri fréttir EA lokar einu þekktasta leikjafyrirtæki heims Meta sektað um þrjú þúsund milljarða króna Skoða að sameina Tesla og SpaceX Klámfengið spjallmenni Zuckerbergs vekur ugg innan klámgeirans Sýndu fljúgandi Roadster Netflix segir upp þúsund starfsmönnum Starfsmaður OpenAI rekinn fyrir njósnir Bein útsending: Hver hlýtur hagfræðiverðlaun sænska seðlabankans? Adidas í mál vegna fjögurra randa hönnunar Tölvuþrjótarnir hafi ekki komist yfir kortanúmer Notendur ASOS fá tilkynningu frá meintum tölvuþrjótum Paramount og Warner Bros. heyra brátt sögunni til G7 setja hundrað milljón tunnur á markaðinn Olíuflæðið nálgast fyrra horf en verð lækkar ekki OpenAI hættir við að gefa út nýtt „svikult“ líkan Japanskir stýrivextir ekki eins háir í þrjátíu ár Hækkuðu stýrivexti í Bandaríkjunum í fyrsta skipti í þrjú ár Olíubirgðir að klárast og krísa líkleg Ákall gervigreindarrisa: Eina sem gervigreindin þurfi sé „sterkur og snjall forseti“ Novo hættir að vera Nordisk Opinbera sinn fyrsta langloku-iPhone og boða verðhækkanir Útlit fyrir lökustu vínframleiðslu í tæp sjötíu ár Greiða 4,3 milljarða vegna sölu persónuupplýsinga ChatGPT virkar á ný Flytja gull frá Bandaríkjunum og Kanada af öryggisástæðum Setja gjald á hraðtískuvörur Apple fær nýjan forstjóra Vilja skapa hvata til að beina sparnaði Evrópubúa í fjárfestingar Sjá meira