Viðskipti erlent
158 159 160 161 162 163 164 165 166 … 334 ›
Grikkir semja um lán Grikkland hefur náð samkomulagi við erlenda lánadrottna sína í Evrópu um frest til að mæta niðurskurðarmarkmiðum sínum. Niðurskurður í ríkisútgjöldum Grikkja er forsenda þess að þeir fái seinna neyðarlán sitt frá Evrópusambandinu og Alþjóða gjaldeyrissjóðnum. Viðskipti erlent 24.10.2012 14:02
Þetta er iPad Mini Tæknifyrirtækið Apple kynnti í gær minni útgáfu af iPad-spjaldtölvunni. Snertiskjár nýju spjaldtölvunar er 7.9 tommur. Á stærri útgáfu iPad er skjárinn 9.7 tommur. Viðskipti erlent 24.10.2012 09:21
Danske Bank segir upp 300 starfsmönnum Danske Bank hefur sagt upp 300 starfsmönnum sínum og fengu þeir uppsagnarbréf sín í morgun. Viðskipti erlent 24.10.2012 08:24
Botnæta frá Wall Street hyggst græða á spænskum fasteignum Fjárfestirinn Wilbur Ross einn af auðugustu mönnum Bandaríkjanna hugsar sér til hreyfings á spænska fasteignamarkaðinum enda telur hann hægt að gera reyfarakaup þar í augnablikinu. Viðskipti erlent 24.10.2012 06:27
Gaf Central Park í New York yfir 12 milljarða Vogunarsjóðsstjórinn John Paulson hefur gefið samtökunum sem annast rekstur Central Park garðsins í New York 100 milljónir dollara eða um 12,6 milljarða króna. Viðskipti erlent 24.10.2012 06:13
Ný gerð iPad á markað Apple, verðmætasta fyrirtæki heims, kynnti nýja vörulínu á kynningarfundi í San José í Kaliforníu í gær. Á fundinum bar hæst að Apple tilkynnti að fyrirtækið hæfi brátt sölu á smærri og ódýrari gerð af iPad-spjaldtölvunni vinsælu. Viðskipti erlent 24.10.2012 06:00
SAS ræðst í umfangsmiklar aðhaldsaðgerðir Norræna flugfélagið SAS mun á næstunni ráðast í mjög víðtækar hagræðingaraðgerðir, sem munu hafa áhrif á þúsundir starfsmanna. Viðskipti erlent 23.10.2012 23:07
Facebook tapaði rúmum 7 milljörðum Tap af rekstri Facebook á þriðja ársfjórðungi nam 59 milljónum dala, eða 7,4 milljörðum króna. Þrátt fyrir það jukust tekjur síðunnar um 32% á ársfjórðungnum. Tekjurnar námu 1,26 milljörðum dala á ársfjórðungnum. Á fréttavef BBC kemur fram að þetta er umfram væntingar. Engu að síður er þetta annar ársfjórðunginn í röð sem tap er á rekstri Facebook. Á öðrum ársfjórðungi nam tapið 157 milljónum dala, eða tæpum 20 milljörðum króna. Viðskipti erlent 23.10.2012 22:45
iPad Mini kynnt í beinni útsendingu Tim Cook, framkvæmdastjóri Apple, mun stíga á svið í San Jose klukkan fimm í dag og kynna nýja og minni útgáfu af iPad-spjaldtölvunni. Viðskipti erlent 23.10.2012 15:05
Ný spjaldtölva frá Apple í dag Tæknirisinn Apple mun kynna minni útgáfu af iPad-spjaldtölvunni í Kaliforníu í dag. Grunur leikur á að Apple muni einnig opinbera minni útgáfu af MacBook Pro fartölvunni sem verður með mun hærri upplausn en forverar sínir. Viðskipti erlent 23.10.2012 10:12
Grænt ljós á eina stærstu bankasölu í sögu Norðurlanda Jafnaðarmannaflokkurinn í Svíþjóð ætlar að gefa grænt ljós á eina stærstu bankasölu í sögu Norðurlandanna. Viðskipti erlent 23.10.2012 06:23
Ný spjaldtölva frá Google og Samsung Talið er að tæknifyrirtækin Google og Samsung muni kynna nýja spjaldtölvu seinna í þessum mánuði. Tölvan verður að öllum líkindum hluti af Nexus vörulínunni sem fyrirtækin hafa þróað síðustu ár. Viðskipti erlent 22.10.2012 13:41
Heimsmarkaðsverð á olíu lækkar Heimsmarkaðsverð á olíu hefur lækkað um rúm 2% frá því fyrir helgina. Tunnan af Brent olíunni er komin í tæpa 110 dollara og tunnan af bandarísku léttolíunni er komin í tæpa 90 dollara. Viðskipti erlent 22.10.2012 08:31
Tekjur og hagnaður Actavis aukast á þessu ári Tekjur Actavis á þessu ári munu nema yfir 2,6 milljörðum dollara eða 324 milljörðum króna á þessu ári en þær námu 2,5 milljörðum dollara á síðasta ári. Viðskipti erlent 22.10.2012 06:41
Skortur á léttvínum í Evrópu vegna uppskerubrests Skortur verður á evrópskum léttvínum í vetur sökum uppskerubrests í nær öllum vínhéruðum álfunnar. Viðskipti erlent 22.10.2012 06:30
Rosneft styrkir stöðu sína enn frekar Breska olíufyrirtækið BP PLC hyggst selja hlut sinn í félaginu TNK-BP, sem hefur leyfi til olíuvinnslu í rússnesku landssvæði, til rússneska olíu- og jarðgasrisans Rosneft og verður tilkynnt formlega um söluna á morgun. Frá þessu var greint á vefsíðu Wall Street Journal í dag. Viðskipti erlent 21.10.2012 21:25
Ólympíuleikarnir glæða efnahag Bretlands Ólympíuleikarnir í Bretlandi í sumar virðast hafa haft góð áhrif á efnahag landsins. Eftir samdrátt framan af árinu 2012 tók efnahagurinn kipp milli júlí og september. Viðskipti erlent 21.10.2012 17:17
Ágreiningur áfram um útfærsluna Leiðtogar Evrópusambandsins náðu ekki samkomulagi um að bankabandalag með sameiginlegu bankaeftirliti evruríkjanna verði að veruleika fyrir áramótin, eins og Francois Hollande Frakklandsforseti hafði vonast til. Viðskipti erlent 20.10.2012 10:00
Samkomulag um eitt bankaeftirlit innan ESB Leiðtogar Evrópusambandsins hafa náð samkomulagi um eina eftirlitsstofnun fyrir alla banka í aðildarríkjum sambandsins á toppfundi sínum sem nú stendur yfir í Brussel. Viðskipti erlent 19.10.2012 06:42
Virði Google lækkaði um átta prósent Markaðsvirði Google dróst saman um átta prósent, á skömmu tíma, eftir að uppgjör fyrirtækisins fyrir þriðja ársfjórðung var kunngjört í gær, en hagnaður fyrirtækisins dróst saman um 20 prósent miðað við sama tíma árið á undan. Viðskipti erlent 18.10.2012 22:35
Hagvöxtur í Kína minnkar milli ársfjórðunga Hagvöxtur í Kína mældist 7,4 prósent á þriðja ársfjórðungi þessa árs, samanborið við sama tíma í fyrra. Ársfjórðunginn á undan mældist hagvöxturinn 7,6 prósent og því er um lítilsháttar minnkun á hagvexti að ræða milli ársfjórðunga. Viðskipti erlent 18.10.2012 13:15
Hæstiréttur Dana þyngir dóm vegna markaðsmisnotkunar Hæstiréttur Danmerkur hefur þyngt verulega dóm vegna markaðsmisnotkunar fyrrum ritstjóra tímaritsins Penge & Privatökonomi. Í Östre Landsret var ritstjórinn dæmdur í fjögurra mánaða fangelsi en Hæstirétturinn taldi rétt að hann sæti inni í átta mánuði. Viðskipti erlent 18.10.2012 11:01
Velheppnað skuldabréfaútboð hjá Spánverjum Seðlabanki Spánar stóð fyrir velheppnuðu ríkisskuldabréfaútboði í morgun. Alls voru seld bréf fyrir rúmlega 4,6 milljarða evra og voru vextirnir sem buðust mun lægri en í svipuðu útboði í september. Viðskipti erlent 18.10.2012 09:53
Inniskór Marie Antoinette seldir á 8 milljónir Inniskór Marie Antoinette, frönsku drottningarinnar sem hálshöggvin var í frönsku byltingunni í lok 18. aldar, voru seldir á uppboði. Skórnir, sem eru grænir og bleikir að lit, seldust fyrir 50.000 evrur eða um 8 milljónir króna sem var fimmfalt matsverð þeirra. Viðskipti erlent 18.10.2012 08:18
Tæplega 90 milljarða hagnaður eBay á þremur mánuðum Hagnaður söluvefsins eBay nam 718 milljónum dollara á þriðja ársfjórðungi, eða sem nemur tæplega 90 milljörðum króna. Sala á vefnum jókst um 14 prósent miðað við sama tíma í fyrra. Heildartekjur vefsins á þriðja ársfjórðungi námu 3,4 milljörðum dala, eða sem nemur ríflega 418 milljörðum króna. Viðskipti erlent 17.10.2012 22:03
Besta ár í áratug hjá dönskum sjávarútvegi Árið í fyrra var það besta í sögu sjávarútvegs í Danmörku undanfarin áratug. Viðskipti erlent 17.10.2012 10:37
Moody´s heldur óbreyttri lánshæfiseinkunn hjá Spáni Matsfyrirtækið Moody´s hefur ákveðið að halda lánshæfiseinkunn Spánar óbreyttri og með neikvæðum horfum. Þar með helst einkunnin áfram einu haki fyrir ofan svokallaðan ruslflokk. Viðskipti erlent 17.10.2012 06:44
Ótrúlegar vinsældir LinkedIn Samfélagsmiðillinn LinkedIn hefur vaxið ört síðustu misseri. Notendum hefur fjölgað jafnt og þétt frá því að síðan fór í loftið á sumarmánuðum ársins 2003. Þannig eru virkir notendur rúmlega 135 milljónir talsins en þeir voru um 35 milljónir í desember árið 2007. Viðskipti erlent 16.10.2012 17:58
Surface lendir 26. október Nýjasta spjaldtölva Microsoft, Surface, fer í almenna sölu í átta löndum seinna í þessum mánuði. Fyrirtækið svipti hulunni af spjaldtölvunni fyrir rúmu hálfu ári og hefur raftækið verið á allra vörum síðan þá. Viðskipti erlent 16.10.2012 17:10
Apple frumsýnir iPad Mini Tæknirisinn Apple hefur boðið blaðamönnum og áhrifafólki úr tækniheiminum að sækja ráðstefnu 23. október næstkomandi. Ljóst er að Apple mun kynna nýja spjaldtölvu á fundinum, iPad Mini. Viðskipti erlent 16.10.2012 16:56