Viðskipti erlent

Iceland Foods ræður nýjan viðskiptastjóra
Breska verslunarkeðjan Iceland Foods hefur ráðið fyrrverandi sölustjóra Aldi, Paul Foley, sem alþjóðlegan viðskiptastjóra fyrirtækisins. Foley mun sjá um útflutningsþjónustu Iceland Foods, ITEX, ásamt því að hafa umsjá með verslunum fyrirtækisins í Tékklandi.

Atvinnuleysi eykst enn á evrusvæðinu
Atvinnuástandið á evrusvæðinu heldur áfram að versna og enn eitt metið í fjölda atvinnulausra var slegið á svæðinu í júlímánuði.

Samskiptavefurinn Instagram að breytast í klámvef
Samskiptavefurinn Instagram er að breytast í klámvef. Þar sem áður voru huggulegar myndir af kaffibollum, matarboðum og tísku eru nú myndir af nöktu fólki í ýmiskonar stellingum.

Kallar eftir ótvíræðum aðgerðum til að leysa fjármálakreppuna
Marianno Rajoy, forsætisráðherra Spánar, segir að leiðtogar ríkjanna á evrusvæðinu verði að finna varanlega lausn á skuldavandanum sem ógni tilvist evrunnar. Framkvæmdastjóri Efnahags- og framfarastofnunarinnar OECD tekur undir og gagnrýnir Seðlabanka Evrópu fyrir að gera ekki nóg vegna fjármalakrísunnar og til að treysta stoðir evrunnar sem gjaldmiðils.

Seðlabanki Evrópu þarf að gera meira til að leysa skuldavandann
Angel Gurria, framkvæmdastjóri Efnahags- og framfarastofnunarinnar, OECD, segir að Seðlabanki Evrópu verði að gera meira til að leysa skuldavandann á evrusvæðinu og treysta á stoðir evrunnar sem myntar.

Um 35 milljarða hagnaður á hálfu ári - Enn óvissa í kortunum
Mikill hagnaður einkenndi rekstur bankanna á fyrri helmingi ársins en samanlagður hagnaður þeirra nam nálægt fjörutíu milljörðum króna. Bankastjóri Landsbankans segir þó enn töluverða óvissu í kortunum.

iPhone 5 væntanlegur á næstu dögum
Sá orðrómur er nú í hámæli að Apple hyggist sleppa frá sér nýrri útgáfu af iPhone 12. september og "iPad mini" - smækkaðri gerð af spjaldtölvunni vinsælu - einhvern tíma í október.

Auðkýfingar takast á - Abramovich sigraði Berezovsky
Rússneski auðkýfingurinn Boris Berezovsky, sem búið hefur í útlegð í Lundúnum síðustu ár, tapaði í dag dómsmáli gegn Roman Abramovich, eiganda breska fótboltaliðsins Chelsea FC.

Apple og Google leggja niður vopn í einkaleyfadeilu
Talið er að tæknirisarnir Apple og Google hafi nú samið um vopnahlé en stjórnarformenn og aðrir hátt settir stjórnendur fyrirtækjanna hafa fundað síðustu daga um hönnun snjallsíma og vernd hugverka.

Kínverjar kaupa Airbus vélar fyrir 420 milljarða
Kínversk stjórnvöld hafa gengið frá samningi við flugvélaframleiðandann Airbus um kaup á 50 flugvélum fyrir um 3,5 milljarða dala, eða sem nemur um 420 milljörðum krónum. Gengið var frá kaupunum á fundi sem skipulagður var í tengslum við opinbera tveggja daga heimsókn Angelu Merkel, kanslara Þýskalands, til Kína.

Matvælaverð hækkaði um 10% á heimsvísu í júlí
Verð á matvælum hækkaði að meðaltali um 10% á heimsvísu í síðasta mánuði. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu frá Alþjóðabankanum.

Eiffel turninn er verðmætasta mannvirki Evrópu
Mannvirki sem trekkja að ferðamenn geta verið fjárhagslega mikils virði sem slík. Ítalskir talnaspekúlantar tóku sig til á dögunum og reiknuðu út fjárhagslegt virði nokkurra helstu mannvirkja heims. Þar trónir Eiffel turninn á toppnum, en turninn er 67 billjóna króna virði miðað við frétt Túrista.is.

Amazon kynnir nýja spjaldtölvu í næstu viku
Vefverslunin og tæknifyrirtækið Amazon tilkynnti í dag að spjaldtölva félagsins, Kindle Fire, væri ekki lengur fáanleg. Talið er að Amazon hafi nú hætt allri framleiðslu á spjaldtölvunni.

Meðstofnandi Facebook losar sig við hlutabréf
Dustin Moskovitz, meðstofnandi Facebook og fyrrverandi herbergisfélagi Mark Zuckerberg, seldi í dag 450 þúsund bréf í samskiptamiðlinum. Moskovitz fékk 8.7 milljónir dollara í sinn hlut fyrir bréfin eða það sem nemur tæplega 1.1 milljarði íslenskra króna.

Antony Jenkins ráðinn forstjóri Barclays
Antony Jenkins hefur verið ráðinn nýr forstjóri breska bankans Barclays. Bob Daimond, fyrrum forstjóri bankans, sagði starfi sínu lausu eftir að bankinn viðurkenndi stórfelld lögbrot sem snéru að fölsun vaxtaálags á skuldir bankans. Bankinn greiddi 290 milljónir punda, tæplega 56 milljarða króna, í sekt til breska fjármálaeftirlitsins vegna málsins.

Sony reynir á ný við spjaldtölvumarkaðinn
Tækniráðstefnan IFA í Berlín stendur nú sem hæst. Raftækjaframleiðandinn Sony kynnti í gær nýja vörulínu en þar á meðal er vatnsheld spjaldtölva og þrír spánýir snjallsímar.

Samsung gefur ekkert eftir - kynnir nýja vörulínu
Suður-Kóreski raftækjaframleiðandinn Samsung kynnti nýjustu vörulínu sína á IFA tækniráðstefnunni í Berlín í gær. Enginn uppgjafartónn er í Samsung, þrátt fyrir slæma niðurstöðu í dómsmáli gegn Apple á dögunum.

Obama einblínir á samskiptamiðla - heimsótti Reddit
Barack Obama, Bandaríkjaforseti, sat óvænt fyrir svörum á vefsíðunni Reddit í gær. Nokkur þúsund spurninga bárust frá notendum síðunnar en forsetinn sá sér ekki annað fært en að svara aðeins tíu af þeim.

Stefnir í mesta hagnað bandarískra bænda í sögunni
Allt útlit er fyrir að hreinn hagnaður hjá bandariskum bændum í ár verði sá mesti í sögunni. Og það þrátt fyrir uppskerubrest í nokkrum ríkjum landsins vegna mikilla þurrka í vor og sumar.

Eyjafjallajökull? - Google skilur nú íslensku
Íslensku hefur nú verið bætt við raddleit tæknirisans Google. Háskólinn í Reykjavík og Máltæknisetur hafa unnið að verkefninu síðustu ár og það í samstarfi við Google. Notendur geta nú nýtt sér þessa þjónustu. Trausti Kristjánsson, athafnarmaður og starfsmaður Google, segir tæknina bjóða upp á margskonar möguleika.

Lögbannskrafa á hendur Samsung tekin fyrir í desember
Krafa Apple, um að nokkrir snjallsímar raftækjafyrirtækisins Samsung verði teknir af markaði í Bandaríkjunum, verður tekin fyrir af dómstólum í desember á þessu ári. Upphaflega var áætlað að krafan yrði tekin fyrir í næsta mánuði.

Velgengni Amazon nær nýjum hæðum
Vefverslunarrisinn Amazon tilkynnti fyrr í vikunni að rafbækur sem einskorðaðar eru við Kindle-lesbrettið hafa verið keyptar, halað niður og lánað rúmlega hundrað milljón sinnum. Rétt rúmlega 180 þúsund rafbækur eru á bókaskrá Amazon.

Repúblikanar skoða gullfót undir dalinn
Repúblikanaflokkurinn, annar af stóru flokkunum tveimur í Bandaríkjunum, hyggst kalla eftir því í stefnuskrá sinni fyrir forsetakosningarnar í haust að stofnuð verði nefnd til að skoða tengingu Bandaríkjadals við gullfót.

Samkomulag um sparnaðaraðgerðir í Grikklandi
Grísku stjórnarflokkarnir hafa náð samkomulagi um víðtækar sparnaðaraðgerðir í ríkisfjármálum landsins en þessar aðgerðir eru skilyrði þess að landið fái áframhaldandi neyðaraðstoð frá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum og Evrópusambandinu.

Sögufræg Íslendingakrá í Kaupmannahöfn berst í bökkum
Hin sögufræga krá Hviids Vinstue við Kongens Nytorv í Kaupmannahöfn berst nú í bökkum og framtíð hennar er óljós.

Slagurinn harðnar - Apple krefst lögbanns á Samsung síma
Fjarskipta- og hugbúnaðarrisinn Apple hefur krafist lögbanns á sölu á Samsung símum, en krafan var lögð fram í Kaliforníu, þar sem höfuðstöðvar Apple eru, seinni partinn í gær. Krafan byggir á niðurstöðu dómstóla í Bandaríkjunum um að Samsung hafi brotið gegn Apple með því að nýta sér höfundarréttarvarinn hugbúnað fyrirtækisins. Var Samsung gert að greiða einn milljarða dala, jafnvirði um 120 milljarða króna, í sekt vegna málsins.

Verkfall boðað sem lamar starfsemi Lufthansa
Allar líkur eru á að starfsemi þýska flugfélagsins Lufthansa, sem er það stærsta í Evrópu, muni lamast á næstunni þar sem verkfall um 19.000 flugliða er framundan hjá félaginu.

Fjölmiðlageirinn að breytast hratt
Tækniframfarir hafa opnað fyrir nýja möguleika á miðlun efnis með ýmsum hætti. Sérstaklega er það ör útbreiðsla snjallsíma og spjaldtölva sem er að valda miklum breytingum.

Forsvarsmenn Samsung ætla að grípa til varna
Forsvarsmenn tæknirisans Samsung ætla að grípa til varna og gera "allt sem hægt er til þess að verja fyrirtækið“, að því er segir í minnisblaði sem stjórn Samsung sendi starfsmönnum fyrirtækisins fyrr í dag.

Allt fellur með Norðmönnum - finna enn meira af olíu
Norska olíufyrirtækið Statoil, þar sem norska ríkið á tæplega 70 prósent eignarhlut, staðfesti í morgun að félagið hefði fundið vinnanlega olíu á svokölluðu Geitungen-svæði, sem er nærri Johan Sverdrup-svæðinu í Norðursjó.