Viðskipti erlent
174 175 176 177 178 179 180 181 182 … 334 ›
Niðursveifla á mörkuðum í nótt Niðursveifla varð á mörkuðum í Asíu í nótt. Nikkei vísitalan í Japan lækkaði um 0,8% og Hang seng vísitalan í Hong Kong lækkaði um 0,5%. Þá lækkaði tunnan af Brent olíunni um rúman dollar og er komin undir 96 dollara. Viðskipti erlent 19.6.2012 06:34
17. júní gæti orðið sögulegur fyrir Færeyjar Dagurinn 17. júní 2012 gæti orðið söglegur fyrir Færeyjar. Þann dag var borinn settur í færeyska landgrunnið í áttundu tilraun til að finna færeysku olíuna. Þannig hefst frétt á færeyska netmiðlinum oljan.is en kínverski borpallurinn Cosl Pioneer mun bora næstu 4-5 mánuði. Viðskipti erlent 18.6.2012 10:15
Spænskir vextir rufu 7% múrinn í morgun Vextir á spænskum ríkisskuldabréfum til tíu ára fóru yfir 7% markið í morgun og standa nú í 7,125%. Undanfarna daga hafa þessir vextir dansað rétt undir 7% mörkunum. Viðskipti erlent 18.6.2012 10:04
Fasteignaverð í Kína heldur áfram að lækka Fasteignaverð í 55 af 70 borum í Kína lækkaði í síðasta mánuði miðað við sama mánuð árið á undan. Áhyggjur fara nú vaxandi af því að stjórnvöld hafi þrengt of mikið að fasteignamarkaðnum með aðgerðum sem í upphafi voru hugsaðar til þess að koma kæla hagkerfið niður, að því er breska ríkisútvarpið BBC greinir frá. Viðskipti erlent 18.6.2012 08:43
Kevin Costner hafði betur í dómsmálinu í New Orleans Kevin Costner hafði betur gegn Stephen Baldwin í réttarsal í New Orleans þar sem þessar Hollywood stjörnur deildu um sölu á hlut í félaginu Ocean Therapy Solutions. Viðskipti erlent 18.6.2012 08:41
Uppsveifla á mörkuðum í Evrópu Markaðir í Evrópu eru í uppsveiflu í fyrstu viðskiptum dagsins. Fylgja þeir þar með í fótspor markaða í Asíu í nótt. Viðskipti erlent 18.6.2012 08:08
Forstjóri Lego sniðgengur skatta í Danmörku Kjeld Kirk Kristiansen forstjóra Lego í Danmörku hefur tekist að komast hjá því að borga skatta til danska ríkisins árum saman. Viðskipti erlent 18.6.2012 07:51
Burger King ætlar að opna 1000 staði í Kína Hamborgarakeðjan Burger King stefnir að því að opna um þúsund veitingastaði í Kína á næstu fimm til sjö árum. Nú þegar eru 60 staðir í landinu en með þessu ætlar keðjan að hasla sér völl á þessum risastóra markaði. Keðjan á þó langt í land samanborið við samkeppnisaðilann McDonalds sem er með 1400 útibú í Kína. Á síðustu mánuðum hefur keðjan opnað hundruði staða í Rússlandi og Brasilíu. Yfir 12.500 Burger King-staðir eru víðsvegar um heiminn, flestir í Evrópu. Viðskipti erlent 16.6.2012 13:43
Meiri aðstoð í boði frá Seðlabanka Evrópu Seðlabanki Evrópu er reiðubúinn til að styðja enn frekar við bankakerfi evrusvæðisins ef nauðsyn ber til. Mario Draghi, seðlabankastjóri segir að evrusvæðið verði enn tilbúið til að "leggja viðkvæmum bönkum til lausafé ef þörf er á." Viðskipti erlent 15.6.2012 14:00
Neyðaraðgerðir í Englandi vegna kreppunnar Englendingar tilkynntu í gær að enskir bankar muni fá hjálp frá Seðlabanka landsins og Fjármálaráðuneytinu sem gæti numið allt að 80 milljörðum punda (rúmum 15.000 milljörðum króna). Viðskipti erlent 15.6.2012 09:40
Framboð á íslenskum fiski aftur eðlilegt í Grimsby og Hull Framboð á íslenskum fiski á Humbersvæðinu, það er á fiskmarkaðina í Grimsby og Hull, er komið aftur í eðlilegt horf. Viðskipti erlent 15.6.2012 06:53
Skákborð Páls í Pólaris seldist ekki á uppboði í Kaupmannahöfn Skákborð og talfmenn úr einvígi aldarinnar árið 1972 seldust ekki á uppboði í Kaupmannahöfn þar sem hæsta boð var langt undir matsverði þeirra. Viðskipti erlent 15.6.2012 06:47
Ekkert samkomulag hjá OPEC, olíuverðið lækkar áfram Olíumálaráðherrar OPEC samtakanna náðu ekki samkomulagi um að draga úr olíuframleiðslu sinni á árlegum fundi samtakana í Vín sem lauk í gærdag. Því er reiknað með að olíuverðið haldi áfram að lækka. Viðskipti erlent 15.6.2012 06:42
Vextir á spænskum ríkisskuldabréfum fóru í 7% markið Ávöxtunarkrafan á spænsk ríkisskuldabréf til 10 ára fór í 7% markið í morgun. Þetta gerðist í kjölfar þess að matsfyrirtækið Moody´s lækkaði lánshæfiseinkunn Spánar um þrjú stig í gærkvöldi. Viðskipti erlent 14.6.2012 09:43
Man. Utd. horfir til Bandaríkjanna eftir nýju hlutafé Forsvarsmenn og eigendur enska knattspyrnufélagsins Manchester United skoða nú það möguleika afla nýs hlutafjár í Bandaríkjunum frekar en Singapore eins og fyrri áætlanir gerðu ráð fyrir. Félagið hyggst afla um einum milljarði punda í nýtt hlutafé, sem jafngildir um 200 milljörðum íslenskra króna. Viðskipti erlent 14.6.2012 09:32
Nokia ætlar að segja upp 10.000 manns Farsímafyrirtækið Nokia hefur tilkynnt að um 10.000 starfsmönnum þess verði sagt upp í áföngum fram til ársloka á næsta ári. Viðskipti erlent 14.6.2012 09:25
Moody´s lækkar lánshæfiseinkunn Spánar um þrjú stig Enn bætist við hremmingar Spánverja en matsfyrirtækið Moody´s hefur lækkað lánshæfiseinkunn Spánar um þrjú stig. Viðskipti erlent 14.6.2012 07:06
SAAB verður einungis rafmagnsbíll í framtíðinni SAAB fyrirtækið, sem um árabil hefur verið eitt af flaggskipum sænsks iðnaðar, hefur endanlega verið selt til kínversks-sænks fjárfestingafélags sem hyggst nýta sér vörumerkið fyrir framleiðslu á rafmagnsbílum. Fjárrfestingafélagið heitir National Electric Vehicle Sweden (NEVS). Viðskipti erlent 13.6.2012 14:26
Færeyingar ræða við Kínverja um umskipunarhöfn Atvinnumálaráðherra Færeyja vill að á eyjunum verði umskipunarhöfn vegna norðurslóðasiglinga. Hann ætlar að taka málið upp í viðræðum við kínverska sendinefnd sem væntanleg er til Færeyja í næstu viku. Í viðtali við netmiðilinn oljan.fo segir Johan Dahl landsstýrismaður, en svo nefnast færeysku ráðherrarnir, að þegar skip fari að sigla yfir Norður-Íshafið liggi Færeyjar vel við sem umskipunarhöfn vegna siglingaleiðarinnar. Viðskipti erlent 12.6.2012 13:45
Niðursveifla á mörkuðum Niðursveifla varð á mörkuðum í Asíu í nótt og evran féll í verði að nýju. Hlutabréfavísitölur í Japan og Hong Kong lækkuðu um rúmt prósent og heimsmarkaðsverð á olíu lækkaði einnig. Viðskipti erlent 12.6.2012 08:09
Verk eftir danskan málara selt á tæplega 350 milljónir Málverk eftir danska málarann Vilhelm Hammershöj var slegið á uppboði í London í gærdag fyrir tæplega 350 milljónir króna og er verkið þar með dýrasta málverkið sem selt hefur verið á uppboði í sögu Danmerkur. Viðskipti erlent 12.6.2012 06:49
Útflutningur eykst skarplega í Kína en samt merki um minni hagvöxt Þrátt fyrir að útflutningur frá Kína inn á erlenda markaði hafi verið 15,3 prósentum meiri í maí en í sama mánuði í fyrra, eru áhyggjuraddir vegna hjöðnunar í Kína orðnar háværar. Í umfjöllun breska ríkisútvarpsins BBC kemur fram að þessi mikla hækkun bendi ekki til mikils vaxtar heldur sé um að ræða skammtímasveiflu, sem sé ekki svo mikil þegar horft sé ársins í heild. Viðskipti erlent 11.6.2012 08:50
Langtímatvinnuleysi stóreykst innan ESB Langtímatvinnuleysi hefur stóraukist í ríkjum Evrópusambandsins undanfarin ár og nær nú yfir fjóra af hverjum tíu á atvinnuleysisskrá. Viðskipti erlent 11.6.2012 06:45
Vanskil lána hjá almenningi í Danmörku aukast hratt Vanskil lána hjá dönskum almenningi hafa vaxið mjög hratt á undanförnum árum. Bara frá áramótum hafa vanskilin aukist um milljarð danskra króna eða yfir 21 milljarð kr. Viðskipti erlent 11.6.2012 06:34
Markaðir í uppsveiflu, evran styrkist og olíuverð hækkar Markaðir hafa tekið vel í 100 milljarða evru neyðaraðstoð Evrópusambandsins til handa spænskum bönkum sem samþykkt var um helgina. Viðskipti erlent 11.6.2012 06:25
Spánn stærsta ríkið sem óskar aðstoðar Spánn er fjórða ríkið á evrusvæðinu sem óskar eftir fjárhagsaðstoð frá Evrópusambandinu, en jafnframt stærsta ríkið sem biður um slíka aðstoð. Viðskipti erlent 10.6.2012 10:07
Spánverjar fá allt að 100 milljarða evrulán Spánverjar munu fá allt að 100 milljarða evra (rúmir 16.000 milljarðar króna) lán frá sameiginlegum sjóðum evrusvæðisins til að verja banka landsins. Viðskipti erlent 9.6.2012 21:04
Spánverjar óska eftir neyðaraðstoð Spánn hefur óskað eftir neyðaraðstoð vegna spænskra banka. Þetta gaf fjármálaráðherra Spánar upp eftir að fjármálaráðherrar Evrópusambandsins héldu neyðarfund í dag. Viðskipti erlent 9.6.2012 18:09
Obama hefur áhyggjur af evrusvæðinu Barack Obama, bandaríkjaforseti, sagði í gær að þjóðarleiðtogar í Evrópusambandinu þyrftu að taka erfiðar ákvarðanir til að forða evrusvæðinu undan kreppu. Hann sagði að djúp kreppa í Evrópu myndi hafa áhrif á bandarískan efnahag, enda er Evrópusambandið stærsti viðskiptaaðili Bandaríkjanna. Viðskipti erlent 9.6.2012 17:44
Liggur á að leysa vanda Spánar Það liggur á að leysa vandamál Spánar miðað við orð Jean-Claude Juncker, sem stýrir fundum fjármálaráðherra Evrópusambandsins (ESB). Talið er að stjórnvöld í Brussel og Þýskalandi vilji afgreiða vandamál Spánar fyrir þingkosningar sem fara fram í Grikklandi 17. júní næstkomandi. Viðskipti erlent 9.6.2012 17:36