Viðskipti erlent
253 254 255 256 257 258 259 260 261 … 334 ›
Yfir 30 milljónir Bandaríkjamanna án atvinnu Yfir 30 milljónir Bandaríkjamanna eru atvinnulausir. Atvinnuleysi þar hefur aukist gríðarlega frá því áður en undirmálslánakrísan svonefnda kom upp. Viðskipti erlent 15.8.2010 23:30
Rússar banna útflutning á korni Yfirvöld í Rússlandi hafa bannað allan útflutning á korni til ársloka. Þetta var ákveðið í kjölfar uppskerubrets vegna skógareldanna þar í landi. Áður höfðu yfirvöld bannað útflutning á hveiti, byggi og rúgi. Á vef breska ríkisútvarpsins kemur fram að bannið kemur til með að bitna helst á íbúum Mið-Austurlanda með hærra brauðverði en þangað selja Rússar megnið af uppskeru sinni. Viðskipti erlent 15.8.2010 17:00
Landsframleiðsla jókst um 2,2% í Þýskalandi Landsframleiðsla í Þýskalandi jókst um 2,2% á öðrum fjórðungi ársins. Viðskipti erlent 14.8.2010 19:38
IKEA bæklingurinn kemur út í sextugasta sinn IKEA bæklingurinn kemur út í Skandinavíu um þessar mundir í sextugasta sinn. Fyrsti bæklingurinn kom út árið 1951 og var upplagið þá 250 þúsund eintök. Þá var bæklingurinn níu blaðsíður að lengd. Viðskipti erlent 14.8.2010 13:00
Norski olíusjóðurinn tapaði tæpum 3.000 milljörðum Norski olíusjóðurinn fékk á sig mikinn skell á öðrum ársfjórðungi ársins. Tapið af rekstrinum nemur 155 milljörðum norskra kr. eða rétt tæpum 3.000 milljörðum kr. Er þetta fjórða mesta tap á einum ársfjórðungi hjá sjóðnum. Viðskipti erlent 13.8.2010 10:56
Hagvöxtur í ESB-löndunum mun meiri en vænst var Hagvöxtur í ESB-löndunum á öðrum ársfjórðungi ársins reyndist mun meiri en vænst var. Vöxturinn reyndist 1% hærri en hann var á fyrsta ársfjórðungi ársins. Sérfræðingar höfðu hinsvegar aðeins reiknað með 0,2% vexti. Viðskipti erlent 13.8.2010 10:28
Fjöldi fátækra Dana hefur aldrei verið meiri Fjöldi þeirra sem lifa undir fátækramörkunum í Danmörku hefur aldrei verið meiri í sögunni. Yfir 300.000 Danir teljast nú til fátækra þar í landi. Viðskipti erlent 13.8.2010 07:53
Hveitiuppskera heimsins rýrnar um 15 milljónir tonna Bandaríska landbúnaðarráðuneytið hefur verulega dregið úr áætlunum sínum um umfang hveitiuppskeru heimsins í ár. Viðskipti erlent 13.8.2010 07:44
Atvinnuleysistölur í Bandaríkjunum hækka enn Atvinnuleysistölur í Bandaríkjunum halda áfram að hækka. Í síðustu viku bættust við 2000 manns á atvinnuleysisskrá. Þá voru atvinnulausir alls 484 þúsund talsins og höfðu ekki verið hærri fleiri í hálft ár, eða síðan í febrúar. Hagfræðingar höfðu hins vegar búist við því að atvinnulausum myndi fækka og voru að gera sér vonir um að talan færi niður í 469 þúsund. Viðskipti erlent 12.8.2010 18:15
Verðhækkanir á byggi valda hækkun bjórverðs Heimsmarkaðsverð á byggi hefur meir en tvöfaldast á síðustu mánuðum og eru þær hækkanir í samræmi við hækkanir á hveiti og öðrum kornvörum. Sökum þessa má reikna með að verð á bjór muni hækka töluvert á næsta ári. Viðskipti erlent 12.8.2010 11:15
FIH bankinn eykur væntingar um hagnað ársins FIH bankinn í Danmörku, sem er í íslenskri eigu, hefur aukið við væntingar sínar um hagnaðinn á þessu ári. Nú gerir bankinn ráð fyrir að hagnaðurinn nemi 450 milljónum danskra kr. eða rúmlega níu milljarða kr. eftir skatta. Viðskipti erlent 12.8.2010 10:06
Hagfræðiprófessor fullyrðir að Bandaríkin séu gjaldþrota Bandarískur hagfræðiprófessor fullyrðir að Bandaríkin séu í raun gjaldþrota. Skattar þurfi að tvöfaldast til þess að hægt sé að ná tökum á skuldastöðu ríkisins. Viðskipti erlent 11.8.2010 22:59
Furstafjölskylda notar Danmörku til milljarða fjármagnsflutninga Furstafjölskyldan í Liechtenstein, sem er ríkasta aðalsfjölskylda Evrópu, notar Danmörku til að millifæra tugi milljarða króna af fjármunum sínum milli sjóða sinna, verðbréfasala og skattaskjóla víða um heiminn. Viðskipti erlent 11.8.2010 06:50
Volvo ætlar að koma í veg fyrir banaslys Enginn sem ferðast um í Volvo bifreið mun slasast alvarlega eða farast í bílslysi frá og með árinu 2020, samkvæmt nýrri áætlun sem bílaframleiðandinn hefur kynnt. Viðskipti erlent 10.8.2010 23:00
Opinberir starfsmenn eyddu 400 þúsund í mat á Noma Átta opinberir starfsmenn bæjarins Kolding í Danmörku verða nú að fara djúpt í vasa sína og borga að hluta til reikning eftir að þeir fóru út að borða á kostnað bæjarins á hinu þekkta veitingahúsi Noma. Viðskipti erlent 10.8.2010 07:51
Hættulegast í vinnunni milli klukkan 10 og 11 að morgni Ný dönsk könnun sýnir að hættulegasta klukkustundin í vinnunni er á milli klukkan tíu og ellefu á morgnanna. Viðskipti erlent 10.8.2010 07:17
Honda innkallar bifreiðar Honda bílaframleiðandinn hefur ákveðið að innkalla 197 þúsund Accord bifreiðar og 117 þúsund Civic bifreiðar auk 69 þúsund Element bifreiðar frá árunum 2003 og 2004 vegna gruns um framleiðslugalla í kveikjulás. Viðskipti erlent 9.8.2010 17:54
Niðursveifla hjá Buffett, verulega dregur úr hagnaði Erlendir sérfræðingar eru nú að spá í hvort ofurfjárfestinum og goðsögninni Warren Buffett sé farið að förlast. Hagnaður hjá félagi hans, Berkshire Harhaway, minnkaði um 40% á öðrum ársfjórðungi ársins miðað við sama tímabil í fyrra. Viðskipti erlent 9.8.2010 10:02
Danskir bankar hafa tapað 2.200 milljörðum Danskir bankar hafa tapað 105 milljörðum danskra króna eða um 2.200 milljörðum króna í kreppunni frá því hún skall á árið 2008. Ef ekki hefði komið til aðstoð frá dönskum stjórnvöldum væri tap þessara banka þrefalt meira. Viðskipti erlent 9.8.2010 08:40
Grænlendinga dreymir um nýtt olíuævintýri Grænlendinga dreymir nú um nýtt olíuævintýri sem gæti leitt til þess að landið yrði fjárhagslega sjálfstætt frá Danmörku. Viðskipti erlent 9.8.2010 07:50
Segir skattalækkanir geta leitt til þjóðargjaldþrots David Stockman, efnahagsráðgjafi Ronalds Reagan, fyrrverandi Bandaríkjaforseta og yfirlýstur íhaldsmaður óttast að áætlanir um skattalækkanir í Bandaríkjunum geti þýtt þjóðargjaldþrot fyrir landið. Viðskipti erlent 8.8.2010 13:56
Náði samkomulagi við konuna sem hann áreitti Fyrrum forstjóri Hewlett-Packard tölvuframleiðandans, Mark Hurd, hefur náð samkomulagi um greiðslu bóta til konu sem sakaði hann um kynferðislega áreitni. Ásökun konunnar varð til þess að Hurd lét af forstjórastarfi í fyrirtækinu eins og Vísir sagði frá í gær. Viðskipti erlent 8.8.2010 11:12
Sara stefnir i gjaldþrot Skuldir Söru Ferguson, greifynju af York, nema næstum fimm milljónum sterlingspunda. Breska konungsfjölskyldan óttast að hún stefni í gjaldþrot. Viðskipti erlent 8.8.2010 09:43
Hver farþegi skilar minni tekjum Tekjur SAS flugfélagsins af hverjum farþega lækkuðu um 9% í júlí, samkvæmt nýjum tölum frá SAS. Norski viðskiptavefurinn e24 segir að þetta sé umtalsvert meira tap en flugfélagið hafði gert ráð fyrir. Viðskipti erlent 7.8.2010 17:31
Forstjóri HP hættir vegna ásakana um áreitni Mark Hurd, forstjóri Hewlett-Packard tölvuframleiðandans, hefur sagt starfi sínu lausu eftir að hann var ásakaður um að hafa áreitt konu kynferðislega. Konan var viðskiptavinur fyrirtækisins. Talsmenn Hewlett-Packard segja að stefnumörkun fyrirtækisins gegn kynferðilegri áreitni hefði ekki verið brotin. Hins vegar hefðu reglur fyrirtækisins um viðskiptasiðferði verið brotnar. Cathie Lesjak hefur verið ráðin forstjóri Hewlett-Packard til bráðabirgða. Viðskipti erlent 7.8.2010 16:20
Miklar verðhækkanir á brauði framundan Hinar miklu verðhækkanir á hveiti undanfarnar vikur mun leiða til þess að matvælaverð hækkar töluvert á seinni hluta ársins. Viðskipti erlent 6.8.2010 07:56
Kornbann Rússa olli uppnámi á hrávörumörkuðum Mikið uppnám varð á hrávörumörkuðum síðdegis í gær eftir að rússnesk stjórnvöld tilkynntu um útflutningsbann á korni frá Rússlandi en bannið gildir til áramóta. Viðskipti erlent 6.8.2010 07:41
Dýrast að borga í stöðumæli í Kaupmannahöfn Kaupmannahöfn er orðin sú borg í heiminum þar sem dýrast er að borga bílastæðagjöld. Viðskipti erlent 6.8.2010 07:28
Bretar keyptu færri bíla Sala á nýjum bílum í Bretlandi dróst saman í júlí, í fyrsta sinn í heilt ár. Alls voru 136,446 bílar skráðir í síðasta mánuði. Það er samdráttur um 13,2% miðað við júlí í fyrra, eftir því sem fram kemur í frétt Daily Telegraph. Viðskipti erlent 5.8.2010 16:19
Grikkjum gengur vel að fást við fjárlagahallann Aðgerðir Grikkja til að fást við fjárlagahalla ríkissjóðs ganga vel að mati Alþjóðagjaldeyrissjóðsins og Evrópusambandsins. Starfslið á vegum Alþjóðagjaldeyrissjóðsins, Evrópusambandsins og Seðlabanka Evrópu var nýlega í Grikklandi til að kynna sér stöðu mála. Viðskipti erlent 5.8.2010 14:03