
Viðskipti innlent

Hlutabréfin rjúka hvergi meira upp en á Íslandi
Tólf mánaða verðhækkun á hlutabréfamarkaðnum hér á landi nam 65,4 prósentum í lok ágúst sem er mesta hækkunin yfir heiminn á þessu tímabili sé litið til helstu hlutabréfamarkaða. Þetta kemur fram í Hagsjá Landsbankans sem hagfræðideild bankans gefur út.

MS gagnrýnir þátttöku forstjóra Samkeppniseftirlitsins í kostuðu blaði
Pálmi Vilhjálmsson, forstjóri Mjólkursamsölunnar, gagnrýnir harðlega að forstjóri Samkeppniseftirlitsins, Páll Gunnar Pálsson, skuli hafa veitt Fréttablaðinu viðtal sem var birt í kostuðu kynningarblaði sem bar yfirskriftina „Fögnum frelsinu - Samkeppni lifi“.

Vísbendingar um hægari efnahagsbata
Leiðandi hagvísir Analytica hækkaði í ágúst og hefur ekki verið hærri síðan í ársbyrjun 2019. Er þetta ellefti mánuðurinn í röð sem hagvísirinn hækkar en um er að ræða vísitölu sem á að gefa vísbendingu um vendipunkta í efnahagsumsvifum hérlendis að sex mánuðum liðnum.

Kaupir sig inn á markaðinn fyrir reyktan lax á Spáni fyrir tvo milljarða
Iceland Seafood International hefur samið um kaup á spænska fyrirtækinu Ahumados Dominguez fyrir 12,4 milljónir evra, tæpa tvo milljarða króna. Fyrirtækið er helst þekkt fyrir að framleiða reyktan gæðalax.

Áhyggjur af stöðugum uppsögnum
Stjórn Samtaka starfsmanna fjármálafyrirtækja (SSF) hefur áhyggjur af stöðugum uppsögnum innan fjármálageirans og segir uppsagnir starfsmanna í engum takti við afkomu fyrirtækjanna undanfarin misseri.

Ferðalög Íslendinga taka við sér
Kaup Íslendinga á ferðum til útlanda hafa aukist mikið á þessu ári en í ágústmánuði jókst velta innlendra greiðslukorta hjá ferðaskrifstofum um 211 prósent milli ára.

Sérfræðingar fjölluðu um hvað gera ætti þegar krísa skylli á
Viðbrögð við krísum á samfélagsmiðlum verða til umræðu í málstofu í Háskólans í Reykjavík í hádeginu í dag. Fundurinn hefst klukkan 12 og stendur til klukkan 13.

Afkoma hins opinbera ekki verri síðan 2008
Tekjuafkoma hins opinbera var neikvæð um 254 milljarða króna árið 2020, eða sem nemur 8,6 prósent af vergri landsframleiðslu ársins. Hefur hún ekki verið verri síðan 2008. Faraldur kórónuveirunnar hefur haft mikil áhrif á tekjur og gjöld hins opinbera.

Lífeyrissjóðir bæta við sig í Bláa lóninu og hafa trú á enn frekari vexti
Hópur íslenskra lífeyrissjóða kláraði formlega í lok síðustu viku kaup á 6,18 prósenta hlut í Bláa lóninu fyrir 25 milljónir evra, jafnvirði um 3,8 milljarða íslenskra króna.

Ráðin markaðsstjóri atNorth
Bylgja Pálsdóttir hefur verið ráðin markaðsstjóri hátæknifyrirtæksins atNorth.

Loftleiðir semja um flug til Kúbu og Suðurskautslandsins
Loftleiðir, dótturfélag Icelandair Group, er í viðræðum við Anmart Superior Travel sem er ferðaheildsali í Flórída um samstarf um flug þaðan. Fyrsta skrefið í því samstarfi eru þrettán ferðir á milli Flórída og Havana á Kúbu á tímabilinu október til desember næstkomandi. Einnig hefur verið samið um flug milli Chile og Suðurskautslandsins.

Jón Ásgeir bjargaði Iceland Express á ögurstundu
Jón Ásgeir Jóhannesson athafnamaður kom rekstri Iceland Express til bjargar á upphafsárum flugfélagsins þegar útlit var fyrir að fjárskortur kæmi í veg fyrir að fyrsta vélin færi í loftið.

Hver ferðamaður eyðir þrisvar sinnum meira en áður
Tekjur af erlendum ferðamönnum voru þrefalt hærri á öðrum ársfjórðungi samanborið við sama tíma í fyrra. Formaður SAF segir afar ánægjulegt að sjá að ferðamenn séu að dvelja lengur hér á landi og eyða meiru en áður.

Bein útsending: Fara markaðir bara upp?
Landsbankinn heldur fræðslufund um mikilvægi eignadreifingar við uppbyggingu á stöndugu eignasafni og hvernig nota má eignadreifingu til að lágmarka sveiflur í ávöxtun.

FÍB kærir SFF vegna hagsmunagæslu framkvæmdastjóra
Félag íslenskra bifreiðaeigenda hefur sent kvörtun til Fjármálaeftirlitsins vegna hagsmunagæslu framkvæmdastjóra Samtaka fjármálafyrirtækja fyrir hönd tryggingafélaganna í grein sem birtist á Vísi.

Hefur ekki keypt áfengi af netverslun og skoðar hvort starfsemin standist lög
Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir dómsmálaráðherra segir til skoðunar hjá ráðuneyti sínu hvort áfengissala netverslana sem skráðar eru erlendis en starfi að miklu leyti til hér á landi stangist á við lög. Félag atvinnurekanda hefur kallað eftir svörum um málið þar sem fjöldi fyrirtækja hefur áhuga á að hefja slíka sölu. Sjálf hefur Áslaug ekki keypt áfengi af slíkri netverslun.

Hefja samstarf um nýja leið til að fanga koldíoxíð
Þrír ráðherrar undirrituðu í dag viljayfirlýsingu um samstarf ráðuneyta og fyrirtækjanna Ocean Geoloop AS og North Tech Energy ehf. Fyrirtækin hafa kynnt stjórnvöldum hugmyndir að nýjum leiðum við að fanga koldíoxíð (CO2) úr andrúmsloftinu.

Miklar verðhækkanir hlutabréfa skiluðu Stoðum nærri 13 milljarða hagnaði
Stoðir, umsvifamesta fjárfestingafélagið á íslenskum hlutabréfamarkaði um þessar mundir, hagnaðist um rúmlega 12,6 milljarða króna á fyrri árshelmingi þessa árs.

Bein útsending: Grænir iðngarðar á Íslandi
Niðurstöður vinnu og næstu skref þegar kemur að uppsetningu grænna iðngarða á Íslandi verða kynnt á fundi sem streymt verður úr Hörpu klukkan 13 í dag.

Samþykkja styrki íslenskra stjórnvalda til einkarekinna fjölmiðla
Eftirlitsstofnun EFTA (ESA) samþykkti í dag rekstrarstuðning stjórnvalda til einkarekinna fjölmiðla á Íslandi. Er það mat stofnunarinnar að um að sé að ræða ríkisaðstoð sem rúmist innan ákvæða EES-samningsins.

Hrefna Ösp nýr framkvæmdastjóri Creditinfo
Hrefna Ösp Sigfinnsdóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri Creditinfo á Íslandi. Hún gegndi áður starfi framkvæmdastjóra eignastýringar og miðlunar hjá Landsbankanum.

Fækkar um 24 í starfsliði Íslandsbanka
Fækkað verður um 24 starfsmenn í starfsliði Íslandsbanka í september. Um helmingi þeirra hefur verið sagt upp störfum en samið hefur verið við aðra um snemmbúin starfslok.

Félag atvinnurekenda krefst svara um lögmæti netsölu á áfengi
Félag atvinnurekenda hefur enn ekki fengið svar við fyrirspurn sinni um lögmæti netsölu á áfengi, þrátt fyrir að hún hafi legið inni um nokkurt skeið hjá tveimur ráðuneytum.

Laxeldi á bak við helming starfa á stærsta netaverkstæði Austfjarða
Þjónusta við laxeldi hefur á skömmum tíma vaxið upp í að verða helmingur af starfsemi stærsta netaverkstæðis Austfjarða. Þessi nýjasta viðbót kom inn á sama tíma og hrun varð í loðnuveiðum.

„Sigur fyrir mig, starfsfólkið og veitingastaðinn“
Gunnar Karl Gíslason, stofnandi og yfirkokkur veitingastaðarins Dill í Reykjavík, segir það mikinn heiður að staðnum hafi verið veitt Michelin-stjarna annað árið í röð. Slíkar stjörnur eru veittar veitingastöðum sem þykja skara fram úr og eru afar eftirsóttar meðal veitingamanna.

Bein útsending: Michelin-stjörnum úthlutað til veitingastaða á Norðurlöndum
Tilkynnt verður um hvaða veitingastaðir á Norðurlöndum fá Michelin-stjörnur, eina mestu viðurkenningu í veitingageiranum, á blaðamannafundi sem hefst klukkan 18.

Þórey ráðin sem framkvæmdastjóri rannsókna- og þróunarsviðs hjá Florealis
Þórey Haraldsdóttir hefur verið ráðin sem framkvæmdastjóri rannsókna- og þróunarsviðs íslenska lyfjafyrirtækisins Florealis. Þórey er lyfjafræðingur að mennt og hefur áratuga reynslu sem stjórnandi í lyfjaiðnaðinum.

SalesCloud bætir við sig fjórum starfsmönnum
Hugbúnaðarfyrirtækið SalesCloud hefur ráðið fjóra nýja starfsmenn; Maríu Björk Gísladóttur, Friðrik Má Jensson, Pálma Þormóðsson og Rúnar Leví Jóhannsson.

Netárásin umfangsmikil en þrjótarnir náðu engum upplýsingum um viðskiptavini
Umfangsmiklar netárásir voru gerðar á íslensk fjármálafyrirtæki í gærkvöldi. Talsverðar truflanir urðu á þjónustu greiðslumiðlunarfyrirtækja vegna þessa.

Veitingamenn í vandræðum: Netárás olli truflunum á greiðslumiðlun
Truflun hefur verið á þjónustu greiðslumiðlunarfyrirtækja í kvöld líkt og síðasta föstudagskvöld.